Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2004, Page 30
30 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2004
Síðast en ekki síst DV
Rétta myndin
Hausttískan komin frá Mílanó.
Kristján ósáttur
„Ég er mjög ósáttur við Morgun-
blaðið," sagði stórtenórinn Kristján Jó-
hannsson árið 1991 eftir umfjöllun
blaðsins um sýningu sem hann tók þátt
í í Veróna á ftah'u sumarið áður. „Þetta
er einu sinni blað þjóðarinnar og það
blað sem þjóðin treystir hvað mest og
les mest. Morgunblaðið opinberar í
flestum tilfellum mínar eigin skoðanir,
bæði pólitískt og um iífið og tilveruna.
Ég verð að segja eins og er að mér finnst
rnpci blaðið hafa sett mikið niður í
LlLKl blaðamennsku og öllum
fréttaflutningi,“ sagði Kristján.
Honum fannst „standardinn" á
blaðamönnum hafa lækkað til muna.
„Blaðið sendir blaðakonu sem hefur
minni en enga innsýn í leikhús og enn-
þá síður í ópem. Hún fjallaði um þetta á
eins „próvinsíal" hátt og hægt er og
forðaðist það eins og heitan eldinn að
fjalla um minn þátt í dæminu, heldur
fór í kringum þetta eins og köttur í
kringum heitan graut. Síðan tók hún
einu greinina, af tugum greina sem
vom allar mjög jákvæðar þar sem talað
var um mig sem stærsta dramatíska
tenór í veröldinni."
„Ég var hreinlega búinn að loka á ís-
lenska fréttamennsku eftir þetta, því
raunverulega skiptir hún mig ekki
neinu máli. Það skiptir minn feril engu
máli hvað íslensk blöð eða fjölmiðlar
segja um mig eða yfirleitt fslendingar.
Ég er eiginlega búinn að fá mig
fullsaddan á svona öfúndsnaggi og því
að menn séu að
reyna að finna
eitthvað nei-
kvætt við það
sem ég er að
gera," sagði
Krist-
ján.
Tenórinn „...þarsem
talað var um mig sem
stærsta dramatlska
tenór í veröldinni."
Hvað segir
mamma
„Það ersvo margt hægt að segja
fallegt um hann Jónsa,* segir Guð-
rún Jónsdóttir móðirJóns Þórs Birg-
issonar söngvara og gítarleikar I
hljómsveitinni Sigur Rós sem aldrei
er kallaður annað en Jónsi.„Hann
var ótrúlega athafnasamur sem
barn en alltaf
mjög Ijúfur.
Hann hefur
alltaffarið
sfnar eigin
leiðir. Gekk
vel í skóla en
þurfti alltaf
að fara eigin
leiðir líka.
Hann var meira fyrir að búa til eitt-
hvað heldur en það að vera í fót-
bolta, hann Jónsi. Það má segja að
hann hafi verið svona listamaður af
guðs náð. Jónsi er sérstakur á sinn
hátt en voðalega Ijúfur. Mér fannst
þessi tónlist sem hann var að gera
óttalegt gutlog gaul þegar þeir
voru aö byrja. Eftirþví sem maður
hlustar meira á þetta kann maður
betur að meta hana. Ég er mjög
stolt afhonum. Ánægðust með hvað
hann er almennileg manneskja."
Jón Þór Birgisson er einn af
stofnendum hljómsveitarinnar
Sigur Rós. Hljómsveitin er nefnd
eftir systur Jón Þórs sem fædd-
ist um svipað leiti og bandið
byrjaði að spila.
Timaritið Fókus fylgir DV á morgun og
verður lesendum að þessu sinni boðið á
myndina Seed of Chucky. Stelpurnar i
Amina, sem lengi
hafa spilað með
Sigur Rós, segja frá
stuttskifu sem þær
voru að gera og
Elisabet úr Hæstu
hendinni mætir i
viðtal. Plötusnúð-
urinn Manu Rakn-
arong afKaffisetr-
inu fræðir okkur um tælenska tónlist og
sagt verður frá nýjum skemmtistað i
Reykjavik þar sem fólk borgar sig inn og
drekkur svo eins og það getur. Forsiðuna
prýðir Rósa Guðmundsdóttir sem þessa
dagana er að setja upp jólasöngleik með
Ruth Reginalds i aðalhlutverki. Fastir liðir
eins og Lífið eftir vinnu verða svo að sjálf-
sögðu á sinum stað.
ui/i i nju nuuuuri ojuriissyni, iyn-
um formanni Starfsgreinasam-
bandsins, að nota starfslokasamn-
inginn til að ferðast til Kína og Ind-
lands. Svona eiga menn að vera.
