Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2004, Blaðsíða 54
Helgarblað DV
GÓÐ SALA!
VANTAR BÍLA Á SKRÁ
OG Á STAÐINN
Opið virka daga
kl. 10-19
Laugardaga
kl. 10-17
Sunnudaga
kl. 13-17
Finndu rétta bílinn
www.bilamarkadurinn.is
Mbenz 240Í Ctót 1998úrg efcl 19 Mjðg vel
útbúinn bdl Gulllollegt eintnk Vetð 2490Þ Tilboð
2190 ÞoMandi 840þ
Volvo V70 úrg. 02/02, ek. 56 Sfa, leður, ílfelg-
ur, somlæs.iotm. I öllu. Viikilego flattur!
Veið 2920 þ.
M.benz E32 AMG, úig. 10/93. ek.176. Rouðsons,
topplúgo, somlæs, spoiieikitt, lækkoður,17' 61, flottni
græjui. Flottui bill. Veið: 1630 þ. Tilboð:1490 þ.
Fiot 8iovo 1,6 órg. 10/97, eklOO þ. Giænn, som-
læs, þjónustubðk. Rotm. I rúðum, speglum.
Flottui bill. Verð 540 þ. Tilboð:410 þ.! 111
Nisson Potiol SE 2.8 TDi 07/00 Ekl 29þ Bsk5glro.
Eeður,Eúgo,Rofmogn I ðllu, Þjúfovörn.þjðnustubðk..
Verð 2690þ TIEBOÐ2550þ
Nisson Primero 2.0 SEX, ek. 113þ sjk. Steingrór.
Spoiler, somlæsiogor. Sumor og vetrordekk. Virkilego
gott eintok. 2 eigendur frú upphofi. Veið: 470 þ.
Nisson Almeio Comfort. 1,5, ðig 2002, ek. 50 þ.
km. Beinsk., silfur, somlæsingor, CD, obs, ðtfelgur.
Vel með forinn. Verð 1150 þ.Tilboð 1000 þ.
Hondo Hiv 1,6 2000örg ek 55þ
Diúnoikúlo lofmogn I öllu Mjög gúðui jcpplingur
Verð:l 590þ Tilboð:1490
Toyoto 4runner V-6 3,03/91 ekl 75Þ sjúlfskiptur
35' bieyttur.cd.þjðfovörn, Virkilego follegt ein-
tok, veið:600þ Tilboð:550
Crysler PT-cruiser, 07/’01 ek. 70 þús. 5 giro,
2,4tc. Silfur. Topplúgo.T 7'úlfelgur, Altezo oftur-
Ijós, obs, oirbog.skigðor rúður. Ofl,ofl,ofl,ofl...
Verð:2390 þ. Tilboð: 2090 þ.
Mozdo 323F glxi 1,5, úrg. 1999, ek. 86 þ.
Beinsk., blðsons.spoiler, somlæsingor. Verð 840 þ.
M.8enz 280SE 3,5 V-8 Blór,sjólfskipt,Ek:348
Rosolego miklð gegntekinn Otsolego tollcgt
eintok Verð:1550 þús
Jeep Grond cberakee 03/02 Ek55 Sjúlskipt,
Eeður.lúgo.Stigbretti, þokbogor.BOSE bljðmkerfi,
ollt rofdiifið. ý FlottosbVerð:3600þ
Tilboð:3490Þ
Hyundoi Gollopper TDi2,5 04/01 ek58 bsk5gíro
Abs.úl.somtæsingor, Vorodekksblíf,ofl,ofl.
úbvflondi:950þ
Ford Focus Gbio 1,6. Árg. 1999, ek. 105 þ. km.
Vínrouður, sjúRsk.,, CD, obs.oirbog, Nýlego múloð-
ucVerð 1020 þ.Tilboð 950 þ.
Renoult 19 RT, úrg. 11 /95, ek. 126 þ Hvftur,
spoiler, CD, rofmogn i rúðum og speglum, fjorstýið-
or somlæs., Veið 350 þ. Tilboð 290 þ.
Nisson Almeio SLX 1,6, 06/98, ek. 80 þ. Sjúlfsk.
