Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2004, Síða 11
DV Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 2004 11
Áttræð í bikim
Jerry Hall hefur gefið þá
yfirlýsingu að hún muni
halda áfram að klæð-
ast bikim', jafnvel á
áttræðisaldrinum.
Þessi fyrrum eigin-
kona Mick Jagger segir
í samtali við Daily
Mirror að hún muni
halda áfram sem
módel svo lengi sem hún fái
borgað fyrir það. Hún hefur
þó þurft að endurskoða
ýmsan klæðnað sökum ald-
urs. „Ég verð að klæðast að-
eins látlausari fötum,“ segir
hún. „En ég hef ennþá frá-
bæra fótleggi svo pínupils
eru í lagi. Eg mun halda
áfram að klæðast bikini þar
til ég verð áttræð." Jerry ætl-
ar sér að eldast virðulega,
opinberlega, en óvirðulega í
einkah'finu.
Óeírðir er
dýrlingurinn
dó ekki
Miklar óeirðir brutust
út meðal áhangenda
Hindu-dýrlings í austur-
hluta Indlands þegar
hann dó ekki á réttum
tíma. Yfir 15 þúsund
manns mættu til að
fylgjast með boðuðu
ferðalagi dýrlingsins til
himna. Hann hafði sagst
myndu ná ‘ichha mri-
tyu“ eða dauða með eig-
in vilja. Þegar dýrlingn-
um mistókst ætlunar-
verk sitt þrátt fyrir íhug-
un og miklar bænir urðu
áhangendumir ævareið-
ir. Átti lögreglan í fullu
fangi við að hafa stjóm á
lýðnum. Ekki fylgir sög-
unni hvort dýrlingurinn
ætlar að reyna við ‘ichha
mrityu" á nýjan leik.
Slegist um
e-mail nöfn
Uppboðið er hafið á
eBay og óhætt að segja að
slegist sé um bestu
bitana. Um er að
ræða uppboð Micro-
soft á ýmsum gæða e-
mail nöfnum en
hagnaðurinn af sölu
þeirra fer til góðgerð-
armála. James-
bond@hotmail.co.uk er
þegar komið í 1.500 pund,
Darthvadar er komið í 51
pund og prinsessa í 61
pund. Að sögn breska
blaðsins The Sun em átta
konur nú að slást um e-
mailið bridgetjones og stóð
hæsta boð í 27 pundum
eftir 36 tíma baráttu.
Með Björn og buxurnar á hælunum
Mér finnst gaman að strauja. Það
er róar hugann. Ég var að strauja í
gær. Þar sem ég stóð á nærbuxun-
um í stofunni heima hjá mér og
straujaði buxurnar mínar, læddist
Teitur Atlason
var að strauja heima
hjá sér og hlustaði á
útvarpið á meöan.
að mér hrollvekjandi hugsun. Út-
varpið var að segja frá hugmynd-
um Björns Bjarnasonar um stofti-
um leynilögreglu á íslandi. Sérstök
stofnum sem fylgist með fólki.
Þetta hemaðar-leynilögreglu-eftir-
Uts-hlemnar raup í Birni hefur
löngum farið í taugarnar á mér (og
fleirum). En hlemnar- og eftirlits-
raupið í Birni hefur aldrei farið
neitt lengra en það. f versta falli hef
ég vorkennt kallinum að U'ða svona
Ula. En í gær læddist að mér hroU-
ur, ekki vegna þess að ég var
buxnalaus, og stóð á nærbuxunum
í stofunni heima hjá mér, heldur
vegna þess að ég hugsaði; Svona
byrjar þetta! Svona læðist fasismi
inn í samfélagið. Hann byrjar sem
saklaust raup sem hægt er að hrista
hausinn yfir, en getur endað í
stjórnlausum hryUingi. í besta faUi
endar það í aðeins verra samfélagi.
Fasismi nær að skjóta rótum í sam-
félaginu okkar þegar okkur stendur
á sama um það. Þegar við hættum
að veita viðnám ógeðfeUdu raupi í
óvönduðu fóUd.
