Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2004, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2004, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 2004 Fyrst og fremst DV Útgáfufélag: Frétt ehf. Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson Ritstjórar lllugi Jökulsson Mikael Torfason Fréttastjóran ReynirTraustason Kristján Guy Burgess DV: Skaftahlíð 24, Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 515 7599 - Ritstjórn: 550 5020 - Fréttaskot 550 5090 Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsing- an auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Setnlng og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: ísafoldarprentsmiðja DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagna- bönkum án endurgjalds. Hvað veist þú um Moltu 1 í hvaða hafl ér Malta? 2 Hvað eru íbúarnir margir? 3 Hvað heitir höfuðborgin? 4 Hversu stór er Malta, mið- að við einhverja stærð á íslandi? 5 Hverjir fóru með stjórn á Möltu 1814-1964? Svör neðst á síðunni Búdda á netinu Ef mann langar að fræðast um Búdda á net- inu birtast tæplega 3 millj- ónir netsíða. Ágætur inn- gangur að búddískum Vefsíðan www.buddhanet.net fræðum er buddhanet.net. Þar er að finna margvíslegan fróðleik um Búdda og slóðir í allar áttir. Síðan lít- ur þó svo- lítið út eins og heimasíða stórmarkað- ar, enda margt hægt að kaupa þarna. Upplestur úr fræðum Búdda stendur líka til boða þeim sem hafa réttu forritin. Successful Blaöamenn þurfa iöulega aö þýða texta úr erlendum tungumálum og lenda þá stundum í þvl aö orðið sem þýöa þarf á sér enga nákvæma samsvörun á Islensku. Svo er til dæmis um enska oröiö„successfui". Þaö þýðir að hafa náð góö- um árangri en eitt íslenskt lýsingarorð er varla tilyfir merkinguna, aö minnsta kosti ekki þegar sagt er sem svo:„He/she is successfut!" Nú leitum við tillesenda meö að finna gott orð I staðinn fyrir „successfuT'. Það má vera gamalt orð eða nýsmlði, hvernig sem menn vilja. Sendið tölvubréfá ritstjorn@dv.is merkt„Orðaleit“ eða bréfá skrifstofu DV með sömu merkingu. Þyki málvísum mönnum á DV einhver uppástungan mun betri en aðrar mun viökomandi fá orðabók I verðlaun. Málið 1. Miðjaröarhafi - 2.396 þúsund - 3. Val- ® letta - 4. Alls 316 ferkílómetrar. Umdaemi -* Lögreglustjórans í Reykjavík nær yfir r- Reykjavík, Kjalarnes, Kjós, Mosfellsbæ, Sel- tjarnarnes og er 472 ferkllómetrar eða þriðjungi stærra en Malta - 5. Bretar Engan þjóðernisflokk, takk! Kannski á maður ekki að skrifa leiðara á móti fólki sem er að segja sínar skoðanir í nákvæm- lega sama eintaki blaðsins, það er að segja þessu hér. Kannski væri eitthvað kurteislegra við að bíða að minnsta kosti fram til morgundagsins. En mér er alveg sama. Ég ætla að gera það samt. Því mér blöskra þau ummæli Ásgeirs Hannesar Eiríkssonar veitingamanns, sem DV vitnar til í dag, að hann hyggist stofna stjórnmálaflokk til að berjast gegn útlendingum á íslandi. Á dauða mínum átti ég von en ekki því. Útlendingum hefúr fjölgað mikið á íslandi á undanförnum tveimur árum. Því hafa að sjálfsögðu fylgt ýmis vanda- mál eins og vandamál fylgja alltaf öllum þjóðfélagsbreytingum. Margir útíend- ingar hafa orðið hér fyrir kynþáttafor- dómum og sumir af alvarlegra taginu. Ég hef ekki reynt þá fordóma á eigin skinni og veit því ekki hversu sárt kann undan að svíða, en ég er þó þeirrar skoðunar að í raun megum við íslend- ingar kallast heppnir og meira að segja bara nokkuð góðir yfir því hversu kynþáttafordómar hafa þó verið litíir. Því fordómar stafa af ótta og áhyggj- um af hinu óþekkta og í þúsund ár bjó hér meira og minna eins- leit þjóð sem á 19. og 20. öld tók að efla sér sjálfstraust með því að telja sér trú um að hún væri stórmerki- leg og nærri ein- stæð f þjóðanna rás. Land, þjóð og tunga, þrenning sönn og ein. Með tilliti tii þess hvernig alið var á þjóðernisrómantík á íslandi þykir mér sem iandsmenn hafi f heild tekið útíendingum furðu vel. Og það síðasta sem við þurfum á að halda sé að menn fari að ala upp kynþáttafordóma með hugmyndum um að stofna stjórn- máiahreyfingar beim til höfuðs. Jafnvel þó það sé bara Ásgeir Hannes sem þetta boðar. Illugi Jökulsson I NEFNDINA A AÐ SKIPA tvo fulltnia stjórnarflokkanna, tvo fulltrúa stjórnarandstöðunnar og oddamað- ur og formaður verða skipaðir af menntamálaráðherra. í reynd hefði verið heppilegra að hafa nefhdina stærri, svo mikilvægt sem það er að ná einhverri samstöðu um