Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2004, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2004, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2004 Fyrst og fremst DV' Útgáfufélag: Frétt ehf. Útgefandl: Gunnar Smári Egilsson Ritstjórar lllugi Jökulsson Mikael Torfason Fréttastjóri: Kristján Guy Burgess DV: Skaftahlíð 24, Rvík, slmi: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 515 7599 - Ritstjórn: 550 5020 - Fréttaskot: 550 5090 Ritstjóm: ritstjorn@dv.js - Auglýsing- ar auglysingar@dv.is. - Drelflng: dreifing@dv.is Setnlng og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: (safoldarprentsmiðja DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins (stafrænu formi og í gagna- bönkum án endurgjalds. Hvað veist þú um Kristján j Jóhannsbjn 1 Hvaðan er Kristján? 2 Hvað hét faðir hans? 3 Hvaða starf er Kristján kunnastur fyrir að hafa unnið áður en hann gerðist söngvari? 4 Hvað heitir kona Krist- jáns? 5 Hvaða þingkona er tengdamóðir hans? Svör neðst á síöunni Systir Gudda 2. desember er helgaður 15 dýrlingum hjá kaþólsku kirkjunni. Þar á meðal er einn af nýjustu dýr- lingunum en Ludu- ina Meneguzzi var tekin í dýrlingatölu 2002. Hún fæddist 1901 á Ítalíu, var af fátæku bændafólki og stundaði þjón- ustustörf í æsku. Hálfþrítug gekk hún í Fransiskuklaustur, starfaði fyrst við kennslu en fór 1937 sem trúboði til Eþíópíu. Er Dýrlingur dagsins stríð braust þar út vakti hún athygli fyrir að vinna líknar- störf jafnt meðal kristinna sem múslima og hirti ekkert um kynþátt þeirra sem hjálpar voru þurfi. Hélt ósmeyk út á götur í loftárás- um, flutti særða á sjúkra- hús, skírði deyjandi börn og veitti líkn. í Eþíópíu var hún kölluð Systir Gudda sem þýðir Mikla systir. Hún dó 2. desember 1941 úr krabbameini. Eden I kristni hefur aldingarður- inn Eden, þar sem Adam og Eva héidu upphaflega til, oröið tákn fyrír paradís. Raunar segir í Biblíunni aö aldingarðurínn sé„i Eden“ fremur en að hann sjdlfur heiti Eden. Orðið í núver- andi mynd er hebreskt en komið afakkadíska orðinu „edinu“sem þýðirslétta eða steppa. Þetta er sem sagt landafræðiheiti og er oftast talið eiga við suðurhiuta Iraks en sumir telja að átt sé við hið núverandi furstadæmi Bahrein. Mormónar trúa þvi hins vegar að eftir Nóaflóðið hafí garðurínn færst til og hann sé nú innan borgarmarka Independence i Missouri. E 'O Málið Svör viö spurningum: 1. Frá Akureyri -2. Jóhann Konráðsson - 3. Bifvélavirki - 4. Sigurjóna Sverrisdóttir - 5. Rannveig Guómundsdóttir. Þingmenn ábyrgir Stóra fréttin í aðild okkar að fjöldamorð- um og stríðsglæpum Bandaríkjanna í írak, er, að tveir menn ákváðu hana upp á sitt eindæmi. Á upplognum forsendum gerðu þeir ísland í fyrsta skipti að stríðsaðila, þótt margar stórþjóðir neituðu að taka þátt í þeirri skelfingu, sem nú er öllum sýnileg. Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson ákváðu einir, að ísland tæki þátt í þessu ógeðslega stríði. Þeir spurðu ekki neinn, ekki þingflokka sína, ekki utanríkismálanefnd, ekki Alþingi. Þeir fóru bara í stríð, þar sem 100.000 óbreyttir borgarar hafa þegar verið drepnir samkvæmt læknisfræðilegri rannsókn. Næststærsta fféttin er, að þessir tveir menn og liðsmenn þeirra hafa ekki breytt skoðun- um sínum, meðan sannleikurinn hefur smám saman að vera að koma í ljós. Hann er sá, að alls engin uppbygging er í frak, heldur er ástandið þar verra en það var á valdatíma hins illræmda leiðtoga Saddams Hussein. Spánverjar hafa vikið af hólmi og Póllend- ingar eru á útleið. Danmörk og Ítalía eru ein eftir af Evrópuríkjum, sem menn þekkja al- mennt af hinum svonefiidu staðföstu ríkjum, er gáfu krossferð trúarofstækismannanna George W. Bush og Tonys Blair evrópskan gæðastimpil. Hin eru vasaríki á fjarlægum eyjum. I hádeginu á sunnudag virtist þingflokksfor- maður Framsóknar vera að skipta um skoðun á þessu máli. RækUega var tekið í lurginn á honum, svo að hann var á mánudaginn aftur kominn í stuðningslið fjöldamorða og stríðs- glæpa. Efdr þann dag eru þingflokkar Davíðs og Halldórs í húsi George W. Bush. Allar fféttir af stríðinu gegn frak segja okk- ur, að hafi það verið misráðið í upphafi, er það enn fáránlegra núna, þegar menn hafa séð gegnum blekkingarvefinn. Það er glæp- samlegt að styðja stríð, þar sem bandarískir vitfirringar fara hús úr húsi í Fallúja og víðar til að drepa óbreytta borgara. Engin uppbygging á sér stað í frak, þótt Halldór Ásgrfmsson virðist trúa því. Hann trúir öllu, sem bandaríska stjómin segir hverju sinni. Hann getur ekki sakað önnur pólitfsk öfl á íslandi um að tala um fortíðina og vera ekki til viðtals um núverandi ástand í írak, sem Bandaríkin ein ffamleiddu. Ljóst er, að Davíð Oddsson hefur ekki batn- að í skapinu við að fara í uppskurð. Á hinu háa Alþingi sagði hann þá vera afturhalds- kommatitti, sem eru á móti stríðinu. Það eru rök, sem hæfa vel þingmannaliði Sjálfstæðis- flokksins, sem ekki hefur æmt eða skræmt, enda almennt andvígt mannréttindum. Umræðan á Alþingi á mánudaginn hefur þó skýrt málin á þann veg, að þingmenn Sjálf- stæðisflokks og Framsóknarflokks standa heils hugar að bandarískum fólskuverkum í írak. Jónas Kristjánsson isssiCtr llarínkiuiaii iliPlliPiflÍl1 SkSSt' ■U55 Dagur Jóns Mag KRISTJÁN PÁLSS0N, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, rit- aði skemmtilega grein í Moggann í gær þar sem hann vill í tilefni af fullveldisdeginum 1. desember minna á hlut Jóns Magnússonar forsætisráðherra í íslenskri sögu. Honum þykir, og vissulega með nokkmm rétti, sem hlutur Jóns hafi verið fyrir borð borinn í sögunni og einkum í þeirri sögulegu upprifjun sem fram hefur farið í landinu und- anfarið ár í tilefni af 100 ára afmæli heimastjórnarinnar. SÚ SÖGULEGA UPPRIFJUN hefur vissulega verið nokkuð broguð og því miður farið svolítið út í deilur um hlut Hannesar Hafstein í sög- unni. Er þarflaust að minna á að sú ofuráhersla sem afmælisnefndin lagði á að nánast færa Hannes í guðatölu mætti verulegri andstöðu. Til dæmis kemur skýrt fram í gagn- legri bók Jóns Þ. Þór sagnfræðings að Valtý Guðmundsson má í raun telja miklu meiri brautryðjanda í heimastjórnarmálum en nokkurn tíma Hannes, auk þess sem Valtýr átti lfka meiri þátt en sjálfir „heima- stjórnarmennirnir" í framfaramál- um eins og stofnun íslandsbanka, samningum um símann og þess háttar. EN