Ef einhver
hefði sagt mér
fyrir fimm
árum síðan að
Jón Steinar
væri orðin
hæstaréttardómari og að rflds-
stjórn íslands, nei afsakið Davíð
Oddson, hefði sett landið á furðu-
lega samsettan lista þeirra sem
styðja viðbjóðslegt stríð Bandarík-
janna um olíu þá hefði ég sagt við-
komandi að gleyma ekki að taka
töflurnar sínar.
í nýrri leynilegri skýrslu sem sérfræðingar Tony Blair hafa útbúið fyrir Downing-
street 10 kemur fram að fíkniefnastríðið sé tapað. Þrátt fyrir 130 ára baráttu Vest-
urlanda og milljarða á milljarða ofan punda sem eytt hefur verið gegn fíkniefnum
er nú hægt að fá hreinni og ódýrari heróín, kókaín og amfetamín á mun einfaldari
hátt en áður
f nýrri leynilegri skýrslu sem hópur sérfræðinga á vegum breska
forsætisráðuneytisins hefur tekið saman fyrir Tony Blair kemur
fram að hertar aðgerðir gegn fíkniefnavandanum muni ekki
Breska blaðið Daily Mirror segir í
ítarlegri úttekt um málið að fíkni-
efnastríðið sé tapað. Þrátt fyrir 130
ára baráttu Vesturlanda og milljarða
á milljarða ofan punda sem eytt hef-
ur verið í baráttunni gegn fíkniefhum
er nú hægt að fá hreinni og ódýrari
heróín, kókaín og amfetamín eftir
einfaldari leiðum en áður.
Harðari dómar til einskis
í niðurstöðu hópsins, sem geng-
ur undir nafninu The Strategy Unit,
kemur meðal annars fram að harð-
ari dómar og fangelsisvist muni ekki
hafa nein áhrif á fíkniefnasöluna.
Raunar aðeins gera vandamálið
verra hvað glæpi tengda henni varð-
ar. Ef ráðist er á götusalana hefur
slíkt aðeins í för með sér að verðið á
fíkniefnunum hæltkar og þar með
aukast glæpir þeirra sem verða að
stunda þá til að eiga fyrir dýrari
fíkniefnum.
Mirror heldur því fram að Tony
Blair muni ekki taka mark á þessum
niðurstöðum The Strategy Unit og
muni í dag flytja ræðu þar sem hann
boði hertar aðgerðir gegn fíkniefn-
um sem eitt af fykilatriðum í næstu
kosningabaráttu sinni.
Lögleiðing fíkniefna
Mirror eftidi til skoðannakönn-
unar um máhð meðal lesenda sinna
og í ljós kom að nærri tveir þriðju
þeirra telja að lögleiða eigi fíknieftii
og að sölu þeirra skuli vera stjórnað
af yfirvöldum og að læknar og lyfsal-
ar eigi að geta ávísað á þau.
Könnunin leiddi einnig í ljós að
76% aðspurðra telji að Blair hafi tap-
að fíkniefriastríðinu. Og 95% telja að
bregðast eigi við fíkniefnaneyslu á
annan hátt en með sektum og dóm-
um. Aðeins 15% vildu herða viður-
lög við fíkniefnaneyslu.
Nokkrar staðreyndir
Blaðið birtir nokkrar staðreyndir
um fíkniefnavandann í Bretlandi og
víðar. Fram kemur að 42% af 11 til 15
ára börnum í Bretlandi var boðið
fíkniefrii í fyrra. 55% af innbrotsþjóf-
um eru með hörð fíkniefni í blóði
sínu þegar þeir nást.
80 milljón Bandaríkjamanna
segjast hafa notað fíkniefni ein-
hvern tíma á ævinni. Yfir fjórar
milljónir hassreykingamanna voru
handteknir í tíð Bill Clinton. Og í
Bandaríkjunum afplánar nú um
hálf milljón manna dóma vegna
fíkniefnaneyslu en það er meira en
nemur öllum föngum í Vestur-Evr-
ópu.
Velta á við olíusöluna
Sameinuðu þjóðirnar hafa áætí-
að að veltan í ffkniefnasölunni á
heimsvísu nemi um 300 milljörðum
dollara en það er svipað og veltan er
af allri olíusölu í heiminum eða
vopnasölu.
