Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2004, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2004, Blaðsíða 32
-T'/0 í í* íl^>J £0 £ Við tökum iTl fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið íhverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar ^iafnleyndar er gætt. ,-j ^ fj 1-1 fj J^J fj SKAFTAHLÍÐ 24, 105 REYKJAVÍK [ STOFNAÐ 1910 ] SÍMl550 5000 • Kári Stefáns- son, forstjóri ís- lenskrar erfða- greiningar, mun ekki alls kostar sáttur við augnskanna sem gestir World Class í Laugum þurfa að komast í gegnum áður en haldið er til æfinga í stöðinni. Ástæðan mun vera sú að Kári neitar að hlýða reglum World Class sem kveða á um að allir handhafar korta skuli fara í gegnum fyrrnefndan augn- skanna þar sem Kári mun ekki vilja láta eigendur og starfsfólk Lauga höndla með persónu- upplýsingar sínar. Mun Kári óspar við að koma þeim sjónar- miðum á framfæri við starfsfólk Lauga að honum hugnist ekki . persónunjósnir stöðvarinnar... Skakkt númer! „Hann er harður af sér,“ segir Gunnar um ofurfroskinn Halldór. „Hann er nú ekkert voðalega sprækur, greyið, en sprelllifandi sarnt," segir Gunnar en Halldór froskur verður væntanlega fluttur á Náttúrufræðistofnun til rann- sóknar að sögn Gunnars. Aðspurður hvort starfsmenn hafi reynt að smella á Halldór frosk kossi, segir Gunnar það ekki hafa verið reynt ennþá. „Það má vel vera að einhver reyni það hérna, spurning hvort Halldór reynist þá vera prins- essa,“segir Gunnar og hlær. Gunnar og Halldór GunnarSæ- mundsson ásamt Halldóri froski sem er furðusprækur eftir tveggja og hálfr- ar viku sjóferö frá Italíu - matarlaus - innanum sturtuklefa og salerni. „Manni finnst nú bara magnað að hann skuli vera lifandi eftir alla þessa ferð,“ segir Gunnar Sæ- mundsson, starfsmaður Tengis í Kópavogi. Starfsmenn Tengis áttu sann- arlega ekki von á því að í vörugámi frá Italíu, sem opnaður var í gær, leyndist lítill froskur. Gunnar seg- ir starfsmennina þó hafa orðið enn meira hissa þegar í ljós kom að froskurinn litli var sprelllifandi eftir ferðalagið frá Ítalíu, sjóleið- ina. Slík ferð tekur að sögn Gunn- ars tvær og hálfa viku og því má furðu sæta að Halldór froskur, sem skírður var í höfuðið á lager- stjóra fyrirtækisins, skuli lifandi eftir sjóferðina í gámnum, sem var fullur af sturtuklefum og öðrum baðherbergistækjum - og fátt æti- legt þar að finna. A hleri hjá gömlum bónda „Ég er mjög ánægður með dóminn," segir Skafti Baldursson, bóndi á Tjörn á Hvolsvelli. Hann er 71 árs og lögregl- una á Blönduósi grunaði að hann, í samvinnu við annan mann, ræktaði kannabisefni á sveitabæ sínum. Því fékk lögreglan dómsúr- *■ skurð fyrir því að hún mætti hlera símtöl úr símanúmerum mann- anna. Þeim hafa verið nú dæmdar 50 þúsund króna skaðabætur hvor- um enda var engin réttmæt ástæða talin fyrir hlerununum. Símarnir voru hleraðir frá 28. febrúar til 20. mars árið 2003. Skafta var svo tilkynnt með bréfi frá lögregl- unni að hlerunum hefði verið hætt. Mönnum fannst símahleranirnar gróft brot á friðhelgi einkalífsins og höfðuðu skaðabótamál. í dómnum kemur fram að lögreglan á Blönduósi hafi af ein- hverjum ástæðum að- hyllst þá hugmynd að á undanförnum árum hefðu Skafti og félagi hans ræktað kannabisefni. í úrskurði Héraðs- dóms Norðurlands vestra segir að ótilgreindur heimildarmaður hafi fullyrt við lögreglu á grundvelli full- yrðinga ótilgreinds heimildarmanns þess heimildarmanns að svo væri. „Þetta voru bara sögusagnir," segir Lúðvík Kaaber, lögfræðingur Skafta. „Þetta er eldri borgari - bóndi sem lifir í friði á bænum sín- um.“ „ Fékk fokkmerki á Friday's „Ég var aðallega hissa en líka reið- _ ur," segir Amar S. Pálmarsson, bílasali á þrítugsaidri, sem gerði sér glaðan dag á veitingastaðnum TGI Friday’s á sunnudaginn. Gleðin var þó fljót að hverfa þegar Arnar fékk ekki alveg þá þjónustu sem hann bjóst við. „Já, hún var eitthvað pirruð, konan sem þjónaði okkur," segir Arnar. „Svo skyndilega sá ég að hún gaf okkur puttann eftir að hafa fært okkur tvo bjóra." Að gefa puttann er annað orða- samband yfir „fokkmerki" - alþjóðlegt tákn sem er notað til að lýsa yfir van- þóknun á ákveðnum persónum eða hlutum. í mörgum löndum þykir þetta hin versta formæling. Amari var eðlilega bmgðið. „Ég fór þarna á staðinn til að hitta tvo vini mína og kæmstur þeirra. Svo vantaði okkar að komast á reykborð þannig að við fórum á barinn til að reykja. Þessi þjónustustúlka virtist svo vera eitthvað pirruð og þegar stúlk- urnar sem sátu með okkur báðu um áfýllingu á kók gerðist eitthvað. Hún setú upp svip og gaf okkur svo þetta merki." Ævar Olsen, eigandi Friday’s, kom af ijöllum þegar DV hafði samband við hann. „Þetta er eitthvað sem ég þarf að grennslast fyrir um. Ef þetta er rétt mun ég sjálfur senda persónulegt afsökunarbréf og bjóða þessu góða fólki í máltíð hér á staðnum. Svona starfshætúr eiga ekki að líðast," segir Ævar. leCortioiriiES Appefilc Cortírol fardí | Fal Loss Support Fat Lcss Support Fc Sppott Diet-Tech Margir glíma við það vandamál að vera alltaf svangir þegar ætlunin er að reyna að grennast og borða hollar. Diet-Tech er nýtt og byltingarkennt efni sem inniheldur trefjar sem þenjast út í maganum og skapa þannig seddutilfinningu. Þú getur því staðið þig í mataræðinu án þess að vera að deyja úr hungri allan daginn. Hydroxycut Caffein Free Nú er komið koffeinlaust Hydroxycut fyrir alla þá sem vilja halda sig frá örvandi efnum eða vilja einfaldlega geta drukkið kaffi án þess að innbyrða of mikið koffein. Inniheldur öll sömu efnin og venjulegt Hydroxycut nema koffeinið. Hydroxycut Hydroxycut er búið að sanna sig sem gríðarlega öflugt fitubrennsluefni og ekki að ástæðulausu að það er langmest selda brennsluefnið í verslunum okkar. Það einfaldlega virkar! w FITNESS SPORT HAGKAUP Altt sem þú þarft! LA^/GAR oq FAXAFENI að verflo' Siml S44 5554 Siml 544 5555 t

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.