Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2004, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2004, Side 13
DV Fréttir FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2004 13 Ólánið eltir bíleiganda í fyrradag var tílkynnt tíl lögreglunnar í Keflavík að ekið hefði verið á kyrrstæða og mannlausa fólksbifreið á Faxabraut í bænum, móts við Fjölbrautaskóla Suður- nesja. Bifreiðin er mikið skemmd á vinstri hlið og virðist sem stærri bifreið hafi verið ekið á hana. Ólánið virðist elta eiganda bifreiðarinnar, því einnig var búið að gera tveggja metra rispu eftir endilangri hægri hliðinni. Ekki er vitað hver þarna var að verki. Óskað er eftir að vitni gefi sig fram við lögregluna. Skorið á bíldekk í fyrradag var tilkynnt til lögreglunnar í Kefla- vík að skorið hafi verið á fjögur bíldekk, undir tveimur bifreiðum, utan við hús við Ægisvelli í Keflavík. Bifreiðamar munu ekki vera í eigu sama aðfla. Ekki er vitað um tjónvald en málið er í rannsókn. Hlutur kvenna í stjórnum fyrirtækja er rýr hér á landi ísland langlægst á Norðurlöndunum Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, var þátttak- andi á fréttamannafundi í Osló í gær í tilefni af útgáfu skýrslu um hlut kvenna í stjórnum og framkvæmda- stjórnum 500 stærstu fyrirtækja á Norðurlöndunum (Nordic 500). Hlutfall kvenna í stjórn- um stærstu fyrir- tækja á Norður- löndun- um 16,5%. Bandaríkjunum er hlutfallið 13,6% og í Bretlandi 11,8%. Á Norðurlönd- unum er hlutfallið hæst í Noregi eða 22%, í Svíþjóð 19%, Finnlandi 13%, Danmörku 12% og á íslandi 11%. Ef einungis em tekin fyrirtæki skráð í kauphöllum þá er hlutfallið lang- lægst á íslandi, eða 5% á móti 18% að meðaltali á Norðurlöndunum. Hlutfall kvenna í framkvæmda- stjórnum fyrirtækja sem vom í úrtaki þessarar norrænu rannsókn- ar var hins vegar hærra á íslandi, 15%, en að meðaltali á Norðurlönd- unum, 12%. Tvær íslenskar konur, Rannveig Rist og Kristín Jóhannesdóttir, eru í hópi þeirra 10 kvenna sem valdar hafa verið af Nordic 500 sem áhrifa- mestu konur í stjórnum fyrirtækja á Norðurlöndum. Valgerður Sverrisdóttir sagðist á fundinum telja að lágt hlutfall kvenna í stjórnum á íslandi mætti rekja til þess að fjármagnseigend- . ur væm fyrst og fremst karlar og ^ þeir litu ekki út fyrir sitt sterka en einsleita tengslanet við val á stjórnarmönnum. Valqerður Sverrisdóttir Lágt hlutfall kvenna Istjórnum á Islandi má rekja til þess ao fíármagnseigendur eru fyrst og fremst karlar og þeir líta ekki út fyrir sitt sterka en einsleita tengslanet við val á stjórnarmönnum. Ævintýrið um prinsessuna frá Barein og bandaríska land- gönguliðann hlaut ekki farsælan endi. Þau eru skilin réttum fimm árum eftir að þau giftu sig í Las Vegas. Konungurinn sendi laun- morðingja eftir Johnson Ævintýrið um prinsessuna frá Barein og bandaríska landgöngulið- ann var líkt og beint upp úr Holly- wood-handriti enda var gerð sjón- varpsmynd um ævi þeirra beggja. Þau Meriam al-Khalifa og Jason Johnson felldu hugi saman þegar hann var staðsettur í konungsdæm- inu en þetta var forboðin ást þar sem hún var múhameðstrúar og hann mormóni. Hann náði þó að smygla henni út úr Barein og þau giftu sig í Las Vegas. Konungurinn, frændi Meriam, sendi launmorð- ingja eftir Johnson og áttí sá að fá 500.000 dollara fyrir að myrða hann. En ævintýrinu er lokið. Þau skildu daginn eftír fimm ára brúðkaups- afmæhð. Sagan hófst í janúar 1999 þar sem Johnson sinntí skyldum sínum sem hermaður í landgönguliði flotans, staðsettur í konungdæminu Barein. Þau hittust í stórmarkaði og það var ást við fyrstu sýn. Fjölskylda Mer- iam, sem er frænka Sheik Hamad bin Isa al-Khalifa konungs landsins, varð æf þegar hún frétti af ástarsam- bandinu því samkvæmt lögum er henni bannað að giftast manni af annarri trú. Smyglað út í dulargerfi Við komuna til Bandaríkjanna var landgönguliðinu ekki skemmt enda konungsfjölskyldan mikill bandamaður landsins í Miðaustur- löndum. Johnson var dreginn fyrir herrétt, sviptur títlum sínum og rek- inn með skömm úr liðinu. En hvað er það þegar þú er ungur og ástfang- inn? Hann var 23 ára og hún 19 ára þegar þau giftu sig í nóvember 1999. Athöfnin var svo gott sem í beinni útsendingu um öll Bandaríkin og margir felldu tár yfir þessari