Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2004, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2004
Fréttir TFV
IRKU
ÖGUr
Mánudagar
Heimilislæknirinn
Fjölskyldumaðurinn
Sálfræðingahjónin
Kynlífsráðgjafinn
Neytendamál
Ertu eitthvað skyld Sigríði Rósu?
Það kannast eflaust allir við
pistlahöfundinn víðfræga sem
endaði pistla sína hjá Ríkísútvarp-
inu með þessum orðum „þetta er
Sigríður Rósa Kristinsdóttir sem
talar frá Eskifirði".
Það var hún amma mín sem tal-
Sigriður Rósa
Kristinsdóttir
ætlar að feta í fótspor
ömmu sinnar. á
Skrifstofumaðurinn segir
aði sig inn í hjörtu landsmanna íyr-
ir rúmum 10 árum og nú hefur DV
ákveðið að yngja aðeins upp og fá
sonardótturina og alnöfnuna til að
tjá tilfinningar og skoðanir sínar á
prenti.
Það verður nú örugglega frekar
erfitt að standa undir nafni því hún
amma gamla hafði svo gott lag á að
koma skoðunum sínum til þjóðar-
innar. Það er alltaf eins þegar ég er
spurð hvað ég heiti, að ef ég segi
fullt nafn þá er nánast alltaf spurt
að því sama; „ertu eitthvað skyld
henni Sigríði Rósu sem talaði frá
Eskifirði?". Jú, jú, ég er barnabarn
lúnnar frægu Sigríðar Rósu. Hún
hélt á mér undir skírn á fimmtugs-
afmælisdegi sínum og þótt ótrúlegt
megi virðast hefur mér verið sagt
að það hafi komið henni mjög á
óvart þegar henni var sagt hvað
bamið átti að héita.
Ég vona að alþjóð eigi eftir að
njóta þess að lesa það sem ég á eft-
ir að skrifa hér í þessum pistlum.
Ég hef jú góða fyrirmynd en það er
alveg spurning hvort amma gamla
á eftir að vera stolt af nöfiiunni, því
ég veit að ég á aidrei eftir að komast
með tærnar þar sem hún hefur
hælana. En maður gerir auðvitað
sitt besta. Þetta er Sigríður Rósa
Kristinsdóttir sem skrifar ffá Eski-
firði!
Þjófar rændu 40 steypumótum frá Sérverki ehf. Friðþjófur Jóhannesson verkstjóri
segir helvíti hart að aðrir byggingarvinnumenn séu að ræna verkfærum frá þeim.
Hann býður 250.000 kr. fundarlaun.
Rændu tveim tonnnm
af steypumótum úp úli
Þjófar rændu 40 steypumótum úr áli frá Sérverki ehf. frá nýbygg-
ingu verktakans við Öfughvarf 8 í fyrrakvöld eða nótt.
Friðþjófur Jóhannesson verk-
stjóri hjá Sérvefki ehf. segir að vart
komi tÚ greiná/annað en að þarna
hafi verið einhver byggingaverktaki
á ferð. „Flekarnir eru sérsmíðaðir til
að steypa upp veggi þannig að þetta
hlýtur að vera einhver samkeppnis-
aðili okkar sem stal þessu frá okk-
ur,“ segir Friðþjófur. Sérverk ehf.
hefur ákveðið að bjóða 250.000 kr. í
fundarlaun til handa þeim sem get-
ur bent á hvar mótin eru niðurkom-
in en verðmæti þeirra er hátt á
þriðju milljón króna.
Sérverk ehf. er að reisa iðnaðar-
húsnæði við Öfughvarf 8 rétt við
brúna milli Rauðavatns og Breið-
holts. „Það er mikil umferð hérna
framhjá okkur þannig að einhverjir
„Við vorum að steypa
lítinn stubb sama
dag og þjófnaðurinn
varð og þessir þjófar
voru svo ákafir að
komast yfir flekana
að þeir byrjuðu á því
að rífa mótin afþess-
um stubbi."
hljóta að hafa orðið varir við þjóf-
ana,“ segir Friðþjófur. „Fivert
steypumót vegur um 50 kg og er því
tveggja manna tak að koma því fyr-
ir á vörubíl eða pallbíl ef viðkom-
andi er ekki með krana á bílnum hjá
sér."