Rouðui, ólfelgui, obs, oirbog, fjorstýiðoi
somlæsingor, 2dekjogongor. Verð 690 þús.
GMC sierro 1500 12/03 Sjúlsk ek33þ
leður.lok ú polli, 80SE hljomkeifi, krúmsilsoiör,
kiómgiind.Utoð gler, Rosolego flott eintok.
Veið 4150þ Tilboð.3950þ Stgrl!
Jeep GRAND CHEROKEEIAREDO 4,7 úrg. 03/02, ek,
44 þús. Rouður. Topplúgo, þjúfovöm, somlæs, rofmogn
I öllu. Flottur bdl. Veið 3490 þ.
Doewoo Musso E23 '00 ek.58þkm úlfelgur,
diúttorkúlo, geislospilod Verð 1.750þ
Tilboð 1,590þ
Hin ofsafengna trú á framfarir
Einn af mörgum veikleikum mínum
er lestur bóka um kommúnismann.
Vinur minn sem er sjálfúr ekki frá-
hverfur svona fræðum ícom í heimsókn
og tók andköf yfir því hvað ég á mikið
af svona ritum. Og þau bætast enn í
safnið, að minnsta kosti tugur síðan í
fyrrasumar. Ég lagði fyrir sjálfan mig
lítið próf og komst að því að á svip-
stundu gat ég nefnt nöfn hátt í níutíu
sovéskra bolsévíka:
Abakumov, Anand, Allilujev,
Andrejev, Antonov Ovseenko, Bedny,
Beria, Berman, Blumkin, Borodin,
Bresnev, Budjonny, Bukharin, Bulgan-
in, Charkviani, Choibalsang, Chubar...
Æ, nei, stopp!
Ég velti því stundum fyrir mér af
hverju ég er að lesa þetta, hvort það sé
bara saklaust áhugamál eða hvort
þetta sé jafnvel ígildi einhvers konar
kláms? Er ég svona heillaður af þessu
innst inni? Eg hef meira að segja lagst
svo lágt að lesa bækur um einkalíf for-
ystumanna í Þýska alþýðulýðveldinu.
Það er í raun afar merkilegt hvað pakk
getur komist langt áfram í veröldinni.
Engar sannleiksnefndir að
störfum
Stundum lofa ég sjálfum mér að
lesa ekki fleiri svona bækur. Þetta er
náttúrlega tímasóun - hvað þarf ég að
vita meira um þetta lið? En þá koma út
rit eins og Koba the Dread eftir Martin
7\mis, Gulag eftir Anne Applebaum,
Stalins Henchmen eftir Donald Reyfi-
eld og In the Court of the Red Tsar eft-
ir Simon Seabag Montefiore. Ég hef
ekki undan að bera þetta með mér í
þungum töskum frá útlöndum.
En kannski er líka jafngott að svona
bækur koma út og að til er fólk sem fer
á kaf í skjalasöfn Sovéttímans. Það eru
varla neinir opinberir minnisvarðar
um fórnarlömb kommúnismans í
Rússlandi; forsetanum þar er ekki sýnt
um að minnast þessa tíma með klökku
hjarta, heldur byggir hann á arfleifð
gömlu leyniþjónustunnar - hann er
það sem kallast „chekisti". Svo ég viti
til hefur ekki einn einasti maður verið
dæmdur fyrir glæpi Sovéttímans - það
eru engar sannleiksnefndir að störfum.
Skepan Bería afhjúpar sig
Það sem mér finnst einna athyglis-
verðast úr þessum bókum sem ég hef
lesið að undanförnu er tvennt: Annars
vegar Georgíumaðurinn Beria. Hann
var gáfaðastur í valdaklíku Stalínstím-
ans (að undanskildum Stalín sjálfum),
afskaplega dugmikill maður, en
grimmur og öfughneigður. Við lát
Stalíns afhjúpar Bería sig. Hann reynist
alls ekki vera neinn kommúnisti, langt
í frá, vill ná sáttum við Vesturlönd,
opna Gúlagið, endurreisa einhvers
konar markaðsbúskap, sameina Þýska-
land. Undir lokin kemur hann næstum
fyrir sjónir eins og einhvers konar Gor-
batsjov. En Beria var auðvitað skepna
og hlaut makleg málagjöld þegar hann
var drepinn af klíkubræðrum sínum -
Stalín talaði um hann sem „sinn
Himmler". Maður getur samt spurt sig
hvort sagan hefði orðið öðruvísi ef Ber-
ia hefði orðið ofan á í valdabaráttunni
1953 - eða allavega velt því aðeins fyrir
sér.