hug- ljúfu sögu. Þau fluttu inn í íbúð í Las Vegas. Launmorðingi gripinn í fýrstu Ufðu hjónakornin af tekj- um sem þau fengu af Hollywood- myndinni. En lífið var ekki alltaf dans á rósum. Þau höfðu ekki verið gift lengi þegar FBI kom að máh við Johnson og tjáði honum að þeir hefðu gripið launmorðingja sem konungsfjölskyldan hafði sent hon- um til höfuðs. Átti morðinginn að fá hálfa milljón dohara fyrir að myrða Johnson. Ljúfa lífið heillar Eftir að peningarnir frá sjón- varpsmyndinni voru uppurnir fékk Johnson starf sem bílastæðavörður á Las Vegas Strip. Meriam hélt hins vegar áfram að stunda ljúfa lífið í borginni. Johnson segir í samtah við eitt af dagblöðunum í Las Vegas að Meriam hafi sökkt sér í næturlíf borgarinnar með vinum sínum og kunningjum en látið sem Johnson væri ekki til. Fyrir ári flutti hún svo út úr íbúð þeirra. Hún sótti síðan um skilnað í síðasta mánuði. Johnson er í sárum en hann býr nú heima hjá stjúpmóður sinni. ...að vera utan af landi? „Það er dáU'tíð erfitt að lýsa til- finningunni hvemig það er að vera landsbyggðarmanneskja, ég þekki nú ekkert annað. Mér hefur aUtaf Uðið vel með að búa í mínu þorpi, það var frábært að alast þar upp og örugglega ólíkt skemmtilegra en maður getur ímyndað sér að sé í Reykjavík. Minni samfélög bjóða upp á auk- ið öryggi og það er þægilegt að þekkja aUa. Maður veit nákvæm- lega hver það er sem afgreiðir mann í búðinni og heUsar öUum sem maður mætir út á götu. Þetta er eins og að vera hluti af stórri fjölskyldu. í litl- um bæjum á landsbyggðinni skapast skemmti- leg stemning, liðshefldin er sterk. AUir sam- einast um að halda með íþróttafélaginu, styðja við bakið á öllum, berjast fyr- ir málefnum síns bæjar og eru mjög stoltir af sínum uppruna. flytja aftur heim þegar ég hef lok- ið námi. Sérstaklega held ég að ef ég eignast börn þá myndi mig langa að ala þau upp heima í Ólafsvík. Ég veit hvað það var gott að vera barn í Utlum bæ og ég vfl að mín börn njóti þess sem lítíð samfélag býður uppá. Heima gæti ég treyst því að heUt bæjarfélag væri að fylgjast með börnunum, samkenndin er svo sterk, maður veit að aUir eru að fylgjast með og öfugt við það sem Reykvíkingar halda ffarn er það góður hlutur. Reykvíkingar gera stundum grín að því hvað maðurer mikill dreifari... Brandarar um rafmagnsleysi og ófærð eru mjög algengir. Gott að vera heima Ég fer reglulega heim tU Ólafs- víkur tíl að slappa af og fá ffískt loft. Þegar maður kemur heim er svo gaman að aUir spyrja hvernig gengur hjá manni, það vita aUir af manni þarna úti og fólki er ekki sama. TUfinningin við að eiga svona bakland er sú besta í heimi. Það tók tíma að venjast Reykjavík fyrst eftir að ég flutti þangað, ég þurfti tU dæmis að læra á umferð- ina sem var smá vesen. Svo áttí ég í nokkrum erfiðleikum með að rata þar sem ég er vön einfaldara gatnakerfi. Þetta er aUt að koma samt en ég fer enn frekar furðu- legar leiðir á miUi staða sem taka mislangan tíma. Stoltur Ólsari Ég held tryggð við minn heimabæ, segi hverjum sem heyra viU hvaðan ég er því ég er stoltur Ólsari. Ég gætí alveg hugs- að mér að Tekur á að vera í Reykjavík Reykvíkingar gera stundum grín að því hvað maður er mikiU dreifari. Það er viss stimpiU á fólki af lands- byggðinni að aUir séu eins, að þú fáir ekki að hafa neitt í friði og slúðrið sé voða- legt. Brandarar um rafmagns- leysi og ófærð eru líka mjög algeng- ir. Ég tek þessu vel því ég veit betur, ætli Reykvíkingar vita hvað þeir eru að fara á mis við? Sú þró- un er í gangi að fólk flýr lands- byggðina tíl höfuðborgarsvæðis- ins. EðlUega kemur fólk hingað tíl að sækja menntun og langar kannski í meiri menningu. Ég held þó að langflestir uppgötvi eftir einhvern tíma að heima sé best. Það tekur á að vera í Reykja- vík, það tekur aUt svo mikinn tíma, það er ekki eins og maður geti skotíst út í búð eða í heim- sókn. Umhverfið getur verið soldið stressandi og orkufrekt. Heima og heiman Á heildina litið er ég ánægð með uppruna minn og hefði engu vUjað breyta. Það að vera utan af landi gerir þig víðsýnni, næmari fyrir umhverfinu og eflir náungakærleikann. Hvar sem ég verð í heiminum í framtíðinni er mitt heimfli aUtaf sú vík er kennd er við Ólaf belg.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.