Bagalegt fyrir okkur
Friðþjófur segir þennan þjófn-
að mjög bagalegan fyrir Sérverk því
steypuvinna við iðnaðarhúsið sé í
fullum gangi hjá þeim. „Við vorum
að steypa lítinn stubb sama dag og
þjófnaðurinn varð og þessir þjófar
voru svo ákafir að komast yfir flek-
ana að þeir byrjuðu á því að rífa
mótin af þessum stubbi," segir
Friðþjófur. „En hættu svo strax
þegar þeir sáu að steypan byrjaði að
leka um allt."
Helvíti hart
Er DV hafði samband við Frið-
þjóf í gærmorgun var hann á leið á
nokkra staði í borginni þar sem
hann taldi hugsalegt að steypumót-
in væru. „Það er helvíti hart þegar
aðrir bygginarvinnumenn eru að
ræna frá okkur steypumótunum,"
segir Friðþjófur. „Við megum ekk-
ert við þessu."
Friðþjófur vill hvetja alla sem
hugsanlega hafa orðið varir við
þjófnaðinn og séð þjófana hlaða
mótunum á vöru- eða pallbfl að
hafa samband við lögregluna. Hvert
mót er 90x279 sm þannig að 40
þeirra hafa myndað dágóðan stafla
á bflnum. „Það hlýtur einhver að
hafa séð til þjófanna á þriðjudags-
kvöld eða um nóttina," segir hann.
Segjast vera einn og hálfan tíma á leiðinni til Reykjavíkur með Strætó
Álftnesingar neita að borga fullt fargjald
Sigtryggur Jónsson á Álftanesi
segir ljóst að með nýju leiðarkerfi
Strætó bs. sé ætíun fyrirtækisins að
sinna ekki innanbæjarakstri þar í
sveitarfélaginu.
DV hefur áður sagt frá óánægju
íbúa við Blikastíg með að börn niður
í sex ára aldur á leið í skóla þurfi
brátt að ganga nærri einn kflómetra
í næsta strætisvagn í stað 200
metra áður. Það sama gildir
um þá sem búa við Lamb-
haga og við Utlubæjarvör. í
kjölfarið bókaði bæjarráðið
andstöðu sína við nýtt leiðar-
kerfi Strætó sem tekur gildi um ára-
mótin.
Sigtryggur Jónsson, sál-
fræðingur og fyrrverandi
bæjarfulltrúi, hefur nú
blandað sér í umræðuna
með innleggi á umræðu-
vef Álftaness. Sigtryggur
segir ljóst að vagninn sem
Sigtry ggur Jónsson „Ekki er ætlunin
að sinna innanbæjarakstri á Álftanesi
og ekki heldur að sinna þeim ibúum
Álftaness sem vinna I Reykjavlk,“ segir
Sigtryggur Jónsson íbúi á Álftanesi.
ganga á út á Álftanes, leið 23, eigi
eingöngu að þjóna þeim íhúum
sveitarfélagsins sem séu nemendur
við Garðaskóla og Fjölbrautar-
skólann í Garðabæ.
„Ekki er ætíunin að sinna
innanbæjarakstri á Álftanesi
og ekki er ætíunin að sinna
þeim íbúum Álftaness sem-
vinna í Reykjavík. Til þess að
vera kominn í vinnu ldukkan
átta í miðbæ Reykjavíkur þarf
viðkomandi að taka strætó
klukkan rúmlega hálfsjö frá
Álftanesi. Þetta er sama
vegalengd og fyrir þá íbúa, sem búa
næst Úlfarsfelli í Mosfellsbæ. Skyldu
þeir fá sömu „þjónustu"?" spyr Sig-
tryggur, sem vÚl ekki fallast á nýja
leiðarkerfið:
„Á meðan þjónusta Strætó er ekki
meiri en þetta legg ég til að ekki
verði miðað við íbúafjölda á Álfta-
nesi þegar kostnaðarhlutdeild Álft-
nesinga í Strætó bs. er ákvörðuð.
Miðað verði við fjölda þeirra Álft-
nesinga, sem stunda nám við Garða-
skóla og Fjölbrautarskólann í Garða-
bæ. Sem útsvarsgreiðandi get ég
ekki fallist á annað."