Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2004, Qupperneq 3
DV Fyrst og fremst
ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2004 3
„Þetta var alveg rosalega skemmtilegt pressuball og er mér
mjög minniststætt því ég bar upp bónorðið á því við Hrefnu
Harðardóttur og hún tók því,“ segir Ingvi Hrafn Jónsson út-
varpsmaður en gamla myndin að þessu sinni er frá Pressuball-
inu 1966 sem margir telja að hafi verið hápunktur þeirra
skemmtana fyrr og síðar. Ekki hvað síst vegna þess að Jens Otto
Kragh og frú Helle Virkner voru heiðursgestir á ballinu.
„Það sem einnig er minnisstætt frá þessu balli er að kvöld-
maturinn var algert stórslys," segir Ingvi Hrafn. „Það var verið
að vígja Lídó með þessu balli og var maturinn sendur upp úr
eldhúsinu í sérstakri lyftu. Það gekk svo seint og illa að síðustu
gestirnir voru að fá matinn um klukkan ellefu um kvöldið. Eins
og íslendinga er háttur var drukkið stíft meðan beðið var eftir
matnum og sumir hreinlega dóu ofan í steikina sína.“
Ingvi Hrafn segir að á þessum U'ma hafi hann verið nýbyrj-
aður á Morgunblaðinu og sótt mörg Pressuböll síðar. Ekkert
þeirra sé þó jafn eftirminnilegt og þetta. „Þarna voru allir sem
eitthvað máttu sín mættir með ríkisstjórnina í heild sinni í
broddi fylkingar," segir Ingvi Hrafn. „Það þótti líka sérstakur
heiður að Jens Otto Kragh forsætisráðherra Dana kom með eig-
inkonu sinni Helle sem var dáðasta leikkona Dana á þessum
árum."
Spurning dagsins
Hvaðeiga
íslendingar að auglýsa í New York Times?
Fegurð landsins
„Við vorum nú bara að koma til landsins en eflslendingarætla
að mótmæla stríðinu ÍThe New York Times er það gott.
Bretlandi styður stríðið nema
ríkisstjórnin. Annars geta
Islendingar llka auglýst
fegurð landsins. Þið eigið
ótrúlegt land sem þið
megið vera stolt af.“
Miles og Joy Biggs
ferðamenn.
„Ég veit það bara ekki. Mér líst
Ijómandi vel á
auglýsinguna á
móti stríðinu I
Irak. Mig
langar til að
styrkja þá en er
í augnablikinu
atvinnulaus og
blankur. Ég styrki þá bara I
huganum.“
Kristján Guðnason
atvinnulaus.
„Ég held að
þetta á móti
stríði sé ekki að
virka. Það á
frekar að
auglýsa
ferðamannabransann, flottustu
fljóðin eða bara
blómaskreytingar!"
Steinar Björgvinsson
blómaskreytari.
„Úff! Ég hefenga skoðun á
þessu. Er samt á móti stríðinu.
Fannst það í
lagi í byrjun en
núerþetta
komiðútí
rugt. Mega
menn ekki
auglýsa hvað
sem er7“
Herdís Ingimarsdóttir
námskona.
„Mér dettur
bara ekkert I
hug. Sætar
stelpur. Myndu
Kanarnirekki falla fyrirþví?"
Þórunn Hjálmarsdóttir
skrifstofukona.
Þjóðarhreyfingin safnar nú fyrir heilsíðuauglýsingu í New York Times
þar sem stríðinu í Irak verður mótmælt undiryfirskriftinni Ekki í
okkar nafni.
Þúsundir í óperunni
Á ftah'u og í Bandaríkjunum eru flest þeirra óperuhúsa sem taka mestan
áhorfendafjölda. Reyndar eru þau stærstu ekki öll undir þaki og í sumum
þessara óperuhúsa komast enn fleiri að ef selt er í stæði frekar en sæti.
Óperuhús Staður Sæta- fjöldi
I.ArenadiVerona Verónu á ftalíu 16.663
2. Municipal Opera Theater St. Louis i BNA 11.745
3.Teatroalla Scala Mílanó á ftalíu 3.600
4. Civic Opera House 5. The Metropolitan Chicago í BNA Lincoln-miðstöðinni, New York í BNA 3.563 3.500
ö.Teatro San Carlo Napólí á ftalíu 3.500
7. Music Hall Cincinatti í BNA 3.417
8.The Hummingbird Center Toronto (Kanada 3.200
9.Teatro Massimo Palermó á ftalíu 3.200
10. Halle aux Grains Toulouse í Frakklandi 3.000
ÞEIR ERU SKYLDIR
Benedikt Erlingsson leikari er sonur leikarahjón-
anna Brynju Benediktsdóttur og Erlings Glslasonar.
Leiklistin er honum þvíí blóö borin. Hann gekk siðan
leikkonu, hina dönsku Charlotte Boving.
eru þetta sannir Reykvtkingar ogbúaí hjarta
borgarinnar, við Laufásveg og
Þingholtsstræti. Benedikt er eina
barn þeirra Brynju og Erlings
en fyrir átti hann synina
Guöjón og Friörik.
HlJ ' \ 4*
y! Y v V
JUöfevj’ T.
ÆSr.
l . m f
SPAKMÆLI
ÞAÐ ER STAÐREYND
„EKKI ER NÓGAD
VERA GÓÐUM
GÁFUM GÆDD-
UR. AÐALATRIÐ-
IÐERAÐNOTA
GÁFURNAR.“
RENE DESCARTES 1596-
1650.
... að I fyrri
heimsstyrjöld-
inni vareinn
af hverjum
þremur ensk-
um karlmönn-
um á aldrinum
17-39 ára
drepinn.
Lyki/I tiá Hátd Örk
FRÁBÆRJÓLAGJÖF
INNIFALIÐ íLYKLUM: Gistingfyrir2, morgunverður af hlaðborði
og þrírétta kvöldverður hússins.
Tilvalin gjöf handa:
Starfsmönnum - Eiginkonunni - Eiginmanninum - Kæmstunni
Kærastanum - Ömmu og afa - Frænku - Frænda - Vinum
JÓLALYKLAR AFHENDAST í FALLEGUM GJAFAPOKA
Lyklar frá 13.800,- krónum. Nánari upplýsingar á www.hotel-ork.is
Gjafalyklar eru til sölu á Hótel Örk í síma 483 4700
og á Hótel Cabin Borgartúni 32 Reykjavík í sími 511 6030.
ENN FÁEINIR MIÐAR LAUSIR Á JÓLAHLAÐBORÐ.
VEISLUSTJÓRI FLOSI ÓLAFSSON OG DANSLEIKUI
MEÐ STUÐHLJÓMSVEITINNI ÞÚSÖLD. tj
OTEL ÖRK