málið. Það er til dæmis fráleitt að hafa ekki fulltrúa Blaðamannafélags íslands í nefndinni, og fleiri hagsmunaaðila. EN FYRST AKVEÐIÐ VAR að hafa nefndina bara með fulltrúum þing- flokkanna, þá blasir að minnsta kosti við að það er hið argasta órétt- læti að ekki nema tveir stjórnarand- stöðuflokkar munu fá þar fulltrúa, sem væntanlega endar með að Frjálslyndi flokkurinn fær engan. Fyrst og fremst Og eins og segir í lagi hljómsveit- arinnar Rass: „Óréttlæti er óréttlátt" og synd að Þorgerður Katrín skuli fara af stað með nefndina sína með þessum hætti. EÐA EINS 0G M0GGINN orðar það í leiðaranum, eftir að hafa rakið svör Þorgerðar Katrínar um hvers vegna nefndin sé þannig skipuð: „Þetta eru ekki viðunandi svör. Úrþvíá annað borð erlagt upp með að skapa þverpólitíska samstöðu um þetta mál, sem er nauðsynlegt og æskilegt íljósi forsögunnar, eru eng- in rök fyrir því að kreíjast þess, að þrír ólúdr stjómarandstöðuflokkar komi sér saman um tvo fulltrúa í nefndina. Hið eðlilega er að þeir eigi þar allir fulltrúa og ekkert vandamál fyrir ríkisstjórnarílokkana að bæta þá einum við sín megin frá. ÞAÐ ER ASTÆÐULAUST að hefja nýj- an feril íþessu máli með misklíð af þessu tagi. Vonandi áttar ríkisstjórn- in sig á því og gengur þannig frá þessari nefndarskipan að fulltrúar allra stjórnarandstöðuflokka eigiþar sína fulltrúa og þar á meðal Frjáls- lyndi flokkurinn. “ HEYR, HEYR! segjum við nú bara. Ef við munum rétt sagði Þorgerður Katrín einhvers staðar eitthvað á þá leið að ákveðið hefði verið að hafa nefndina lida vegna þess að litlar nefndir væru „skilvirkari" en stórar, VIÐ ERUM AÐ VERÐA eins og berg- mál af Mogganum! Hvað á það að þýða? í annað sinn á örsuttum tíma hljótum við að vitna hér með mikilli velþóknun til ritstjórnarskrifa í Morgunblaðinu og gera þau að okkar. í ÞETTA SINN vekja hrifningu okkar orð í leiðara sem beint er til Þorgerð- ar Katrínar Gunnarsdóttur mennta- málaráðherra í tilefni af þeirri nýju nefnd sem hún hefur ákveðið að skipa um málefni fjölmiðla. Við skiljum reyndar varla í því að Þor- gerður Katrín skuli hafa talið þörf á nýrri nefnd, þvílíkt lof og prís sem fýrri nefndin hans Davíðs Þórs Björgvinssonar og félaga fékk fyrir sín störf. En látum það liggja milli hluta. Og eins og segir í lagi hljómsveitar- innar Rass: syndad raraaf ina sína ao auka sklMrkni... Úár- lögunum 2005 Karfarskornir niður Hafrannsóknarstofnunin fær næstum 6 milljónum króna lægra framlag á fjárlögum næsta árs en í ár. Inni í þeim tölum er tekið fram í frumvarpinu að sér- stakt 9 milljón króna framlag fellur niður. Það var rannsóknar- framlag sem átti að nýta til að kanna skyldleika úthafs- og djúphafskarfa. eins og hún komst að orði. En hún ætti nú reyndar að vita, eftir arga- þras sumarsins, að í þessu máli er það ekki „skilvirkni“ sem skiptir mestu máli. Ef það þarf að taka ögn lengri tíma en ella að ná sátt um málið með því að hafa nefndina stærri, þá verður bara svo að vera. Þetta mál er þannig vaxið. 0G ÞÓTT SKILVIRKNI SÉ GÓÐ þá er hún alltaf það sem á að ráða ferð- inni. Því ef skilvirknin ein skiptir máli er best að einhver einn maður ráði þessu bara. Þannig hefur það reyndar verið í ótrúlega mörgum málum nú um langt skeið en við vonum að Þorgerður Katrín ætli ekki að fara að taka sér slík vinnubrögð til fyrirmyndar. . Alþingis Fækka þingmönnum um 28. Þá standa eftir tveir þingmenn fyrir stjórnar- andstöðuflokkana (og Kristin H.) og þeim ætti ekki aö verða skotskuld úr því að sameinast um þessa tvo fulltrúa. ... rikisstjórnarinnar Fækka ráðherrum um 10. Þá standa eftir Halldór og Davíð og þeim ætti ekki að verða skotaskuld úr því að ná saman - hér eftir sem hingaö til. ... Hæstaréttar Fækka dómurum um sjö. Þá standa eftir Ólafur frændi og Jón Steinar og þeim ætti ekki að verða skotaskuld úr því að sjá um þetta. ... fjölmiðlanna Leggja niður Fréttablaðið, DV og reyndar öll blöð önn- ur en Moggann (og náttúr- lega Viðskiptablaðið). Styrmi og strákunum ætti ekki að verða skotaskuld úr þvl að sjá okkur fyrir þeim fréttum sem við þurfum. ... bókaútgáfu Leggja niður allar bókaútgáfur aðrar en Bókaútgáfu rlkisins (nema leyfa Páli Braga að dunda sér áfram með Almenna bókafé- lagið; það er svo fallegt nafn). Að öðru leyti ætti Ólafi Teiti, Júlla Hafstein og strákunum ekki að verða skotaskuldúr þvl að gefa út þærbækur sem við þurf- ðlll W S ® B Í1 1 B 5 B@m §8kí

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.