Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1962, Síða 26
ÚR LÖGUM UM TÍMATAL OG ALMANÖK
Samkvæmt lögum um ákvörðun tímans 16. nóv. 1907 skal hvarvetna
á Islandi telja tímann eftir miðtíma á 15. lengdarstigi fyrir vestan
Greenwich. / almanaki þessu eru því allar stundir taldar eftir þessum
svonefnda íslenzka midtíma, 27 mínútum 43,2 sekúndum á undan mið-
tíma Reykjavíkur.
Með lögum nr. 8, 16. febr. 1917, er ríkisstjórninni heimilað að flýta
klukkunni, ef það þykir henta („sumartími44), og verður, ef það er
gert, að sjálfsögðu að taka tillit til þess við notkun almanaksins.
í lögum nr. 25, 27. júní 1921, segir m. a. svo:
!• gr-
HáskóH Islands skal hafa einkarétt til þess að gefa út og selja eða
afhenda með öðrum hætti almanök og dagatöl á Islandi.
5- gr-
Það er brot á einkarétti háskólans samkvæmt 1. gr., ef rriaður:
1. Flytur inn í landið til sölu eða afhendingar með öðrum hætti önnur
almanök eða dagatöl en þau, er í 1. gr. segir,
2. Selur hér í landi eða afhendir með öðru móti önnur almanök eða
dagatöl en þau, sem einkaréttur háskólans nær til.
3. Gefur út hér á landi á prenti eða með öðrum hætti almanök eða
dagatöl eða kafla úr þeim.
4. Prentar upp eða fjölritar almanök háskólans eða dagatöl eða kafla
úr þeim til þess að selja eða láta af hendi með öðrum hætti.
Hið íslenzka þjóðvinafélag hefur með samningi keypt einkaleyfi
þetta í ár (1962), og nær það til allra almanaka í bókarformi.
Árið 1963 ber páskana upp á 14. apríl.
(24)