Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2004, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2004, Blaðsíða 9
DV Fréttir FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2004 9 Árni sagður leggjast lágt Bæjarfulltrúar minni- hluta Samfylking- ar og Framsóknar- flokks í Reykjanes- bæ segja svar Árna Sigfússonar bæjarstjóra varð- andi greiðslu Reykjanesbæjar til Víkurfrétta fyrir jákvæða umfjöllun um skóla- og menntamál vera „uppfullt af útúrsnúningum og rang- færslum, sem settar eru fram til að slá ryki í augu þeirra sem það lesa og gera b'tið úr fyrirspyrjendum". Þeir hafni því að hafa átt að geta vitað fyrirfram að Vík- urfféttir fengju slíkar greiðslur. Árni hafi lagst lágt til „að breiða yfir skömm sína“. Mótmæla lögguverði Bæjarráð Fjarðabyggð- ar mótmælti á fundi sín- um í byrjun vikunnar hækkun á löggæslukostn- aði vegna fjölskylduhátíð- arinnar Neistaflugs. Fram kemur í fundargerð bæj- arráðsins að löggæslu- kostnaður í tengslum við hátíðina hafi hækkað um 40% á milli ára og við það uni aðstandendur ekki. Bæjarráð tekur því undir sjónarmið forsvarsmanna Brján sem standa fyrir há- tíðinni og telur sérstaka skattheimtu á hátí'ðir á landsbyggðinni óréttláta. talan dalar Úrvalsvísitala Kauphab- arinnar lækkaði um 0,89% í gær og endaði í 3.579,76 stigum í tæplega 1,8 mibj- arða króna viðskiptum. Öb félög í Úrvalsvísitölunni lækkuðu í viðskiptum dags- ins að undanskyldum Landsbankanum sem hækkaði um 0,83% og Burðarás sem hækkaði um 0,69%. Mest áhrif tb lækk- unar á Úrvalsvísitölunni höfðu hlutabréf KB banka sem lækkuðu um 2,2% og enduðu í genginu 485. Vægi bankans í vísitölunni er nú um 35% og hafði lækkunin í dag því um 0,78% áhrif tb lækkunar á Úrvalsvísitölunni. Lukku- bærinn Kilmarnock Bærinn Kbmarnock hefur nú fest í sessi stöðu sína sem heppnasta bæj- arfélag á Bretlandseyjum. Hin 51 árs atvinnulausa slcúringarkona Rosemary Ferguson varð á dögun- um nýjasti lottómibjóna- mæringurinn í Kilmarnock er hún vann 250 mibjónir króna. Þar með komst hún í hóp fimm annarra vinnings- hafa í Kilmamock sem abir hafa unnið mbljórúr í pundum talið en bæjar- félag þetta telur 44.000 íbúa. Ráðherrakvóti og byggðakvóti valda titringi. Ragnheiður Hákonardóttir, bæjarfull- trúi á ísafirði, segir fulla þörf á byggðakvóta til bæjarins. Unnið er að úttekt á miklum samdrætti landaðs afla í bænum. Sjávarútvegsráðuneytið glímir við þann hausverk að úthluta. _ Alleitt ao IslirDingar fái ekki ráðherrakvóta Það er flókið mál fyrir sjávarútvegsráðuneytið að úthluta upp- bótarkvóta úr átta mismunandi pottum. Framundan er að úthluta rúmum þrjú þúsund þorskígildum af ráðherrakvóta til byggðarlaga sem eiga í vanda. ísfirðingar sem þolað hafa gríðar- legan samdrátt á undanförnum árum eru ósáttir við að koma ekki til greina vegna þess að lög geri ráð fyrir að einungis byggð- arlög með færri en 1500 íbúa fái úthlutað. „Það er mál manna hér að þeir smiðja. Ragnheiður segir ljóst að um skbja ekki hvernig þeim kvóta er úthlutað. Nú erum við að vinna að úttekt á því hvar minnkun á afla hef- ur orðið. í lögum er talað um sveit- arfélög þar sem búa 1500 íbúar eða færri. Það þýðir að ísafjörður kemur ekki tb greina sem er afleitt. Hér hef- ur orðið mikib samdráttur á lönduð- um afla og vissulega hefði verið þörf á aðstoð," segir Ragnheiður Hákon- ardóttir, bæjarfubtrúi Sjálfstæðis- flokksins í ísafjarðarbæ. ísafjarðarbær samanstendur af byggðarlögunum Þingeyri, Flateyri, Suðureyri og ísafirði. Aðeins Isa- flörður febur ekki að skbgreining- unni um byggðarlög þar sem búa færri en 1500 fbúar. ísfirðingar hafa þó orðið fyrir þungum búsifjum á undanförnum árum enda búið að loka tveimur stórum frystihúsum í bænum auk nokkurra rækjuverk- mikinn samdrátt sé að ræða í lönd- uðum afla og ekki vanþörf á aðstoð. Bæjarráð ísafjarðarbæjar fjabaði um það í tbkynningu nýlega að áform væru uppi