Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2004, Síða 3
DV Fyrst og fremst
FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2004 3
Hugarfarsbreytingin var mesti árangurinn
Gamla myndin að þessu sinni er frá árinu
1990, nánar tiltekið lokum janúar það ár þegar
fulltrúar ASÍ og VSÍ gengu á fund ríkisstjórnar-
innar til að reka smiðshöggið á „Þjóðarsáttar-
samningana" svokölluðu sem mörkuðu endalok
mikils verðbólguskeiðs í landinu. Þórarinn V. Þór-
arinsson lögfræðingur var þá framkvæmdastjóri
VSÍ og á myndinni sést hann ræða við Ólaf Ragnar
Grímsson, þáverandi fjármálaráðherra.
„Það sem var kannski mesti árangurinn af þessum samning-
um var sú hugarfarsbreyting
sem fylgdi í kjölfarið og losaði
þjóðina úr fjötrum fortíðar-
innar," segir Þórarinn V. Þórarinsson. „Þessir samingar voru
einnig sögulegir að því leyti að aldrei hafa jafnmargir aðilar
lagst á eitt um að ná markmiði þeirra sem var að keyra niður
Gamla myndin
Á fund rfkisstjórnarinnar Forráðamenn AS/og VSÍhitta
rlkisstjórnina að máli í lok janúar 1990. Á myndinni má
sjá, auk þeirra Þórarins og Ólafs Ragnars, þá Jón Baldvin
Hannibalsson og Steingrlm Hermannsson. Á innfelldu
myndinni er Þórarinn V. Þórarinsson I dag.
verðbólguna með öllum tiltækum ráðum og
móta nýja efnahagsstefhu. Því leituðum við til
ríkisstjórnarinnar um margþætta þátttöku hennar í
þeim aðgerðum sem þurfti til. Á móti var svo launa-
hækkun stillt mjög í hóf af hálfu verkalýðshreyfingarinnar."
í máli Þórarins kemur fram að með samningunum hafi tek-
ist að breyta væntingum þjóðarinnar á þann hátt að hún hætti
að trúa því að verðbólgudraugurinn væri eitthvað viðvarandi
ástand sem ekkert væri hægt að gera við. „Þetta voru góðir
samningar að þesu leyti og ég tel að við búum enn að þeim í
dag að vissu leyti,“ segir Þórarinn.
Spurning dagsins
Hvernig leggst desember í þig?
Búin að skreyta jólatréð
„Desember leggst rosalega vel í mig. Ég er mikið jólabarn
mánuðinn til að njóta þess að vera til og vera með fjöl-
skyldunni. Búin að skreyta allt háttog lágt, meira að
segja jólatréð. Það er orðinn fastur liður íminni fjöl-
skyldu að skreyta jólatréð á fyrsta sunnudag í að-
ventunni. Ég mála líka piparkökur og föndra með
krökkunum. Mestu jólin fyrir mig er að hlusta á jóla-
lögin og hafa öll þessijólaljós í kringum mig.
á eitt jólahlaðborð íár með vinnunni."
Sigrún A Þorsteinsdóttir
hjúkrunarfræðingur.
„Mér finnst
hann bara
mjög góður. Ég
feríjólaskap
og nýt þess að
vera til. Það eru
komnar seríur
og skraut úti um allt hjá mér. Ég
reikna ekki með að fara á nein
jólahlaðborð í ár eða jólaglögg
eða neitt svoleiðis."
Dagný Þorkelsdóttir.
„Hann leggst
bara mjög vel í
mig. Það verð-
ur mikið að
gera hjá mér i
desember.Að-
allega að elda
mat ofan í fólk. Fer lítið út sjálf-
ur, verð mest að vinna. Þetta er
með skemmtilegri tímum ársins.
Það er gaman að gera fólk
ánægt með góðum mat."
Ólafur Helgi Kristjánsson
kokkur.
„Ég erkominn
í heilmikið
jólaskap.
Reikna með að
fara allavegna
tvisvar á jóla-
hlaðborð,
bæði með vinum og vinnufélög-
um. Svo er mikið hokkí spilað í
desember. Það er til dæmis jóla-
hokkí á aðfangadag. Kannski fæ
ég skauta I skóinn."
Sigurður Sveinn Sveinsson,
fasteignasali og hokkíspilari.
„Bara mjög vel.
Ég slepp sem
betur fer við
alltjólaum-
stangið. Það
eruaðrirsem
sjá um það fyr-
ir mig. Það er alltofmikið prílum
prjál í kringum þetta fyrir mig.
Annars er boðskapur jólanna
alltafgóður og gott að fólk geri
sér glaðan dag á jólunum."
Frú Ólöf Konráðsdóttir.
