Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1911, Page 64
Það hefir þótt miklum tiðindum sæta, að á þessu
ári hafa menn komist nær báðum heimskautunurn
en nokkurn tíma áður. Shakleton átti aðeins 25 mílur
ófarnar að suðurheimskautinu, en Peary kveðst hafa
náð norðurheimskautinu. Cook sá, er einnig þóttist
liafa fundið norðurskautið á undan Peary, hefir ekki
getað sannað sögu sína, og fer huldu höfði.
Mikla eftirtekt hafa herskipabyggingar Englend-
inga og Pjóðverja vakið á árinu. Pær þjóðir hafa
kept hvor við aðra að byggja fleiri og meiri herskip-
Var um einn tíma talið líta ófriðlega út á milli
þeirra, þó að ekkert yrði af ófriði.
Hér fara á eftir nokkrir dagsettir atburðir:
Jan. 9. Austurríki býður Tyrkjum 45 miljónir króna
fyrir Bossníu og Herzegovinu, sem innlimaðar voru
í Austurríki. Tilboðið þegið.
— 13. Jarðskjálftar á Norður-ítaliu.
— 16. Sven Hedin fagnað í Stokkhólmi eftir heim-
komu hans úr ferð um fjöllin í Tibet. — S. d. Járn-
brautarslys nálægt Denver í Bandarikjunum, 21
maður ferst og 40 særast.
— 20. Skip ferst á Michiganvatninu í Ameríku. 50
menn bíða bana.
— 23. Jarðskjálfta verður vart í Bombay, Smyrna
og höfðanýlendu. — S. d. Tvö fólksflutningaskip,
»Florida« og »Bepublic« rekast á í þoku á Atlants-
hafi. Þráðlaust skeyti kallar skipið »Baltic« til
hjálpar. Öllum farþegum beggja skipanna, 1700
manns, bjargað. En »Bepublic« sekkur.
— 27. Pýskalandskeisari fimtugur.
Febr. 1. Sættir takast milli Tyrklands og Bulgaríu.
— 8. og næstu daga er Englandskonungur i heim-
sókn í Berlín.
— 9. Samningur Frakka og Pjóðverja um Marokko
undirskrifaður i Berlín.
10. Jarðskjálftar á Suður-Ítalíu.
— 16. 101,000 manns taldir atvinnulausir í Berlín. —
(54)