Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2004, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2004, Blaðsíða 29
DV Fókus ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER2004 29 Leikarinn Christopher Reeve lést á sunndagskvöldið 52 ára að aldri. Leikarinn sló Stjörnuspá eftirminnilega i gegn sem Súperman árið 1978. Reeve, sem var lamaður frá hálsi eftir að hafa dottið af hestbaki árið 1995, lést af völdum hjartaáfalls. Hann hafði snúið aft- ur í kvikmyndabransann auk þess að vera talsmaður lamaðra. ,ann Reeve var til-1 lóþekkturáðuren P gldi I hlutverk ofur- r iar en stjarna hans \ tárið 1978þegar úlkaði Súperman i | ikiptið.Framleið- myndarinnar vildu ndlit og laist straxvel ,es emvarvelvaxinn , teiknimyndahetjam . The Worst Vogin0.se/)f.-2i.o*f.j Vogin er mjög tilfinninganæm á þessum árstíma. Hlustaðu betur, vertu þolinmóðari og hættu að taka á þig ábyrgð á mistökum sem þú hefur jafnvel upplifað í samböndum fortíðar. - Þegar hjarta þitt opnast og er ekki bundið neinu framkvæmir þú án erfiðis, kæra vog. Stjórnaðu tilfinningagáttum þínum algerlega meðvitað. 111 Sporðdrekinn (24.okt.-21.n0v.) Upplifðu áhyggjuleysi og unað samhliða breytingum sem birtast þér fyrir vikulok kæri sporðdreki. Hér birtist eld- heitt, hávaðasamt og ástriðufullt samband tveggja öflugra einstaklinga (þú ert án efa annar þeirra) sem hika ekki við að beita viljastyrkog hagræðingu öllum stundum. Bogmaðurinn(22.n*.-2/.tej ^4. -------------------------------- Þú hneykslast ekki og leyfir ná- unganum að móta eigin skoðanir sem er góður kostur í fari þínu kæri bogmaður. Júpíter stýrir þér og sýnir að innra með þér ríkir ávallt bjartsýni, sjálfstæði og léttleiki. y Steingeitin p;.fc-;9./an.j ^ Þessa dagana ættir þú að stjórna athöfnum þínum af mikilli ná- kvæmni ef þú ert fædd/ur undir stjörnu steingeitar. Að sama skapi birtist þú eftir- gefanleg/ur og það reynir eflaust virki- lega á þig á tilfinningasviðinu. SPÁM AÐUR.IS Hanna Birna Kristjánsdóttir stjórnmála- fræðingur er 38 ára í dag. „Af einhverj- um ástæðum kemur fram að hún er sér- staklega glæsileg sama í hvaða ástandi hún er. Hún er vinur í raun, sáttasemjari (öllum ágreiningi og mjög aðdáunarverður elskhugi. Hátíðahöld eru framund- j an (sigurtákn birtist) þar ! sem fjölskylda hennar og í félagar koma saman og fagna með henni í góðu yfirlæti," segir í stjörnuspá hennar. Hanna Birna Kristjánsdóttir Leikarinn Christopher Reeve lést á sunnudagskvöldið 52 ára að aldri. Reeve var þekktastur fyrir hlutverk sitt sem ein allra þekktasta ofur- hetja heimsins, Súperman. Hann féll í dá eftir að hafa feng- ið hjartaáfall um helgina og lést seint á sunnudagskvöldið. Lamaður frá hálsi Leikarinn var lamaður frá hálsi og niður og átti erfitt með að tjá sig eftir að hafa fallið af hestbaki í maí 1995. Eftir slysið varð Christopher talsmaður rannsókna mænuskaddaðra. Hann hafði eytt síðustu vikunum á sjúkrahúsi vegna legusárs sem er al- gengur fylgifiskur lömunnar. „Fyrir hönd allrar fjölskyldunnar vil ég þakka þeim fjölda lækna og hjúkr- unarfræðinga sem og milljónum að- dáenda um heim allan fyrir stuðning þeirra og ást í garð eiginmanns míns,“ sagði Dana eiginkona hans eftir andlátið. Reeve var tiltölulega óþekktur áður en hann nældi í hlutverk ofur- hetjunnar en stjarna hans reis hátt árið 1978 þegar hann túlkaði Súper- man í fyrsta skiptið. Framleiðendur myndarinnar vildu nýtt andlit og Christopher Reeve Samkvæmt lækni gat Reeve hreyft nokkra fíngur og nokkrar tær. Hann gat einnig fundið muninn á heitu og köldu og oddhvössum og rúnnuðum hlut- um. Um tima taldi læknirhans jafnvel mögulegt aðhann myndi geta gengið aftur. leist strax vel á Reeve enda var hann vel vaxinn lfkt og teiknimyndahetj- an. Segja má að Reeve hafi orðið heimsfrægur á einni nóttu og pen- ingamir fóru að streyma inn. Mikill baráttumaður Reeve hafði mikil áhrif á baráttu lamaðra fyrir betri kjörum og fékk gesti Óskarsverðlaunahátíðarinnar til að tárast er hann óskaði þess að fleiri kvikmyndir um félagsleg vandamál yrðu gerðar. „Hollywood þarfn- ast áskor- unar. Höld- um áfram að taka áhættu. Kvikmynda- heimurinn er eins góður vettvangur fyrir baráttuna og aðrir. Ef ekki betri.