Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2004, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 2004
Fyrst og fremst DV
Leikaraparið Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og Stefán Karl Stefánsson hafa sett hús
sitt við Suðurgötu 6 á sölu. Fregnir herma að þau hafi tekið stefnuna á Hollywood
eftir frækilega framgöngu Stefáns Karls í hlutverki Glanna glæps í Latabæ.
Leikaraparið Steinunn Ólína
Þorsteinsdóttir og Stefán Karl Stef-
ánsson hafa sett húseign sína við
Suðurgötu 6 á sölu. Gerist það eftir
miklar framkvæmdir sem þjóðin
hefur getað fylgst með í Innliti - út-
liti hjá Völu Matt á Skjá einum. Alls
heimsótti Vala Steinunni og Stefán í
þrígang á Suðurgötuna og var leik-
araparið fyrir bragðið orðið að
heimilisvinum fjöimargra íslend-
inga.
Glanni í Hollywood
Steinunn Ólína vill ekki ræða
fasteignaviðskipti sín í DV en úr
leikhúsgeiranum heyrast þær fréttir
að leikararnir og húseigendurnir
við Suðurgötu hyggi á flutning af
landi brott með stefnuna á Banda-
ríkin; jafnvel Hollywood.
Stefán Karl hefur sem kunnugt
er slegið í gegn sem Glanni glæpur í
Latabæ Magnúsar Scheving sem nú
fer sigurför um Bandaríkin sem
ekki sér fyrir endann á. Tilþrif eins
og þau sem Stefán Karl heftir sýnt í
Latabæ þykja ávísun á græna kortið
í Hollywood og jafnvel stórsamn-
inga við kvikmyndver sem alltaf eru
í leit að nýjum stjörnum. Röðin
gæti verið komin að Stefáni Karli.
Steinunn líka
Með Stefán Karl sér við hlið gæti
Seinunn Ólína einnig átt möguleika
í háborg kvikmyndanna. Þeir sem
til þekkja vita sem er að íslenskt
leiksvið hefur lengst af verið of lítið
fýrir Steinunni Ólínu sem bæði hef-
ur þá hæfileika og skapgerð sem
þarf til að koma sér áfram í hörku
bandaríska kvikmyndaiðnaðarins.
Sjö svefnherbergi
Bæði eru þau Stefán karl og
Með Stefán Karl sér
við hlið gæti Seinunn
Ólína einnig átt
möguleika í háborg
kvikmyndanna.
Steinunn Ólína þögul sem
gröfin yfir draumum sínum
og ráðagerðum um land-
vinninga vestra.
Það er Eignamiðlunin í
Síðumúla sem er með hús-
ið á Suðurgötu á sölu.
Brunabótamat þess er
tæpar 24 milljónir, fast-
eignamat 23 milljónir en
söluverð ekki gefið upp
heldur óskað eftir tilboð-
um. Alls er húsið 217 fer-
metrar og í því sjö svefn-
herbergi. í fermetratöl-
unni er kjallari sem ekki er
nýttur í dag. í sölulýsingu
fasteignasölunnar á hús-
inu á Suðurgötu, segir
meðal annars:
„Einstaklega heillandi
og glæsilegt einbýlishús
með mikilli sál og sögu,
húsið er staðsett neðst
við Suðurgötuna í hjarta
Reykjavíkur. Húsið skipt-
ist m.a. í forstofu, hol,
stofu, borðstofu, eldhús og
geymslu/herbergi á neðri
hæð. Á efri hæð eru sex
herbergi, baðherbergi og
snyrting. Undir húsinu er
lagnakjallari auk þess sem
17 fm geymsluskúr fylgir.
Húsið hefur verið mikið
endurnýjað á sl. árum m.a.
eldhús, baðherbergi, raf-
magn, ásamt því að smíðuð
hefur verið ca. 130 fm timb-
urverönd með heitum potti
og lóðin endurnýjuð í heild
sinni á mjög fallegan hátt.“
Útsýnið
Elsti hluti hússins við
Suðurgötu 6 er frá síðari
hluta nítjándu aldar en við
það hefur verið byggt og það
endurnýjað á áranna rás. Úr
stofuglugga er útsýni yfir
Vonarstræti og eitt fegursta
tré landsins; risahlynur sem
slær öðrum trjám í Reykjavík
við hvað varðar form og
grósku.
Vala Matt á staðnum Ræðir
hér við Steinunni Ólínu og Stefán Karl í
eitt afmörgum skiptum fyrir Skjá einn.
Suðurgata 6 Steinunn Ólfna '
ogStefán Karl réðustf mikiarfram-
kvæmdir utanhúss sem innan þegarþau
V keyptu húsið f fyrrasumar .
Túkan-fugl, niðurlútur flskur,
baulfroskar og leðjulákar
„Þú segir nokkuð. Það eru alls konar
fúrðuskepnur til sölu hjá mér,“ segir Ingólf-
ur Tjörvi í gæludýrabúðinni Fmöufúglar og
fyigifiskar. Ofgnótt er kannski orðið. Blaða-
manni líður l£kt og sykuróðum krakka í
Það sérstæðasta í búðinni
nammibúð við að skrifa þennan dálk. En
þessi búð varð fyrir valinu að þessu sinni og
ekki aftur snúið.
„Það er til dæmis erfitt fyrir mig að gera
upp á milli túkan-fugls sem við erum með
og svo fisks sem heitir Niðurlútur. Túkaninn
er kolsvartur, nei, ekki páfagaukur. Goggur-
inn er eins og á lunda, bara lengri, eða 25
sentimetrar. Niðurlútur er hins vegar flatur
eins og teiknimyndaffgúra sem klesst hefúr
á vegg og lent undir valtara að auki. Þú sérð
haim varla ef þú horfir á hann framan frá.
Ennið á honum er þó 15 sentimetra langt"
Túkan-fúglinn er gríðarlega fallegur og
Tjörvi segir ekki kominn verðmiöa á hann
enn. Fuglinn er karlkyns, heitir Pontó og
mun líklega kosta 400 þúsund.
Ingóflur Tjörvi hefiir svo þulu sem
ætlar engan enda að takæ „Já, svo má
náttúrlega nefna Baul-froska sem geta orð-
ið 25 sentimetra langir og vegið 2 kfló. Þeir
gleypa mýs og eru tenntir. Bíða pollrólegir
efdr bráðinni og svo bara dlúddddd... bráð-
in horfin og þeir varla ropa. Svo eru héma
leöju-lákar, fiskar sem geta skriðið á land
eins og hálfgerðir lungnafiskar. Þeir em
með sterka eymgga ogvalhoppa á sandin-
um. Geta verið á þunu landi í um klukku-
stund Þeir gleypa vatn og anda í gegnum
það...
IngólfurTjörvi Búðin hans
stendur sannarlega undirnafni
en þar má finna furðuskepnur
aföllum stærðum og gerðum.
______ DV-myndir Valli