90 þúsund símtöl til Villa 800
manns vilja flúra á sig heimilistæki
„Við erum að bregðast við álag-
inu með því að laga símkerfið," seg-
ir Jón Þór Þorleifsson, pródúsent á
Skjá einum, en hann sér um fram-
leiðsluna á sjónvarpsþættinum
Bingó á Skjá einum og hafa einhverj-
ir áhorfendur og þátttakendur kvart-
að yfir því að erfitt sé að ná í gegn fái
þeir bingó.
„Þetta gerðist bara of hratt. Við
bjuggumst ekki við þessum ótrúlegu
viðtökum áhorfenda. Fyrsta kvöldið
okkar fengum við 90 þúsund símtöl.
Við einfaldlega gátum ekki séð þetta
fyrir," útskýrir Jón Þór.
Vilhelm Anton Jónsson, söngvari
Naglbítanna, stýrir þættinum. Hægt
er að fara inn á www.sl.is og prenta
út ókeypis bingóspjöld. f vinninga
eru allt frá bflum niður í tómatsósu-
bréf. Villi naglbítur, eins og hann er
kallaður, lætur viðtökumar ekki
koma sér á óvart.
„Nei, nei. Nú er ég meira að segja
kominn með Bingó-roadshow," seg-
ir Villi. „Flakka um landið og spila
bingó í félagsheimilum. Við vorum á
Hvammstanga í gærkvöldi, verðum
á hótelinu í Stykkishólmi í kvöld,
Ólafsvík á föstudagskvöld og Grund-
arfirði á laugardaginn. Þjóðin er
bingó-óð og þetta er að þrusuvirka.
Við munum halda áfram að keyra
um landið með fulla rútu af hveiti og
Idósettpappír og nammi og gefa í
vinninga," heldur Villi áffarn en tek-
ur fram að það sé meira gert en að
spila bingó á þessum skemmtunum
því þeir á Skjá einum noti tækifærið
og kynni aðra dagskrá stöðvarinnar í
leiðinni.
Bingóið er á dagskrá Skjás eins á
sunnudagskvöldum. Þar er ekki bara
hægt að vinna í bingói heldur getur
fólk einnig látið flúra á sig heimilis-
tæki og fengið það svo gefins. Um
800 manns eru á biðlista eftir að fá
gaseldavél, ísskáp eða
heimilis-
tölvu á
kroppinn í
formi húð-
flúrs. Það
kemur for-
svarsmönnum Skjás eins mjög á
óvart. Þeir áttu ekld von á því að fólk
myndi endilega vilja bera heimilis-
tæki á húðinni alla ævi.
Viili naglbítur Stjórnar vinsæl
bingóþætti á Skjá einum sem fé
kerfíð til að hrynja. Forsvarsmer
eins segjast vera að laga það.
Krossgátan
Lárétt: 1 leiði,4 bæk-
lingur, 7 úrkomu, 8 end-
anlega, 10 borðar, 12
gangur, 13 áformi, 14
súrefni, 15 miskunn, 16
nöldur, 18 kvendýr, 21
glufur,22 himna,23
gort.
Lóðrétt: 1 galaði, 2 blað,
3 himinninn,4 strok-
hljóðfæri, 5 speki, 6 lítil-
fjörleg, 9 skeldýrateg-
und, 11 snúið, 16tangi,
17 undirförul, 19 sómi,
20 neðan.
Lausn á krossgátu
ddn 03 'ejæ 61 '?J6 l l 'sðu 91 'gipun u 'ejjso 6 'Jáj 9 'l!A
S 'Jn|QU?u>i y 'uiöuussi £ '>po z '196 1 uiajgpi 'dnej zz 'ue>|S ZZ 'Jnju IZ 'ne*l 81
'66eu 91 'gyu S l 'iPI! P l '!|1* £ L 'JU z l 'Jni9 0 L 's>|Oi 8 'm6aj 3 'jaA>| y 'joj6 1 ujajen
1 2 |^H4 5 ”[6
■ 7
8 9 ■ lO pi
12
■ l4
15
16 17 ■ l8 19 120
21
22 ■ 23
Veðrið
+2**P -
Strekkingur
Qz/
Nokkur
vindur
jLA. * * Nokkur
- Nokkur +Z vindur
vindur
+ 3 .*4 ^ A
Allhvasst .3 * *
Allhvasst
Nokkur
vindur
+4 * *
Allhvasst
+5
+2
Nokkur
vindur
+4 Nokkur
vindur
* * Allhvasst