Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2004, Page 32
I
<
■*
V
f
T1 Y ^ t í* íl^Jj C 0 t Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrirhvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið íhverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar
nafnleyndar er gætt.
SKAFTAHLÍÐ 24, 105 REYKJJWÍK [ STOFNAÐ 1910 ] SÍMI550 5000
• Útvarpsmaðurinn gamalkunni
Ævar Kjartansson ætlar að
breyta vinnustofu á Baldursgötu
12 og innrétta þar íbúð. Eigin-
konaÆvars,
Guðrún Krist-
jánsdóttir mynd-
listarkona, hefur
haft starfsað-
stöðu í húsinu á
Baldursgötu.
Kunnugir telja að
Ævar og Guðrún
sem búa á
Nönnugötu hyggist ekki flytja
sjálf á Baldursgötuna heldur sé
íbúðin þar hugsuð fyrir upp-
komin börn þeirra sem stunda
nám í útlöndum. Ævar hefur
þegar fengið samþykki sumra
meðeiganda sinna fyrir áætlun-
inni. Byggingarfulltrúinn í
Reykjavík er líka búinn að segja
að allt sé þetta í lagi sín vegna...
Brotinn armur
réttvísinnar!
Leikfélagsformaður æfur við RÚV
Hótar að henda fréttamanni út af leikriti
Formaður Leikfélags Reyðarfjarðar hefur
látið þau boð út ganga að Birni Malmquist, for-
stöðumanni RÚV á Austurlandi, verði
meinaður aðgangur að lokasýningu á
leikritinu Álagabænum, sem eins og
DV hefur greint frá mun skarta ál-
frúnni sjálfri, Valgerði Sverrisdóttur
iðnaðarráðherra, í einu hlutverka.
Ástæðuna segir Guðmundur Hraun-
fjörð leikfélagsformaður vera áhuga-
leysi RÚV á því starfi sem fari fram í
leikfélaginu. Guðmundúr hefur auk
þess hringt í Markús Örn Antonsson
útvarpsstjóra og kvartað yfir almanna-
útvarpinu.
„Ég er búinn að tala við
útvarpsstjóra og skamma
hann fyrir þetta," sagði Guð-
mundur Hraunfjörö í nýút-
komnum Austurglugga
sem íjallar um málið.
Reiði Guðmundar og leikfélagsmanna er að
sögn Guðmundar tilkomin vegna meints áhuga-
leysis svæðisútvarps RUV á Austurlandi á
sýningum leikfélagsins og skorti á um-
íjöllun um leikrit á vegum leikfélagsins.
Segist Guðmundur ítrekað hafa reynt
að fá Bjöm Malmquist og hans fólk
til að koma á sýninguna og fjalla
um hana en án árangurs.
Dagskrárgerðarmenn hjá Ríkis-
útvarpinu í Efstaleiti hafi þó sýnt
starfi leikfélagsins áhuga.
„Við komumst einu
sinni í útvarpið en þá
var það fyrir
tilstilli
Fréttamaðurinn „Nó komment, “ og
„Egkýs að tjá mig ekki um þetta,“eru
viðbrögð Björns Malmquist við ásök-
unum Guðmundar leikfélagsformanns.
málaútvarpsins," segir Guðmundur, augljóslega
hneykslaður á áhugaleysi svæðisstöðvarinnar á
Egilsstöðum.
Hefur Guðmundur enda látið þau boð út ganga
innan leikfélagsins að Bimi Malmquist og „krúi"
hans verði meinaður aðgangur að lokasýningu
leikfélagsins næstkomandi laugardag- að minnsta
kosti ef erindið verður að taka upp og fjalla um leik-
ritið fyrir útvarpið.
„Það verða menn í dyrunum og þeir hafa fengið
þá skipun að Björn verði látinn borga inn eins og
aðrir. Hafl hann einhver tæki með sér verður
hann afvopnaður," segir Guðmundur við
Austurgluggann og meinar bersýnilega hvert
orð.
Björn Malmquist, sem leikfélagsformað-
urinn hyggst meina að fjíilla um leikritið, er
þögull um málefni leikfélagsins sem fýrr. „Ég
kýs að tjá mig ekki um þetta,“ segir hann.
Herskái leikfélagsformaðurinn Guð-
mundur Hraunfjörð hótar að henda Birni
Malmquist út af ieiksýningu á Reyðarfirði
næsta iaugardag vegna skorts á umfjöllun
um leikrit.„Hafi hann tæki með sér verður
hann afvopnaður/segir Guðmundur.
Sækir sýknu með
annarri hendi
„Ákæran gegn skjólstæð-
ingi mínum er nú þannig
ég get hér hæglega haldið
fram sýknu með annarri
hendi," sagði Sveinn Andri
Sveinsson, lögmaður
manns sem ákærður
er fyrir að aðstoða
son sinn við inn-
flutning átta kílóa
af hassi. Maður-
inn segist sjálfur
hafa sótt dekk
.
sem í voru
hasskílóin átta í
þeirri trú að um
væri að ræða
dekkjaprufur
sem sonur hans
hygðist flytja inn.
Það var þó ekl
af drambi einu saman sem Sveinn
kvaðst fá skjólstæðinginn sýknað-
an með annarri hendi því fyrir því
eru læknisfræðilegar ástæður.
