Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2004, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2004, Blaðsíða 14
74 LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 2004 Helgarblað DV Rokksaga Bubbi Morthens er rokkstjarna. Þetta hljómar kannski eins og að hamra á því sjálfgefna, en það eru ekki margir íslendingar sem geta státað af þessum titli. Margir hæfi- leikaríkir tónlistarmenn hafa komið fram hérlendis síðan Bubbi fyrst birt- ist og hafa sumir þeirra selt margfalt fleiri plötur á heimsmælikvarða. En enginn hefur verið jafii mikil rokk- stjama og Bubbi. Hann hefur gert þetta allt; óx upp við mátulega bág kjör, átti drykkfelldan föður og gekk ifla í skóla, fór að vinna í verksmiðj- um og frystihúsum, sló í gegn og var ungur, villtur og hávær, brann út á kókaíni, fór í meðferð, samdi plötu um konuna, skildi, fékk sér nýja konu og samdi plötu um hana lflca, fann Guð og keyrir um á jeppa honum til dýrðar. Þetta eru öll velþekkt stig þess að vera rokkstjama og menn höfðu farið í gegnum þau áður. En enginn hafði gert það hérlendis fyrr, að minnsta kosti ekki með jafn miki- um krafti. Og lfldega mun enginn gera það aftur, þar sem rokkstjörnu- ímyndin er svo löngu orðin úr sér gengin. Við þurftum bara einn Bubba. Og Ásbjöm Morthens fór ágætlega með hlutverk hans. Líf Bubba skáldskap líkast Það hefur lengi staðið til að gera heimildarmynd um Bubba. Friðrik Þór byrjaði á slflcri árið 1982 og út- koman varð Rokk í Reykjavflc, sem endaði með því að fjalla um rokk- senu tímabilsins, enda mátti varla á milli sjá hvar rokkið endaði og Bubbi byrjaði á þeim tíma, hvað vom áhrif ffá honum og hvað var andsvar við honum; hann var alls staðar. Sögur herma að Friðrik hafi haldið áff am að skjóta og einhvem tfinann átti hann að hafa arfleitt Júh'us Kemp að verk- efninu. En það er ekki sú heimildar- íslands mynd sem birtist okkur hér. Ólarnir fengu ekki aðgang að þeim geysilega gagnabanka sökum fjárskorts. En þegar fjármagn þrýtur þarf að bæta það upp með hugmyndaauðgi og það gera þeir vel. Myndin byrjar á því að Bubba er hleypt aftur inn í íbúðina sem hann ólst upp í og segir sögur af erfiðum föður. Við fáum svo að sjá senur úr æsku Bubba þar sem sonur hans fer með hlutverk pabba síns. Þetta geng- ur allt saman betur upp en maður hafði þorað að vona. Ólafur Páll spyr spurninga en sjáanlegt hlutverk hans er lítið þó að það sé þeimur meira bakvið tjöldin, athyglinni er beint að Bubba og fær hann að segja sögu sína í eigin orðum. Þar sem lítill aðgangur hefur verið veittur að áður óútgefriu efni er þungamiðja myndarinnar því gömul sjónvarpsviðtöl og myndefrú. En þau em hér í fyrsta sinn sett í sam- hengi tii að segja heildstæða sögu. Líf Bubba er stundum skáldskap lflcust, og því fer vel að á köflum setja hana ffam sem slflca, svo sem í atriði snemma í myndinni þar sem Morth- ens-fjölskyldunni er stillt upp sem Corleone-klaninu. Það að eiga mis- heppnaðan föður en föðurbróður sem var stærsta stjarna landsins hlýt- ur að hafa átt sinn þátt í einbeitingu Bubba til að meika það. Ekki þægilegur í umgengni Og svo byrjar ballið. Gamlar tón- leikaupptökur sýna manni hversu magnaðir Utangarðsmenn vom. Ef til vill hefðu þeir getað orðið fyrsta ís- lenska hijómsveitin tif að meika það erlendis, en þeir vom kannski of sein- ir/of snemma/of íslenskir/of reyktir, og Einar öm þurfti að bíða í nokkur ár í viðbót þangað til hann var kominn með hljómsveit sem gat lagt heiminn að fótum sér. En ísland lá flatt fyrir Bubba og félögum. Bubbi hefur lflc- lega ekki verið þægilegur maður í um- gengni á þeim árum. Ekki var nóg fyr- ir hann að skara fram úr tónlistarlega, hann þurfti einnig að berja