Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2004, Síða 11
DV Fréttir
FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2004 11
Síldarmet á
Djúpavogi
íbúar á Djúpavogi fagna
því að fyrir réttri viku
náðist það takmark hjá
stærsta vinnuveitanda
staðarins, Búlandstindi, að
salta 30 þúsund tunnur á
yfirstandandi vertíð.
„Fyrirtækið er nú þegar
búið að slá fyrri met í
einstökum framieiðslu-
þáttum í síldarvinnslunni,“
segir á heimasíðu
hreppsins sem færði
Búlandstindi gjöf af þessu
tilefni. „Með þessu vildum
við sýna fyrirtækinu og
starfsfólkinu, hve
mikilvæga við teljum
starfsemi þess fyrir
samfélagið hér," segja
fulltrúar hreppsins.
Gengið held-
uráfram
að hækka
Gengi krónunnar
hækkaði um 0,4% í
fyrradag í líflegum við-
skiptum. Gengisvísital-
an fór undir 118 stig og
stóð við lok dags í
117,95 stigum. Krónan
var sett á flot í byrjun
árs 2001 og hefur gengi
hennar ekki verið hærra
frá þeim tíma og reynd-
ar ekki síðan í nóvem-
ber 2000. Mikið inn-
flæði erlends lánsfjár
hefur verið að valda
hækkun krónunnar síð-
ustu daga en það inn-
flæði byggir á miklum
mun á innlendum og
erlendum skammtíma-
vöxtum og væntingum
um að sá munur muni
aukast á næstunni sam-
hliða frekari vaxtahækk-
unum Seðlabankans.
Greining íslandsbanka
segir frá.
Fólk á að læra að segja wtakk"
Eins og flestir hafa sennOega
getað lesið út úr síðustu tveimur
pistlum mínum, þá er ég með-
limur í Slysavamafélaginu
Landsbjörgu.
Ég hef verið að ganga í hús
héma á Eskifirði fyrir félagið, að
selja jólakort í fjáröflunarskyni.
Sigríður Rósa
Kristinsdóttir
skrifar um viömót
fólks gagnvart
sölumönnum.
Skrifstofukonan segir
Eins og eðlilegt er hefur mér ver-
ið tekið misjafnlega vel í þessari
fjáröflun. Flestir hafa þó tekið
mér mjög vel.
Það er þó eitt sem fer sérstak-
lega í taugarnar á mér við þetta
allt saman, og það er, að þegar
fólk vill ekki kaupa af mér, að það
skuli ekki geta sagt bara „NEI
TAKK“.
Faðir minn sagði mér að hann
hefði heyrt haft eftir einhverjum
sölumanni, að það næstbesta
sem sölumaður heyrir, er „NEI
TAKK!“ (Það besta er auðvitað „JÁ
TAKK“) Ég veit því miður ekki
hver á þessa góðu setningu en
þetta er alveg rétt! Þetta á einnig
við um mig, sem geng hús úr húsi
og er að reyna að selja jólakort.
Mér kemur ekkert við hvort
fólk ætli að föndra kortin sín
sjálft, eða senda kort með mynd
af börnum eða barnabörnum.
Mér kemur heldur ekkert við
hvort fólk er búið að kaupa svo
mikið af kortum að þau eru í
haugum inn á eldhúsborði eða
að það ætli ekki að senda jóla-
kort. Ef fólk vill ekki kaupa kortin
af mér, þætti mér vænt um að
það segði bara „NEI TAKK". Það
er að mfnu mati er mun heiðar-
legra en að finna sér einhverjar
afsakanir. Mér finnst það bara
geta orðið vandræðalegt og hall-
ærislegt.
Ég geri mér fyllilega grein fyr-
ir því að einhverjir sem eru að af-
saka sig hefðu viljað kaupa af
mér og styrkja Slysó, en engu að
síður, langar mig ekki að vita af
hverju það kaupir ekki.
Segið einfaldlega „NEI
TAKK!“ ef þið getið eða viljið
ekki kaupa af fólki sem bankar
upp hjá ykkur og er að safna
pening fyrir gott málefni. Ekki
rekja ævisöguna eða afsaka ykk-
ur í bak og fyrir... Einfalt „NEI
TAKK“ er betra!!!
Tveir íslendingar, Tjörvi Guðmundsson og Dagbjartur Pétursson, eru staddir í
Kænugarði, höfuðborg Úkraínu, við gerð heimildarmyndar um götubörn. Hafa lítið
getað unnið við myndina i vikunni vegna óróans í borginni.
Woodstock-stemming í miðbæ
Kænugarðs
Tveir íslendingar, þeir Tjörvi Guð-
mundsson og Dagbjartur Pétursson,
em nú staddir í Kænugarði höfuð-
borg Úkraínu við gerð heimildar-
myndar um götuböm þar í borg. Þeir
segja að þeir hafi lítið getað unnið við
myndina í þessari viku vegna óróans
í borginni. Segja samt að stemmingin
sé skemmtileg og sérstök í miðbæn-
um þar sem tjaldbúðir hafa risið og
fólk hefst við þúsundum saman.
„Þetta er eiginlega eins og Wood-
stock í gamla dag, fólk syngur og
skemmtir sér“, segir Dagbjartur.
Tjörvi hefur dvalið í Kænugarði í
um mánuð en Dagbjartur aðeins
skemur. Þegar DV hafði samband við
þá félaga síðdegis í gær vom þeir ný-
vaknaðir enda vinna þeir mest á
nóttunni við gerð myndar sinnar.
Þeir hafa lífvörð með sér hvert sem
þeir fara í borginni og þjónar hann
einnig sem túlkur.
Sungið og hrópað Þaö er mikið sungiö
svona inn á milli þess sem slagorð eru hróp-
uö.
Allir vilja berjast
„Það em allir að bíða eftir niður-
stöðu hæstaréttar hér um hvort
kosningamar em löglegar eða ekki og
í miðbænum vilja allir berjast gegn
stjóminni," segir Tjörvi. „Það getur
tekið nokkum tíma að fá þá niður-
stöðu. Á meðan heldur fólk til í mið-
borginni þar sem tjaldbúðir em risn-
ar og fólk skemmtir sér eins vel og
kostur er í þessari stöðu. Það er mik-
ið sungið svona inn á milli þess að
slagorð em hrópuð. Svo er dálítið um
að sérstakir hópar komi sér upp sín-
um tjöldum, héma em rokkarar,
pönkarar, anarkistar, trúarhópar og
svo framvegis með sín eigin tjöld."
Deilan um úrslit forsetakosning-
anna í Úkraínu tók nokkuð óvænta
stefhu í gær þegar Viktor Janúkovítsj
forsætisráðherra óskaði eftir því við
hæstarétt landsins að úrslitin yrðu
ógilt.
Matur Mat deilt út til þeirra sem halda til á
torginu.
Skoðaðu bílana í smáauglýsingum DV og Fréttablaðsins.
Skoðaðu bílana á www.brimborg.is. Komdu í Brimborg Reykjavík, Akureyri.
Öruggur stadur til að vera i
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7000 | Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 462 2700 | Brimborg Reykjanesbæ: Njarðarbraut 3, sími 422 7500 | www.brimborg.is