Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2004, Blaðsíða 9
DV Helgarblað
(hver er þinn daðurstíll?)
METSOLULISTI
EYMUNDSSON
lundhfkur
www.jpv.is
súperflört
dúndurdaöur
>W/*
( þúsundir ára hefur lækningamáttur
ALOE VERA plöntunnar, sem kölluð
hefúr verið drottning lækningajunanna,
verið þekktur. Blanda af þessari einstöku
jurt og fyrsta flokks mjólkurvörum er
hreinlega ómótstasðileg fyrir þá sem huga
vilja að heilsunni.
Jónína Bjartmarz Leita strax til iög-
reglu óttist fólk um lífsitt.
Bræður Jónínu
Bjartmarz eru
lögregluþjónar
Kæra og
aftur kæra
„Ef fólk hefur ástæðu til að
óttast um líf sitt og limi á það
strax að hafa samband við
lögreglu, fara fram á nálgun-
arbann og kæra,“ segir Jónína
Bjartmarz alþingismaður og
lögfræðingur.
Jónína, eins og aðrir, hefur
ekki farið varhluta af umræð-
unni um hættulega hand-
rukkara sem vaða uppi og
halda fjöida manns í heljar-
greipum óttans. Að auki er
Jónína vel að sér um málefni
lögreglunnar og vanda henn-
ar í málum sem þessum þar
sem tveir bræður hennar eru
velmetnir lögregluþjónar,
Óskar og Jón Bjartmarz.
„Það verður seint of brýnt
fyrir fólki að hika ekki við að
kæra. Því fleirí sem það gera,
því betra,“ segir Jónína sem
að öðru leyti vill ekki tjá sig
um Annþór Kristján Karlsson
og brotasögu hans. Hún, eins
og aðrir, verður að hugsa um
eigið öryggi.
Handrukkar-
ana fram í
dagsljósið
Þeir lesendur sem þekkja
til ofbeldismanna sem hóta
og berja til að innheimta kröf-
ur eða ná fram hefnd eru
beðnir um að senda DV upp-
lýsingar um reynslu af slíkum
ofbeldismönnum eða vit-
neskju um framferði þeirra.
Þeim sem gefa upplýsingar
um slíka ofbeldismenn er
heitið fullum trúnaði. DV
hefur opnað netfangið
handrukkarar@dv.is þangað
sem senda má upplýsingar.
Fyrir þær ábendingar sem
leiða til frétta verða þeim sem
þess óska greiddar 3000 eða
7000 krónur eftir vægi fréttar.
Þetta samsvarar því sem greitt
er fyrir fréttaskot.
Formaður Blaðamannafélags íslands
Hvetur blaðamenn til að hunsa hótanir
„Þetta er náttúrlega grafalvar-
legt mál. Það er beinlínis óþolan-
andi að blaðamenn verði fyrir
svona hótunum. Það er eitthvað
sem á ekki að líðast," segir Róbert
Marshall, formaður Blaðamanna-
félags íslands, um hótanir Ann-
þórs Kristjáns Karlssonar hand-
rukkara í garð blaðamanna DV.
„Það er nauðsynlegt fyrir
blaðamenn að láta þetta ekki hafa
áhrif á sig og sín störf, eins og
greinilega er þarna verið að gera,
heldur fá nálgunarbann og reyna
með öllum mögulegum hætti að
tryggja öryggi blaðamannanna,"
segir Róbert.
Að því er Róbert segir er það
þekkt að blaðamenn fái hótanir.
„Margir hafa til dæmis gripið til
þess ráðs að vera ekki í síma-
skránni. En sem betur fer hefur
það ekki verið til siðs að ráðast á
blaðamenn hér með ofbeldi."
Róbert segist hvetja blaða-
menn til að láta hótanir ekki á sig
fá. „Hvort sem það eru hótanir
um líkamsmeiðingar eða að
ákveðin skrif hafi áhrif á frama
viðkomandi blaðamanns,"
segir formaður Blaða-
mannafélags íslands.
Róbert Marshall „Það er beinlinis
óþolandi að blaðamenn verði fyrir
svona hótunum," segir formaður
Blaðamannafélags islands.
FEGURÐ ■ HREYSTI ■ HOLLUSTA