Hins vegar er það Stalín sjálfur.
Myndin af honum er orðin miklu fyllri
en hún var áður en menn fóru að kom-
ast í skjalasöfn ráðstjórnarinnar. Stalín
var miídll skjalakarl; það eru til ótrú-
lega nákvæmar heimildir um einkalíf
hans og lfka um morð og grimmdar-
verk. Sebag Montefiore segir í riti sínu
um rauða tsarinn að Stalín hafi alla tíð
verið fanatískur marxisti, hann hafi
tekið þessa trú sem ungur maður og
aldrei bilað í henni. Það sé mikil ein-
földun að afgeiða hann sem ofsóknar-
óðan harðstjóra að austrænum hætti.
Það sem dreif hann áfram voru vest-
rænar kenningar.
Hugsjónin um þúsundáraríkið
Sú afsökun sem hefur margsinnis
verið sett fram að Sovétríkin hafi verið
einhvers konar afbökun kommúnism-
ans er heldur ekki marktæk. Þar var
komið á sameignarskipulagi líkt og
kveðið er á um í fræðunum, einkaeign
var afnumin bæði í borgum og sveitum;
til þess þurfti að útrýma heilum stétt-
um manna og öllum sem stóðu í vegin-
um.
Kommúnismi er þúsundáraríkis-
hugsjón, hugmynd um að hægt sé að
skapa fyrirmyndarríki á jörð, jarðneska
paradís, án þess að guðleg máttarvöld
komi nærri. Maðurinn er settur í miðju
alheimsins. Samt ber þetta svip trúar-
bragða. Undanfarið hef ég verið að lesa
rit eftir John Gray, breskan heimspek-
ing sem rekur tengslin milli þúsundára-
ríkishugsjóna og kristindóms. Hann
álítur að þær séu meira eða minna
sprottnar úr kristninni - það sé bara
búið að setja guð út úr myndinni. Gray
rekur þetta í gegnum húmanisma nítj-
ándu aldar yfir f kommúnisma, nas-
isma - haldið ykkur fast - frjálshyggju
síðustu áratuga.
Huqmyndafræði frjálshyggju
og kommúnisma svipuð?
Nú ætía ég ekki að leggja lesti frjáls-
hyggjunnar að jöfnu við grimmdaræði
kommúnismans og nasismans. En Gray
færir trú fyrir því að hugmyndafræðin
sé af svipuðum toga: Ofsafengin trú á
framfarir. Að sagan stefni í einhvern
endapunkt þar sem allir eru hamingju-
samir. öll togstreita hefur endað, öll
vandamál eru leyst, við blasir sæluríki,
nýtt mannkyn. Á árunum eftir fall
Mtirsins talaði Francis Fukuyama um
endalok mannkynssögunnar - nú vekur
sú hugmynd varla annað en kátínu.
En markaðshyggjubókstafstrú var
miskunnarlaust boðuð á árunum eftir
að kalda stríðinu lauk. Það var látið eins
og frjáls markaður væri eina módelið
sem gæti hugsast fyrir mannkynið,
hann myndi ryðja öllu úr veginum -
það væri beinhnis söguleg nauðsyn,
vísindaleg staðreynd, rétt eins og þegar
allar flækjur sögunnar áttu að leysast í
díalektískri efnishyggju marxismans.