um að úthluta að nýju byggðarkvóta tb Vísis á Þingeyri þrátt fýrir að fimm ára samningur væri útrunninn. Gengið er ffamhjá bæjar- stjóm við þessa ákvörðun en miklar debur hafa staðið um úthlutunina sem bæði Flateyringar og Þingeyr- ingar hafa vbjað fá hlutdebd í. „Það hefur engin ákvörðun verið tekin um það hver fái byggðakvót- ann. Samningurinn er útrunninn og þess vegna ástæða tb að skoða þetta mál vandlega. Við munum skoða þetta út frá jafnræðisreglunni jafn- ffamt því að við skoðum úthlutun á öðmm kvóta,“ segir hún. Hjá sjávarútvegsráðuneytinu gbma menn við þann hausverk að út- Hér hefur orðið mikill samdráttur á lönd- uðum afla og vissulega hefði verið þörfá aðstoð. hluta byggðakvótanum. Jón B. Jónas- son skrifstofustjóri segir að það ráðist á næstu dögum hvert hann fer. Sá kvóti tengist ekki kvótanum sem Byggðastofnun úthlut- ar. Abs hefur sjávarútvegs- ráðherra yfir að ráða að hámarki 12 þúsund tonna kvóta af ýmsum tegundum tb að bregðast við þar sem aflabrestur verður. Ráðherrakvótinn er í átta tb níu pott- um og ffumskóg- ur reglugerða sem skýrir hvert hann eigi að fara. Stærstur hluti ráðherra- kvótans, 4500 tonn, fer tb skel- fiskbáta að þessu sinni. rt@dv.is Þingeyri Byggðakvótinn kom tiibjargar þorpinu fyrir fímm árum. Nú vill bæjarstjórn staldra við og skoða framhaldið. mm Ragnheiður Há- konardóttir Telur ófært að Isfirðingar eigi ekki möguleika á ráðherrakvóta. Foreldrar funda með ráðherra Hendur Þorgerðar bundnar í málinu Fubtrúar Heimbis og skóla, SAM- FOK, SAMKÓP, FFGÍR og FÁS áttu gagnlegan fund í gær með Þorgerði K. Gunnarsdóttur menntamálaráð- herra þar sem þeir lýstu áhyggjum foreldra af verkfabi gmnnskólakenn- ara og afleiðingum þess fyrir börnin. Menntamálaráðherra sýndi málinu mikinn skilning en hennar hendur em nokkuð bundnar í þessu máli. Ráðherra ítrekaði þá afstöðu sína að mbdlvægt væri að samningsaðbar næðu saman og leystu debuna sem abra fyrst. í frétt ffá Heimbi og skóla kemur fram að rætt var um hvaða mögu- leikar væm í stöðunni dragist verk- fabið á langinn. Foreldrar iögðu áherslu á að þessi deila yrði leyst tb framtíðar og að jafnvel mætti skoða þann kost að kennarar heyrðu undir kjaranefnd í framtíðinni. Mennta- málaráðherra var einnig spurð hvort hún gæti beitt sér í því að bæta námsgögn gmnnskólanna til þess að létta á vinnuálagi kennara við að búa til ítarefni og námsgögn fýrir nemendur sína. Tók ráðherra vel í að skoða það. Fundur Ráðherra ítrekaði þá afstöðu slna að mikilvægt væri að samningsaðilar nái saman og leysi deiluna sem allra fyrst. Heldur vænkast hagurinn Verð á sjávarafurðum á uppleið Verð á sjávar- afurðum hækkaði lítibega í ágúst- mánuði miðað við mánuðinn á undan mæit í ís lenskum krónum og erlendri mynt samkvæmt tölum sem Hagstofan birti í gær- morgun. Verð sjávarafurða hefur hækkað undan- farna þrjá mánuði eftir lækkun á fyrri hluta ársins. Mælt í krónum og erlendri mynt er verðlag sjávar- afurða nú áþekkt því sem það var í byrjun ársins. Verðlag sjávarafurða í erlendri mynt er orðið lfkt því sem það var á árinu 2002 en verðið í krónum er talsvert lægra nú vegna þess hve sterk íslenska krónan er. Uppskipun Verð á botnfíski í eriendri mynthefur hækkað og hefur ekki mælst hærra frá þvi í byrjun árs 2003. Verð á botn- fiski í erlendri mynt hefur hækkað og hefur ekki mælst hærra frá því í byrjun árs 2003. Þar af hafa sjófrystar af- urðir hækkað um 8% frá því í byrj- un árs, landfryst- ar afurðir hafa hins vegar staðið í stað en saltfiskafurðir hækkað um 2% frá því í byrjun ársins. Rækjuverð hefur hækkað örlítið frá fyrra mánuði og er svipað því sem það var í byrjun ársins en stendur enn fremur lágt miðað við verðþróun síðustu 10 ára. Loks hækkaði mjölverð smávægbega frá því í júlí en verðið hefur þó haldist nokkuð stöðugt á árinu. Greining íslandsbanka segir frá.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.