“ Missti aldrei vonina Reeve lét ekki deigan síga og snéri aftur í bransann bæði sem leikari og leikstjóri. Samkvæmt lækni gat hann hreyft nokkra fingur og nokkrar tær. Hann gat einnig fundið muninn á heitu og köldu og oddhvössum og rúnnuð- um hlutum. Á tíma taldi læknirinn hans jafnvel mögulegt að hann myndi einhvern tíma fá nægilegan mátt í fæt- urna til að ganga aftur. Reeve sagði sjálfur að það mikilvæg- asta fyrir hann væri að geta fundið fyrir faðmlögum eigin- konu sinnar og barna. Margir stórlaxar í Hollywood hafa sent frá sér fréttatilkynningar til að heiðra minningu leikarans. „Andláti þess- arar hetju fylgir mikil sorg. Það fyrsta sem kemur í hugann eru per- sónutöfrar Christophers. Hann var frábær hasarmyndaleikari. Það var okkur öllum áfall að sjá leikarann sem túlkaði Súperman, svo ógleym- anlega, lamaðan í hjólastól og nán- ast mállausan en við trúðum öll að hann myndi ná sér en nú er sú von farin," sagði leikstjórinn Michael Winner. Krabbinng2./úri-22./iiw________ Þú ættir fyrir alla muni að huga vel að tilfinningum þínum frekar en köldu raunsæi sem birtist samhliða stjörnu krabbans. Leyfðu hjarta þínu að stjórna ferðinni. LjÓniðfJJ .júli-22. ágúst) Þegar völd eru annars vegar kýs Ijónið að standa fremst í flokki og finnst það ráða við hvaða starf sem er með sitt mikla og háa sjálfsmat í farteskinu. Meyjan (23. ágúst-22. septj Hér birtist meyjan vernduð og elskuð eins og hún hefur lengi þráð, jafn- vel allt frá bernsku. W Vatnsberinn (20./an.-is./eár.j VV ----------------------------------- Þú ættir að hrinda af stað um- breytingum á orku og upplýsingum með réttu hugarfari. Nýr kafli bíður þín ef marka má stjörnu þína. W Fiskarnir(/!i. febr.-20. mars) ' ' Heimur fiska er samfellt ævin- týri og trú þeirra á sanna ást mun ávallt vera til staðar. Þú kýst að láta hlúa að þér því á þessum árstíma þarfnast þú ómældrar alúðar og hlýju og ert svo sannarlega fær um að opna faðm þinn og hjartastöðvar óttalaus þegar ástin er ann- ars vegar. Hrúturinn (21. mars-19. a Umhverfi þitt einkennist af hlýju, mýkt, tilfinningalegu jafnvægi, að- lögunarhæfni og ekki síður góðum stundum ef þú tilheyrir stjörnu hrútsins. Hins vegar hafa síðustu dagar einkennst af gagnkvæmri ogjafnvel óskiljanlegri aðdáun milli þín og félaga eða elskhuga þíns. Nautið (20. april-20. mai) Nautið er mjög meðvitað og rómantískt þegar ástin er annars vegar þessa dagana. Þú ert án efa afkasta- mikil/l þessa dagana og vikurnar framundan og vissulega fær um að skilja og hlúa að eigin væntingum varðandi dýpstu drauma og þrár. nTvíburarnir (2/. mo/-2;./ú/)0 Hér birtist þú efnislega þenkj- andi en átt það hinsvegar til að gleyma fjármálahlið heimilisins. Þú lifir á einhvern máta í einhverskonar draumaheimi mið- að við stjörnu þína og ættir að leyfa manneskjunni sem þú elskar innilega að kynnast hugarórum þínum og þrám. Aronnd the Sun er þrettánda breiðskífa R.E.M. og sú þriðja eftir að trommuleikarinn Bill Berry ákvað að yfirgefa sveitina árið 1997 og hefja búskap. Þegar Berry hætti var Michael Stipe, söngvari sveitarinnar, spurður að því hvort sveitinni væri stætt á því að halda áfram án Berry og svaraði Stipe að hundur með þrjá fætur væri ennþá hundur. Miðað við frammistöðu þeirra félaga, Mike Mills, Michaels Stipe og Peters Buck, á þessari plötu þá er þessi hundur á þremur fótum í besta falli haltur en í R.E.M. Around The Surt Warner Bros./Skífan ★ Tónlist versta falli á leiðinni að vera lógað. Það verður að segjast eins og er að þessi gripur gerði afskaplega lítið fyrir mig. Fyrsta lagið, Leaving New York, er reyndar afbragðsgott, en eftir það taka við tólf lög sem eru hvert öðru leiðinlegra. TUfinningin sem hefur einkennt söng Michaels Stipe á fyrri plötum sveitarinnar er víðsfjarri, lagasmíðamar eru mátt- lausar og langt úr takti við það sem þessir menn hafa sent frá sér áður og það verður bara að segjast eins og er að semúlega hefði diskurinn átt að heita eftir eUefta lagi disksins, The Worst Joke ever. „Give me a minute and I’U teU the setup for the worst joke ever,“ segir Stipe í laginu og hann gæti þess vegna átt við plötuna sem hann var að skila af sér ásamt félögum sfnum. Hún er svo hlægUega léleg og langt undir þeim gæðum sem þessir menn hafa vanið aðdáendur sínar á í gegnum tíðina. Það sýndi sig hins vegar á síðustu plötu R.E.M, Reveal, aö þeim er farið að förlast og því miður heldur þróunin hér áfram. Ég ætla bara rétt að vona að þessir ágætu herramenn taki sig saman í andlitinu þegar kemur að útgáfu næstu plötu - annars geta þeir pakkað saman. Peter Buck talaði um að þeir legðu ferilinn að veði með þessari plötu - ég myndi skjóta mig ef ég væri í þeirra sporum. Óskar Þorvaldsson Joke Ever - ég er hræddur um það %

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.