Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1911, Side 45
herkostnað þar að auki. Frekastir voru Rússar í
kröfum. Þeir vildu hvorki meira né minna en sneið
af ríkinu að norðan, alla Mandsjúríu, til þess að geta
núð til íslausra hafna við Kyrrahafið. En einnig
þeirri kröfu tókst Li-Hung-Tschang aö afstýra, þó
svo, að Rússar fengu leyfi til járnbrautarlagningar
uni landið og máttu fara um það með herdeildir, og
cinnig fengu þeir umráð yfir herskiþahöfninni Port
Arthur. Auðvitað ætluðu Rússar sér að setjast að í
þessum löndum fyrir fult og alt, og varð það orsök-
in til ófriðarins milli þeirra og Japana nokkrum ár-
um seinna.*
Friðarskilmálarnir voru undirskrifaðir í Peking
7. sept. 1901. Tveim mánuðum síðar andaðist Li-
Hung-Tschang, 78 ára að aldri. — Sonur hans, Li-
Tshing-Fang að nafni, hefir um tíma verið sendiherra
Iíínaveldis í Lundúnum.
Auðvitað eigum við Norðurálfumenn erfitt með
að gera okkur greinilega hugmynd um Li-Hung-
Tscliang sem mann. Par skilur svo margt á milli,
bæði vegna fjarlægðar landanna og fjarlægðar í trú,
siðmenningu og hugsunarhætti. Þeir, sem bezt hafa
reynt að kynna sér líf hans og starf, segja það um
hann, að hann hafi verið allra Kínverja kinverskast-
ur — óskabarn þjóðar sinnar, og borið einkenni
hennar í öllum greinum. Og þessa þjóð elskaði hann
og helgaði henni alla krafta sína. Pó fór því fjarri,
að hann sæi ekki það, sem henni var áfátt, og alt
starf hans laut að umbótum á því, — laut að því, að
hefja þessa meginþjóð á hærra menningarstig oggera
hana færa um að mæta óvinum sínum á hösluðum
velli í hverju sem væri. Heima í landi sinu var
hann langt á undan samtíð sinni og enn halda hug-
sjónir lians áfram að ryðja sér til rúms, þótt hann
* Eftir þessa friðarsamninga voru gefin út lög i öllum ríkj-
um Norðurálfunnar — einnig á Islandi —, sem bönnuðu innflutn-
ing vopna til Kina.
(35)