Auði Rússa eytt í fótboltalið í
Evrópu
En svo dagaði þetta uppi í skugga-
legu þjófræði í Rússlandi þar sem auði
heillar þjóðar var stolið - peningarnir
meðal annars notaðir til að gera út fót-
boltalið í Evrópu. Ráðgjafar Alþjóða-
bankans komu heilu ríkjunum á haus-
inn. Hinir veiku gátu ekki borið hönd
Egill Helgason
liggurlbókumur
kommúnismann, Sovétríkin
og annað skemmtiiegt
Laugardagskj allar i
fyrir höfuð sér. Heimildarmynd sem
heitir The Corporation var sýnd hér um
daginn og íjallaði um fýrirtækjasam-
steypur nútímans. Þar var meðal ann-
ars farið í verksmiðjur (e.sweatshops)
þriðja heimsins; stórfýrirtækið var sál-
greint og niðurstaðan var að það væri
sýkópati - gráðugt, siðlaust og ábyrgð-
arlaust. Tilraunir til að koma á amer-
íska bisnessmódelinu í Miðausturlönd-
um eru lfldegri til að enda í klerkastjórn
en Starbucks á hverju horni.
Teikn eru líka um að umhverfið í
heiminum þoli ekki að markaðshyggjan
sigri, að jörðin setji takmörk - segi ein-
faldlega stopp. Það er ekki til næg olía,
ekki nægt vatn, ekki nægar auðlindir.
Skógar eru á stöðugu undanhaldi, á
fimmtíu árum hefur dýrategundum
verið útrýmt eins og á milljón árum
áður, loftslagsbreytingar af manna
völdum virðast vera blákaldur veru-
leiki.
Blaðamenn sungu katastróf-
unni lof og prís
Framfaratrúin var líka leiðarljós
kommúnista þegar þeir eyðilögðu um-
hverfið - við það voru þeir álíka stór-
tækir og í manndrápunum. Þeir höfðu
að leiðarljósi blinda trú efnishyggju-
manna á að iðnvæðing væri leiðin til
hamingju, allt væri hægt að leysa með
verkfræði - rithöfundar voru kallaðir
„verkfræðingar sálarinnar" Þetta er
reyndar titillinn á bók sem ég las í sum-
ar, eftir Hollendinginn Frank Westerm-
an, og fjallar um hvernig ógnarstór
svæði í Mið-Asíu-lýðveldum Sovétríkj-
anna voru eyðilögð vegna þess að þar
átti að rækta bómull. Þessa vöru mátti
ekki flytja inn - verkamannaríkið átti að
vera sjálfu sér nógt um það. Grafnir
voru gríðarlegir skurðir og settar upp
áveitur. Afleiðingin var sú að náttúru-
legt vatnsflæði í Aralvatni og Kaspíahafi
eyðilagðist; nú gnauða þarna óblíðir
vindar af eyðimörkum og saltsléttum.
Þetta er ein mesta umhverfiskatastrófa
sögunnar. En á sínum tíma sungu
blaðamenn og rithöfundar þessu lof og
prís.
Engin slys í sósíalísku samfé-
lagi?
Framfarir kunna að vera óstöðvandi,
en þær fara oft í allt aðra átt en við
höldum - líka þótt þær séu byggðar á
einhverju sem tahð er vera vísindi.
Arthur Koestíer segir þá sögu af franska
rithöfundinum André Malraux að hann
hafi á fjórða áratug síðustu aldar setið á
ógnarlöngum fundi I Moskvu þar sem
kostir hins vísindalega sósíalisma voru
mærðir út í eitt. Nýr heimur var í burð-
arliðnum. Malraux leiddist þetta og
spurði af eðlislægri óþolinmæði: „En
hvað þá með manninn sem lendir und-
ir sporvagni?" Það sló felmtri á salinn
við þessa goðgá en svo kom rétthugs-
andi flokksfélagi til bjargar með því að
segja: „í fullkomnu sósíalísku sam-
göngukerfi verða engin slys."
Undanfaríð hefég veríð að lesa rit eftir breskan
heimspeking sem rekur tengslin milli þúsundárarík-
ishugsjóna og krístindóms. Hann álítur að þær séu
meira eða minna sprottnar úr kristninni - það sé
bara búið að setja guð út úr myndinni. Gray rekur
þetta í gegnum húmanisma nítjándu aldaryfír í
kommúnisma, nasisma - haldið ykkur fast - frjáls-
hyggju síðustu áratuga.
c