Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2004, Blaðsíða 63

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2004, Blaðsíða 63
DV Síðast en ekki síst LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 2004 6» Sævar Ciesielski býr og starfar í Kristianíu þar sem hann er aö skrifa bók um líf sitt á götunni í Reykjavík. Hann segir lögguna stöðugt áreita íbúana sem borgar- yfirvöld vilja smá saman bola úr grenum sínum. Sævar skrifar sögu sína á síðustu dögum Kristjaníu „Lögreglan er alltaf eitthvað að þvælast hérna, segir Sævar Ciesielski sem dvalið hefur hjá systur sinni í Kristjaníu í Kaup- mannahöfn síðustu tvo mánuði. „Það er mikil spenna hérna núna enda fótboltamót á morgun milli löggunar og íbúanna hér. Þetta er árlegur atburður. Þetta eru helvíti harðir strákar, engir venjulegir hasshausar," segir Sævar sem hefur varla séð eins mikla öryggisgæslu og nú er í Kristjaníu. „Þessir strákar er hluti kynslóð- ar sem er alinn hér upp og þekkir ekkert annað en lífið undir hass- skýinu. Ég held að þeir hafi yfir- leitt unnið lögguna á þessum fót- boltamótum," segir Sævar sem málar og skrifar í Kristjaníu sem hann segir alltaf vera að breytast. „Þetta er allt að breytast mikið hér, löggan hendir fólki daglega út úr húsnæði sem það hefur tekið yfir. Það er búið að loka Pusher- street, engir básar þar lengur þannig að sú starfsemi er öll kom- in neðanjarðar," segir Sævar. Hann hefur ekki setið auðum höndum í sumar, málað helling af málverkum og stefnir að því að opna sýningu í einu af fínu mynd- listargaUeríum Kaupmannahafn- ar, þegar líða fer að jólum. „Ég er líka að skrifa bók sem kemur von- andi út fyrir jól. Þetta eru svona sögur af þessu fólki sem ég hef umgengist síðustu ár. Það er mik- ið af furðulegum persónum sem ég hef kynnst á götunni í Reykja- vík. Margar athyglisverðar sögur sem ég og mínir samferðarmenn höfum upplifað," segir Sævar sem býr í löglegu húsnæði í Kristjaníu sem systir hans byggði fyrir mörg- um árum. „Löggan lætur okkur gamlingj- ana alveg í friði eins og fjölskyldu- fólkið sem hér býr. Það er aðallega unga liðið sem er með vandræði, býr í skemmum sem á að rífa og er að dópa í harðari efnum en leyfi- leg eru. Það voru 30 krakkar tekn- ir hér í síðustu viku, það voru heil- mikil læti í kringum það, segir Sævar sem ædar ekki að koma heim á næstunni. Hefur það gott í Danmörku þar sem hann ætíar að dveljast áfram þótt hans sakni götulífssins í Reykjavík. freyr@dv.is „Löggan lætur okkur gaml- ingjana alveg í friði eins og fjölskyldufólkið sem hér býr. Það er aðallega unga liðið sem er með vandræði, býr í skemmum sem á að rífa og er að dópa í harðari efnum en leyfileg eru." Fisksalinn fyrrverandi Ragnar Sigurjónsson dæmdur Ragnar flóttamaður dæmdur í fangelsi Ragnar Sigurjónsson fyrrver- andi fiskútflytjandi var í gær dæmdur í hálfs árs fangelsi í Hér- aðsdómi Reykjaness. Fjórir mán- uðir af þeim verða skilorðsbundn- ir þannig að Ragnar þarf bara að sitja inni í tvo mánuði. Því til frá- dráttar kemur gæsluvarðhald. Ragnar sveik nígeríska kaupsýslu- manninn Noel Chuckuvere, hirti af honum 70 þúsund dollara fyrir þurrkaðan fisk sem Chuckuvere fékk aldrei. Ragnar flúði réttar- höldin og var um skeið talinn lát- inn. Scotland Yard leitaði að hon- um og Chuckuvere var yfirheyrð- ur, grunaður um að hafa valdið dauða Ragnars. Ragnar hafði síðan samband við ættingja frá Tælandi þremur mánuðum eftir að hann hvarf í London. Ragnar var handtekinn fyrir hnupl í Bangkok í Tælandi í maí. Hann neitaði að segja til nafns og var í fangelsi í tvo mán- uði án þess að Tælensk yfirvöld vissu hver hann væri. Hann sagði að lokum til nafns og í framhald- inu sóttu lögreglumenn hann og fluttu til íslands. Hann sat um skeið í gæsluvarðhaldi en var síð- an settur í farbann. Ragnar Sigurjónsson Kemur til Is- lards eftir fímmdrí Tælandi í lögreglufylgd. Trúðu ekki á hreðjatak Tæplega þrítugur maður hefur verið dæmdur í 30 daga skilorðs- bundið fangelsi yfir að handleggs- bijóta annan mann á Fjörukránni í Hafnarfirði. Héraðsdómur Reykja- ness trúði ekki þeirri skýringu árás- armannsins að fórnarlambið hefði tekið hann hreðjartaki fýrir árásina. Vitni sögðu að hann hefði vippað fómarlambinu yfir öxlina á sér með áðumefndum afleiðingum. Menn- irnir em vinir og fóm saman á sjúkrahús eftir beinbrotið. Ágrein- ingur hafði komið upp á milli þeirra um rétta ffamkomu við konur. Illugi f einkavæðingu Illugi Gunnarsson, aðstoð- armaður Davíðs Oddssonar ut- anríkisráðherra, hefur verið skipaður í framkvæmdanefnd um einkavæðingu, svokallaða einkavæðingarnefnd. Illugi tekur þar sæti Ólafs Davíðs- sonar, fráfarandi ráðuneytis- stjóra í forsætis- ráðuneytinu, sem heldur utan til Berl- ínar þar sem hann hefur verið skip- aður sendi- herra. ÞAÐ ER STAÐREYND... ... AÐ ARIÐ 1457 REYNDI JAKOB 1.KON- UNGUR í SKOTLANDI AÐ BANNA GOLF- (ÞRÓTTINA í LANDI SÍNU VEGNA ÞESS AÐ HANN TALDI ÞEGN- ANA EYÐA ALLTOF MIKLUM TÍMA í ÞENNAN FÁNÝTA LEIK. VILDI HANN AÐ SKOTAR VERÐU TÍMA SÍNUM FREKAR í AÐ SKJÓTA AF BOGA, SEM AÐ GAGNI KOM í HERNAÐI, EÐA SINNA HESTUM. ALLT KOM FYRIR EKKI OG VINSÆLDIR GOLFSINS BREIDDUST ÚT. ÖLD SÍÐAR VARÐ MARÍA STÚART SKOTADROTTNING FYRST KVENNA TIL AÐ SPILA GOLF.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.