Sveinn varð nefnilega fyrir því
óhappi á mánudagsmorgun
falla í hálkunni sem þá
breiddi úr sér yfir stræti og
torg höfuðborgarinnar.
Því mætti hann með
hönd - í fada -
í héraðs-
dómi á þriðjudag.
Sveinn bar sig nokkuð
vel eftir byltuna en má reikna
með að þurfa að hlífa vinstri
sinni í nokkurn tíma.
Hægrimaður með vinstri í
fatla Sveinn Andri / héraðs-
dómi i fyrradag.
Sigurjón frjálslyndi látinn blása
Sigurjón Þórðarson, alþingis-
maður frjálslyndra, hefur verið
stöðvaður tvisvar af lögreglu síðustu
vikur og látinn blása í áfengismæli.
Varla þarf að taka ffam að þingmað-
urinn var allsgáður. „Ég var að koma
af landsmóti um miðjan sunnudag
þegar ég var stöðvaður. Síðan var ég
stöðvaður á leiðinni upp á flugvöll. í
bæði skiptin var ég bláedrú," segir
hann. í seinna skiptið beindi hann
spurningu að lögreglunni: „Af
hverju eruð þið alltaf að láta mig
blása?" Hann veltir fyrir sér hvað
veldur. „Kannski er þetta aksturslag-
ið, en ég hef sloppið tiltölulega
áfallalaust í gegnum umferðina. Það
er spuming hvort þetta sé eitthvað
umferðarátak sem snýst gegn viss-
um þingmönnum."
Þingmenn, sem aðrir, hafa verið
gripnir fyrir ölvunarakstur í gegnum
tíðina. Til að mynda sat einn þing-
maður í fangelsi í upphafl kjörtíma-
bilsins fyrir að aka ölvaður, en það
Sigurjón Þórðarson Hefur tvisvarþurft að
blása í áfengismæli slðustu vikurnar.
var Gunnar örlygsson, þingmaður
Frjálslynda flokksins.
Sigurjón segir að sér leiðist ekkert
að blása. Hann er þekktur sund-
kappi úr Skagafirði og nýtur þeirrar
reynslu.
ORIENTAL RESTAURANT
UGAVEG119
Hollustuna heim!
Hollur og góður kínamatur,
stórir skammtar - beint heim til þín.
TILBOÐ 1 K TILBOÐ 2 |
Djúpsteiktar rækjur WOK steikt svínakjöt í # TIGER-sósu • Kínverskar eggjanúðlur • mi kjúklingi og grænmeti • Nautakjöt m/bambus # og kinasveppum « Hrísgrjón og súrsæt • sósa • • Djúpsteiktar rækjur YU SIANG kjúklingur Lambakjöt m/ostrusósu WOK steikt svínakjöt í TIGER-sósu Hrísgrjón og súrsæt sósa
1.245 á mann 2.490 fyrir tvo 1 1.345 á mann 1 2.690 fyrir tvo p
TILBOÐ 3
Rifjaveisla
WOK steikt svínarif
í TIGER-sósu
Hrísgrjón
Poki af MAARUD
flögum fylgir
1.150 á mann
2.300 fyrir tvo
BARNABOX
2 kjúklingaleggir,
franskar og kokkteilsósa
KINDER egg fylgir
600 á mann
2 LCOKE
OG
RÆKJU-
FLÖGUR
FYLGJAí
„TAKE
AWAY“
STAKIR RÉTTIR
1. Indókína súrsætar rækjur 1.050 15. Kanton svínarif 1.250
2. Djúpsteiktur humar m/súrsætri sósu 1.570 16. Séreldað lambakjöt m/Pekingsósu 1.395 .
3. Eldsteiktur humar m/hvítlauk og grænmeti 1.570 17. Lambakjöt í alvöru Malasíu karrýi 1.395'
4. Hainan humar, aðal humar kínahverfisins 1.570 18. Súrsætur kjúklingur 1.350
5. Djúpsteikt ýsa m/súrsætri sósu 1.195 19. Kjúklingur m/brokkólí og hvítlauk 1.350
6. Pönnusteiktur fiskur m/grænmeti chop suey 1.195 20. Kjúklingur m/hnetusósu 1.350
7. Snöggsteiktur smokkfiskur m/chilli sósu 1.195 21. Steikt Kanton hrísgrjón m/kjúklingi 950
8. Súrsætt svínakjöt 1.250 22. Singapore steikt hrísgrjón 950
9. Kanton svínakjöt won ton 1.250 23. Steiktar núölur m/kjúklingi 950
10. Svínakjöt m/ostrusósu chop suey 1.250 24. Hong Kong eggjanúðlur 950
11. Nautakjöt m/ostrusósu 1.395 25. Steiktar núðlur m/nautakjöti 950
12. Nautakjöt m/svartbaunasósu 1.395 26. Kjúklingafylltar vorrúllur 950
13. Nautakjöt m/svartpiparsósu 1.395 27. Snöggsteikt grænmeti m/tofu og kínasveppum 950
14. Lambakjöt m/ostrusósu 1.395
FRÍ HEIMSENDING
Lágmarkspöntun er kr. 1.900.- en kr. 4.000.- í Hafnarfjörð.
Opið: mán.-fim. 12-22, fös. og lau. 12-23, sun. 17-22
PONTUNARSIMI 552 2399