Mörgum þykir jólin vera talsvert fyrr á ferðinni nú en áður. Nokk-
uð er síðan jólalögin fóru að berast með öldum Ijósvakans og
jólaskraut er víða sjáanlegt þó svo að jólamánuðurinn hafi ekki
hafist fyrr en í gær. I dag eru 22 dagar til jóla.
Fyrstu friðar-
verðlaunahafarnir
Fríðarverðlaun Nóbels verða brátt veittí Osló.
Hér eru þau sem fyistfengu verðlaunin.
1901
Verðlaununum skipt milli
Henrys Dunant, stofnanda
Rauða krossins, og
Frédérics Passy sem
stýrði frönsku friðarfélagi.
1902
Éliu Ducommun og Charles Albert
Gobatsem stýrðu alþjóðlegri friðar-
hreyfingu I Bern I Sviss.
1903
William Randal Cremer leiðtogi
alþjóðlegrar sáttasemjarastofnunar I
London.
1904
Verðlaunin fékk Alþjóðalagaskrifstof-
an sem þá hafði aðsetur í Belgíu.
1905
Barónessan Bertha Sophie
Felicita von Suttner (við
fæðingu greifynjan
Kinsky von Chinic und Tettau) fékk
verðlaunin fyrstkvenna fyrir óþreytandi
Von Suttner
starfað friðar- og afvopnunarmálum
þrátt fyrir aðhlátur og andróður sem
hún hafði mætt í„herskáasta landi Evr-
ópu", Austurríki. Hún andaðist 1914, rétt
áður en fyrri heimsstyrjöldin braust út
og í Ijós kom að allt starfhennar og fleiri
friðarsinna hafði verið unnið fyrirgýg.
1906
Theodore Roosewelt
Bandaríkjaforseti þótti tölu-
verður stríðsmaður sjálfur
en fékk friðarverðlaun fyrir
að miðla málum í stríði Rússa og Japana.
1907
Italinn Ernesto Teodoro Moneta og
Frakkinn Louis Renault deildu verð-
laununum, sá fyrri fyrir friðarbaráttu, sá
seinni fyrir starf við mótun alþjóðalaga.
1908
Svínn Klas Pontus Arnoldson og Dan-
inn Fredrik Bajer fengu verðlaunin fyrir
störfað friðarmálum og einkum fyrir að
vinna að hlutleysi landa sinna í tog-
streitu stórvelda.
ÞAÐ ER STAÐREYND...
... AÐ LARRY
MULLENJR., 'lki:.
TROMMULEIKARI j W
U2, ÁSONSEM
HEITIR AARON
ELVIS. * >'
Kynlífog golf
eru þaö eina
sem maður
getur notið án
þess að vera
góöuriþví.
Jimmy Demaret,
Ráðherrann & forstjórinn
___Páll Pétursson, bóndi á Höllustöðum og fyrrverandi aíþingismaðurog félags-
málaráðherra, er faðir Páls Gunnars Pálssonar forstjóra Fjármálaeftirlits-
| ins. Páll Gunnar eryngstur þriggja systkina. Páll sat um árabil á þingi
fyrir Framsóknarflokkinn. Hann settist fyrst á þing árið
1974 en hætti við síðustu kosningar þegarhann var
búinn að sitja I tæp 29 ár. Páll Gunnar vann sig upp
eftir að hann lauk lögfræðiprófi og vann hjá Seðla-
bankanum og viðskiptaráöuneytinu. Hann varð forstjóri
Fjármálaeftirlitsins aðeins 32 ára fyrir fimm árum.
ÓMETANtEGAR rækur um
ÍSUENSKA HESTINN í MYND,
SÖGU OG EJÓÐI
Myndir gerðar af okkar ástsæla listamanni HALLDÓRIPÉTURSSYNI
FJOEA po@skima.is
Hófadynur
„Hér er á ferðinni afar falleg bók þar sem
bæði myndir og textar hreyfa við lesandanum.
Ótrúlega skemmtilegar sögur af vitrum hest-
um og sérstökum.
Öllum hestaunnendum er mikill fengur af
þessari bók og ekki sé talað um börn sem
hafa áhuga á reiðmennsku.
...frábær heimild um hlutverk hestsins í sögu
oa siálfsmvnd bióðarinnar”
nóvember 2004)
Sígild íslensk ævintýrabók í nýjum búningi!
Halldór Pétursson og Njörður P. Njarðvík
lögðu saman krafta sína í þessari mynd-
skreyttu sögu um strákinn Helga, hryssuna
Flugu og hundinn Kát.
Upplifun ungs drengs á undraheimi íslenskrar
náttúru er á ógleymanlegan hátt túlkuð í
máli og myndum.
Þessi saga er áminning um það að maður-
inn og dýrin eiga heiminn saman - og tröllin
eiga nóttina!
Helgi skoðar heiminn
hóeA2N
Helgi skoðar heimmn
Mymitr: lUIUÓr Pétunton
Sagu: Njoréur P. Njarét /i