Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2004, Side 9
DV Fréttir
FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2004 9
viD jólaböll fyrir veiku börnin
miður sín hvemig þetta verkefni er að
fara,“ segir Ólafur við DV.
Styrktarfélagið fær gögnin
í viðtali í þættinum fsland í bítið á
Stöð 2 í gærmorgun sagði Kristján
hnökra hafa verið á fjármálum
vegna styrktartónleikanna. Tal-
að hafi verið um að áður en að
tónleikunum sjálfiim kæmi yrði
búið að útvega fimm milljónir
króna fyrir áætluðum kostnaði. f
reynd hafi þó ekki verið til ein
einasta króna þegar hann
mætti tii landsins. Ólafur
vísar þessu á bug.
„Það hefur verið
staðið við allt og það er
búið að gera upp við
hvem einasta flytjanda
og alla sem komu að
þessu. Við höfiim ekkert að fela í því. Ég
mun gera grein fyrir mínum málum hjá
Styrktarfélaginu og skila af mér hagnað-
inum til þeirra í dag [í gær]. Síðan mun
ég senda þeim öll gögn,“ segir
Jlafur.
Tómt kjaftæði í Kristjáni
Kristján sagði einnig á
Stöð 2 að markmið um söfii-
unarupphæð hefði ekki
náðst. Nú væri þó loks útlit
fyrir að utanaðkomandi
aðiiar kæmu með fé
inn í tónleikadæm-
ið:
„Það er tómt
kjaftæði. Það
þarf ekki að leysa
neina hluti. Þeir
em klárir og hafa
Ólafur F. Magnússon „Það er tómt
kjaftæði. Það þarfekki að leysa neina
hluti. Þeir eru klárir og hafa alltaf verið,
segir Ólafur um fullyrðingar Kristjáns
Jóhannssonar.
alltaf verið,“ segir Ólafiir. Eina veruiega
strikið í reikninginn hafi verið það að
selja varð 450 miðum færra en áætlað
var því gleymst hafði að gera ráð fyrir
hinum mikla fjölda flyljenda sjálfia inni
í Hallgrímskirkju.
Kristján hefur fengið sitt
Eins og fram hefur komið í DV nem-
ur þóknun Kristjáns Jóhannssonar fyrir
að taka þátt í styrktartónleikunum
þremur 1,7 milljónum króna. f viðtali
við blaðið hefur hann sagst mundu gefa
eftir eina milljón og sjálfur láta sér
nægja 700 þúsund krónur fyrir útlögð-
um kostnaði. Ólafiir vill ekkert segja um
það hvort Kristján hafi skilað þessari
einu milljón eða hvort rétt sé að Kristján
hafi aðeins fengið greitt fyrir kostnaði -
eins og söngvarinn hélt fram á Stöð 2 í
gærmorgun:
„Ég get ekki svarað fyrir Krístján. Ég
er búinn að gera upp við alla og Kristján
er einn af þeim," segir hann.
Borqar sjálfur blóm og veitingar
Ólafur segist alls ekki munu láta af
hendi bókhaldið vegna tónleikanna.
Hverri krónu af ágóðanum verði á hinn
bóginn komið til Styrktarfélags krabba-
meinssjúkrabama.
„Ég, persónulega og prívat, greiði
jafnframt 568.574 krónur fyrir ýmsan
kostnað - ásamt því að gefa alla mína
vinnu,“ segir Ólafiir og á þar meðal ann-
ars við efrú og vinnu vegna palla sem
þurfti að koma upp. „Þá hafði gleymst
að gera ráð fyrir því að gefa þyrfti flytj-
endum blóm. Einnig var boðið upp á
veitingar fyrir söngfólkið á meðan á
konsertinum stóð svo það gæti fengið
orku."
Hættur í líknarmálum
Athygli vekur að Hallgrímskirkja inn-
heimti hálfa milljón króna í húsaleigu
vegna tónleikahaldsins. Ólafur segist
ekki hafa sóst eftir því að fá leiguna
fellda niður. „Ég geng ekki um bæinn
betlandi og hef aldrei gert og mun ekki
taka upp á því. Ég hef aldrei verið að slá
mig til riddara á annarra manna kostn-
að - það er ekki minn stíll," segir hann
og lýsir því yfir að nú sé hann alfarið
hættur að koma að líknarmálum:
„Ég er með tvö jólaböfl en er búinn
að tilkynna að ég sjái ekki um þau,“ segir
Ólafur sem á við fyrirhugaðar jólatrés-
skemmtanir fyrir Styrkarfélag krabba-
meinssjúkra bama og Bamaspítala
Hringsins. „Nú munu allir hugsa sig um
tvisvar áður en þeir koma að líknarmál-
um."
gar@dv.is
... ...
Kristján kallaði blaðamann Satan
Reynir farinn
Reynir Traustason hefur látið af störfum sem fréttastjóri DV og
tók í gær við ritstjóm tímaritsins Mannh'fs. Reynir hefur tekiö virk-
----- — an þátt í endurreisn DV og lagt sitt af mörkum
til að skapa það blað sem lesendur þekkja nú.
Sem handhafi titilsins Blaðamaður ársins
hefur Reynir með öðmm vísað veginn hér á
DV og kvaddi með eftirminnilegum hætti
. með fréttasyrpu um milljónaþóknun Krist-
! jáns Jóhannssonar á styrktartónieikum fyrir
| krabbameinssjúk böm. Fyrir bragðið upp-
w- fcj skar hann þau ummæli frá óperusöngvaran-
L ^ j um í sjónvarpsþætti í gærmorgun að hann
Reynir Traustason væri sjálfur Satan. Meiri upphefð getur
Frá dv til Mannlifs. blaðamanni varla hlotnast á einum morgni.
Em Reyni þökkuð vel unnin störf og um leið óskað velfamaðar í
ritstjórastóli Mannlífs.
Framkvæmdastjóri Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna
Sorglegt ef Ólafur hættir
„Þetta var algerlega hugmynd
og framkvæmd Ólafs. Við hjá
Styrktarfélaginu njótum einfaid-
lega góðs af," segir Rósa Guð-
bjartssdóttir, framkvæmdastjóri
Styrktarfélags krabbameinssjúkra
barna, um þrenna tónleika sem
Ólafur M. Magnússon skipulagði
til styrktar félaginu.
Rósa segir leitt ef Ólafur sé
hættur afskiptum af líknarmálum
í kjölfar umræðunnar um tónleik-
ana í Hallgrímskirkju. „Það er
mjög sorglegt. Ólafur hefur unnið
mjög sérstakt og óeigingjarnt
starf," segir hún.
Að mati Rósu mun hinn mikli
órói sem verið hefur eftir síðustu
styrktartónleika ekki hafa áhrif á
Styrktarfélagið sjálft. „Það erurn
ekki við sem stöndum að tónleik-
unum. Þeir voru stórkostlegir og
heiður fyrir oklcur að tengjast
þessari fallegu athöfn í Hailgríms-
kirkju. En það er leitt að þetta
skuli hafa þróast í þessa átt."
Rósa Guðbjartssdóttir „Leitt að
þetta skuli hafa þróast iþessaátt."