þá til hlýðni sem vom á öðm máli, eins og kemur fram í nýlegu viðtali. En samt sem áður heldur maður með honum. Maður vill sjá Bubba sigra. Myndin er afar vel klippt, og menn sýna mikla smekkvísi, bæði í notkun myndefnis og tónlistar þar sem saga Bubba er sögð í máli og myndum. Bubbi minnist móður sinnar í hjartnæmu atriði, en haldið er áfram áður en það fer út í væmni. Undir lokin er myndin komin heilan hring. Bubbi segir skemmti- lega frá ferð sem hann og Tolli fóru með föður sínum til Grænlands, þar sem allir komast aftur í samband við náttúruna. Hann sést á leik með syni sínum, sem við sáum áður leika Bubba ungan. Bætir fyrir syndir föð- urins með því að taka sjálfur á sig föðurhlutverk og gera það betur. Bubbi er aftur staddur í blokkinni og riflar upp góðu minningarnar af föður sínum í æsku sem jafiia út þær Hver getur horft á Bubbaca. 1980og ekki viljað vera Bubbi ca. 1980? slæmu, sérstaklega þar sem Kristinn kennir honum fyrstu gripin á gítar- inn. Fyrirgefningin er fundin, hringn- um er lokað. En því miður, því miður heldur myndin áfram í ca. korter í viðbót. Bubbi sést með fræga fólkinu, Bubbi sést á stórsviði. Bubbi segir okkur að það sé allt í lagi að selja sjálfan sig svo lengi sem menn séu heiðarlegir. Nú, og ég sem hélt alltaf að Lífið er ljúft fjallaði um fjölskylduhamingju, ekki heimsmeistarakeppni í kannabis- neyslu. Ef ég vil heiðarleika set ég Megas á fóninn. Berst gegn eigin arfleifð Eina gagnrýnin sem kemur fram á Bubba í myndinni er sú sem hann setur sjálfur fram og svarar. Blindsker er því kannski ekki að segja okkur Blindsker: Saga Bubba Morthens Sýnd i Smárabiói og Regnbog- anum. Leikstjóri: Ólafur Jóhannesson. Aðal- hlutverk: Bubbi Morthens. Handrit: Ólafur Páll Gunn- arsson. ★ ★★'Í Valur fór í bíó margt nýtt. Það þarf reglulega að endurskoða sjálfsævisögu hans í sambandi við hvenær hann hætú að dópa, nýjustu tölur gefa okkur 1997. Það er ekki rétt að hetjur okkar fari út á brúnina til þess að við þurfum ekki að gera það. Þær gera það af sínum eigin eigingjömu ástæðum. í einu at- riði myndarinnar er Bubbi að messa yfir unglingum um hættur eiturlyfja- neyslu og segist vera afar skemmdur af hennar völdum. Einhvem veginn finnst manni eins og hetjur okkar geti gert hvað sem er og komist upp með það, en Bubbi er of nálægur okkur og ekki með her manns sem hugsa fyrir hann, eins og td. Keith Richards. Það er ekki auðvelt að vera bæði fyrirmynd og víú til vamaðar. Hver getur horft á Bubba ca. 1980 og ekki vújað vera Bubbi ca. 1980? Þótt hann hafi verið útúrdópaður. Eða kannski einmitt þess vegna. Bubbi kom með rokkstjömulífemið til fslands. Það er kaldhæðnislegt að hann skuli nú beijast gegn eigin arfleifð. Getur maður fengið innblásturinn án þess að nota eitrið? Það er spuming sem núverandi kynslóð tónlistarmanna þarf að svara. En það er staður og tfini fyrir gagnrýni á Bubba. Hann á vel efni á því að afrek hans séu vegsömuð við og við. Og Blindsker er afar glæsileg- ur minnisvarði. Valur Gunnarsson Glersalurinn er glæsilegur veislu- salur að Salavegi 2, Kópavogi. Oll aðstaða er eins og best gerist með góðum hljómburði og full- komnu hljóðkerfi — og útsýnið verður hver einasti maður að upplifa... Við bjóðum hópum að halda jólahlaðborð hjá okkur á tímabilinu frá 19. nóvember til 19. desember. Matreiðslumeistari er Sturla Birgis. Kíktu á heimasíðu okkar, glersalurinn.is, eða hringdu og fáðu nánari upplýsingar í símum 586 9006 og 564 2112. Salavegi 2 201 Kópavogi SÍMI 586 9006 GSM 862 0713 FREYJA@GLERSALURINN.IS GLERSALURINN.IS Einnig erum við með Arshátíðir Kvöldverði Brúðkaup Fermingar Afmæli Þorrablót
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.