Talið er að Bandaríkjamenn neyti
um 12,5% af öllum fíkniefhum sem
til staðar eru en þar í landi er talið að
um 14 milljónir manni reyki mari-
júana daglega. Árið 1971 var talið að
um 5.000 fíkniefnaneytendur væru
„til vandræða“ í Bretíandi. í dag er
þessi tala um 280.000 manns.
Flogið með
karrýrétt yfir
Atlantshaf
Beyonce úr Destiny’s
Child gæddi sér á karrýrétti í
veisluíNew
York sem Virgin
Record stjórinn
Tony Matthews
hélt um helgina.
Þetta væri svo
sem ekki í frá-
sögur færandi nema að karrý-
rétturinn var frá skyndibita-
staðnum Muhib Miah í Bret-
landi og var flogið með hann
4.500 kílómetra í veisluna.
Uppátækið kostaði Matthews
um hálfa milljón króna. Hann
segist hafa efni á sfíku. Þess
utan sé ekki hægt að fá al-
mennilega karrýrétti utan
Bretlands. Matthews mundi
eftir Muhib Miah frá árinu
1998 er hann fékk mat þaðan
fyrir Spice Girls.
Bréf frá morðingja Lincoln
Rannsókn á Bloody Sunday að ljúka
Slegið á fimm milljónir króna
Bréf skrifað af morðingja Abra-
ham Lincoln um tveimur mánuðum
fyrir morðið var sett á uppboð um
helgina og seldist á um fimm millj-
ónir króna. Mun það vera nýtt met.
Bréf frá morðingja Lincolns,
John Wilkes Booth, eru mjög sjald-
gæf því þeir sem áttu slíkt í fórum
sínum eftir morðið brenndu þau til
að vera ekki grunaðir um aðild að
morðinu.
í bréfinu, sem dagsett er 9. febr-
úar 1865, biður Booth vin sinn að
senda sér mynd af sér með „staf og
svart bindi“ en mynd þessi var síðar
notuð á veggspjöld þar sem lýst var
eftir Booth að morðinu loknu.
Fyrra metverð fyrir bréf frá
Booth var tæplega 3 milljónir
króna. Að sögn kaupandans Joe
Maddalena sem selur söguleg skjöl
í Beverly Hills er undirskrift Booth
ein sú sjaldgæfasta í Bandaríkjun-
um þótt vitað sé að hann skrifaði
Booth I bréfínu sem dagsett er 9. febrúar
1865 biður Booh vin sinn að senda sér mynd
afsér með„stafog svart bindi”.
þúsundir bréfa. I dag er aðeins vit-
að um 17 af bréfum háns í einka-
eigu.
Lengsta rannsókn
í lagasögu Bretlands
Rannsókn á Bloody
Sunday, eða drápi á
flórtán manns í mót-
mælagöngu í London-
derry 1972, er brátt að
ljúka sex árum eftir að
hún hófst.
Talið er að það taki
tvo daga að lesa upp
skýrsluna um niður-
stöður rannsóknarinn-
ar sem er sú lengsta í lagasögu Bret-
lands. Stjórnvöld létu undan mikl-
um þrýstingi aðstenda hinna látnu
árið 1998 og komu á fót nefnd und-
ir forystu Lord Saville.
Niðurstöðurnar fylla tíu þykkar
möppur. Alls var rætt við 900 vitni
að atburðinum 1972. Finna átti út
hvers vegna meðlimir í fall-
hlífasveitum breska
hersins hófu skothríð
á friðsamlega mót-
mælagöngu fyrir
auknum mannrétt-
indum þannig að
fjórtán mótmælend-
anna létust og fjöldi
særðist. Hermennirn-
ir hafa ætíð borið því
við að þeir hafi verið
að svara skothríð frá göngumönn-
unum.
Spurningunum sem nefninni er
ætíað að svara er: „Var virkilega
skotið á þá fyrst og var reynt að
leyna því sem raunverulega gerð-
ist?“ Ekki er reiknað með að niður-
stöður rannsóknarinnar verði gerð-
ar opinberar fyrr en næsta sumar.