NÚ FINNST KRISTJÁNI sem sagt líka hafa verið hallað á Jón Magnússon og at- hyglisvert að í málsvörn sinni fyrir Jón heggur hann (kurteislega að vísu) ekki aðeins að Hannesi Hafstein, held- ur lfka að öðru uppá- haldi þeirra valdamanna sem nú ráða ríkjum í Sjálfstæðisflokknum. Það er fyrsti formaður flokksins, Jón Þorláks- son, sem ekki minni maður en Hannes Hólmsteinn Gissurarson hefur skrifað mn ævi- sögu. Og nú þegar sagan er allt í einu aftur orðin hápólitískt deilumál, þá tökum við eftir slíku. ÞAÐ ER TIL DÆMIS óneitanlega fyndið að allt í einu skuli maður leggja pólitíska merkingu í orð eins og þessi hér í grein Kristjáns: „Jón Þorláksson var forsætisráð- herra íaðeins rúmt ár... Jón Magn- ússon [tókj að sér að mynda stjórn fyrir íhaldsflokkinn ehir að, Jón l^^ússonT^ Sasaa£*. s&szt&z?- §3s s£SE I 'Wnlmog ÍpiSSsr 2S2&S&SrS?* "WtaníÆ. Zsg&í* s&saSBEi gsÖgfr œfiHsssés sife landoe tiðð Það er til dæmis óneitanlega fyndið að allt í einu skuli mað ur leggja pólitíska merkingu í orð eins og þessi hér í grein Krist- jáns:„Jón Þorláksson var forsætis ráðherra í aðeins í rúmtár.. Fyrst og fremst Þorláksson formaður flokksins gafst upp við það verk ... Ef hann hefði lifað lengur er nokkuð víst að hann hefði orðið einn afstofn- endum Sjálfstæðis- Ookksins síðari..." Á HINN BÓGINN er lfka fyndið að Kristján skuli færa það sérstaldega Jóni Magnússyni til tekna hvað hann var góður við framsókn- armenn og bar blak af þeim meðan hann starfaði með þeim. Og þá getur Kristján nikkað í viðurkenningar- skyni til núverandi for- manns í sínum gamla flokki: „Slíkan stjórnarstíl tileinkuðu þeir sér síðar forsætisráðherrar eins og Ólafur Thors og Davíð Oddsson með góðum árangri. “ HÉR FINNST 0KKUR reyndar sem Ólafur Thors fái lof í hattinn alveg að óþörfu. Davíð hefur vissulega verið góður við framsóknarmenn og Ólafur Thors sýndi líka yfirleitt ráðherrum sínum úr öðrum flokk- um fyllstu hollustu meðan hann var forsætisráðherra - nema helst framsóknarmönnum, enda vildi hann sem minnst með þeim starfa. Og þarf ekki annað en minna á hið fræga „eiðrofsmál". GREIN KRISTJÁNS er sem sagt hin gagnlegasta. Það er gott að minnt er á ágætt starf Jóns og til dæmis hlut hans að því að íslendingar fengu fullveldi 1. desember 1918. Hins vegar verðum við að segja að okkur þykir Kristján skjóta nokkuð yfir markið með lokaorðum sínum: „Ég legg því til að minning Jóns Magnús- sonar verði heiðruð með þeim hætti að fullveldis- dagurinn 1. desember ár hvert beri nafh hans og mætti dagurinn heita: Dagur Jóns Magnússon- ar." Fleiri „dagar" í íslenskri sögu Dagur Jóhannesar Birkiland Dagurinn þegar hann var tekinn af vinnumanni milli þúfna.Og hin saklausa (slenska sveitamenning varð aldrei söm. Dagur Ástþórs Magnússonar Ber upp á sama dag og forsetakosn- ingar hverju sinni. Dagur Brennu-Njáls Gamlárskvöld frá kl. 21-24. Dagur Geirfinns Einarssonar 18.nóvember 1975. Dagur Vigdísar Finnbogadóttur Jafndægur á vori. Dagur Dorrit Moussaieff Haldinn hátíðlegur samhliða Degi Islenskrar tungu. Dagur Hallgerðar langbrókar Dagurinn þegar hún neitaði Gunnari um lokkinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.