Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2004, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2004, Síða 8
8 ÞRIÐJUDACUR 7. DESEMBER 2004 Fréttir DV Fiskvinnslu- og útgerö- arfyrirtækið Oddi hf. á Pat- +reksfirði hagnaðist um 10,9 milljónir króna á síð- asta rekstrarári félagsins sem lauk 31. ágúst. Fyrra ár var hagnaðurinn 18,4 millj- ónir króna. Rekstrartekjur lækkuðu vegna sölu á öðru skipi félagsins, Garðari BA. Einnig hafði hækkandi gengi krónunnar áhrif til lækkunar fiskverðs á erlendum mörkuðum. Draumur að veruleika Björgvin Valur Guð- mundsson, bæjarfulltrúi í Austurbyggð, upplýsti á síð- asta fundi bæjarráðs að tek- ist hefði að safna nægilega mörgum áskrifendum á Stöðvarfirði til að fá ADSL- tengingu frá Símanum í bæinn. „...og nú sjái menn fram á að sá draumur rætist alveg á næstunni", eins og segir í frásögn á fundinum. Þegar af verður bætist meðal annars við framboð af sjónvarpsstöðvum hjá Stöðfirðingum. Sjö dópmál Fáir voru á ferli í miðbæ Reykjavíkur aðfruranætur laugardags og sunnudags. Nokkuð var þó um mikið drukkna einstaklinga og erfiða viðureignar að því er lögregla segir. Sjö fíkniefha- mál komu upp. Meðal fíkniefnamálanna var að bifreið var stöðvuð í aust- urborginni á laugardag. Við leit í bifreiðinni fundust fíkniefni og kannabis- planta. Tveir voru hand- teknir vegna málsins. í framhaldinu var gerð hús- leit á heimili hinna hand- teknu. Þar fundust fleiri kannabisplöntur. Flugfélag íslands Vestfirðingar sendir heim Megn óánægja var meðal vest- firskra viðskiptavina Flugfélags ís- lands á Reykjavíkurflugvelli með vinnubrögð félagsins eftir að flugi var frestað vegna veðurs í gær- morgun. Þegar farþegar vélarinnar, sem fara átti til ísafjarðar klukkan þrjú, mættu á staðinn kom í ljós að flugfélagið hafði ákveðið, án til- kynningar, að láta farþega morgun- vélarinnar fara á undan þeim sem áttu bókað. Þeir sem áttu pantað far með þeirri vél sem næst var á leið í loftið voru sendir heim. Að sögn ætíaðs farþega fékk hann þau svör að lokum að ekki yrði flogið meira vegna þess að flugmenn væru komnir á yfirvinnukaup. Flugfélag fslands er eina flugfé- lagið sem flýgur til ísafjarðar. Félag- ið flýgur ekki vestur í myrkri, en það hamlar ekki flugi til Akureyrar og Vestmannaeyja. Þótti vestfirsku far- TF-JMU Flugfélag fslands Farþegar voru svekktir í gær. þegunum undarlegt að ekki væri notað tækifærið og flogið vestur meðan hægt var. Eðlilegast þótti þeim að flugfélagið baktryggði sig með þeim hætti að það væri fært um að sinna þjónustunni sem það býður upp á, enda kostar ekki mikið minna að fljúga til ísafjarðar en Kaupmannahafnar. Þrír menn eru grunaðir um árásina í Fossvoginum um helgina. Einn þeirra, Ottó Atlason, neitar aðild. Ottó hafði slegist við húsráðandann, Friðrik Johnson, fyrr um kvöldið og átti harma að hefna. Árásarmennirnir voru á bak og burt þegar sérsveit kom á staðinn og ganga allir lausir. Lögreglan verst frétta af gangi rannsóknarinnar. en ganga lausir Lögreglan hefur þrjá menn grunaða um árásina í Fossvogi um helgina. Þeir hafa allir verið kallaðir í yfirheyrslur en enginn þeirra hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald. Mennirnir þrír skutu upp lás og réðust á húsráðanda með golfkylfu og hamri. Ástæðan var hefnd. Það voru þrír menn sem réðust á Friðrik Johnson í Fossvoginum um helgina en ekki sjö eða átta eins og greint hefur verið frá í fjölmiðlum síðustu daga. Lögreglan hefur yfir- heyrt mennina sem allir hafa komið við sögu lögreglunnar áður. Árásin var hefndaraðgerð. Einn af mönnunum þremur, Ottó Atlason, neitar því að hafa ver- ið hluti af hópnum sem réðst á Frið- rik. „Við lentum í slagsmálum fyrr um kvöldið og skildum ekki í góðu," segir hann. „Eg veit samt ekki hverj- ir réðust á hann seinna. Ég var ekki einn af þeim." Samkvæmt heimildum DV er ástæða árásarinnar hefnd fýrir slagsmálin fyrr um kvöldið. Einnig ganga sögur um meint ofbeldisverk Friðriks sem strákarnir þrír hafi ætíað að hefna fýrir. Engin þeirra frásagna hefur fengist staðfest og sjálfur segir Friðrik þetta rógburð. Ómar Smári Friðriksson, aðstoð- aryfirlögregluþjónn hjá Lögregl- unni í Reykjavík, segir rannsókn í fullum gangi en á þessum tíma- punktí sé erfitt að staðfesta ná- kvæma atburðarás. Hún muni skýr- ast á næstu dögum. Atburðarásin virðist hafa verið á þann veg að Ottó og félagar spörk- uðu upp útidyrahurðinni að Loga- landi 17. Þegar inn var komið neitaði Friðrik að opna dyr íbúðar sinnar svo einn af þremenningunum, sem gengur undir nafninu Davíð Capone, skaut upp lásinn. Mennim- ir mddust inn og rústuðu íbúðina. Friðrik var laminn með golfkylfu og hamri. Mennirnir þrír virðast hafa farið úr íbúðinni aðeins nokkrum mín- útum eftir að þeir ruddust inn. Lögreglan fór ekki inn í íbúðina fyrr en um hálftíma seinna. Ástæð- an var bið eftir sérsveitinni. Þegar sérsveitin var loksins komin á stað- inn voru árásarmennirnir á bak og burt. Ottó Atíason neitar því að hafa átt aðild að árásinni. Samkvæmt heimildum DV hafa mennirnir þrír sammælst um að neita því að hafa ruðst inn. Lögreglan lýsti eftir Ottó um helgina og leitað að rauðum bíl hans um alla borg. í blaðinu í gær var sagt frá því að Friðrik hefði slasast á hönd fyrir um tveimur vikum í mótorhjólaslysi. Friðrik segir það ekki rétt. Hann hafi slasast í júh' í sumar. „Það er fráleitt að áverkar mínir séu eftir mótorhjólaslysið en ekki árásina," segir hann. simon@dv.is „Við lentum íslags- málum fyrr um kvöldið og skildum ekki í góðu" Meint skotför á hurðinni Árásarmennim- ir skutu upp lás á hurð að íbúð Friðriks. Norðanstúlka sendir ráðherra kveðju Valgerður gerði mig að morðingja Valgerður Sverrisdóttír, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, segir ffá því að ung stúlka að norðan hafi sent henni bréf og sagt ráðherrann hafa gert sig að morðingja með því að styðja stríðið í írak. Þessu segir Valgerður frá á heimasíðu sinni á netinu. Val- gerður segist vera hugsi yfir þessari kveðju stúlkunnar og fer yfir aðdrag- anda þess að ísland var sett á lista þeirra staðföstu þjóða sem studdu innrásina í írak. Telur Valgerður að það hafi verið eðlilegt í ljósi sögu- algerður Sverrisdóttir túlka að norðan sakaði hana um að hafa gert sig að morðingja. legra tengsla við Banda- ríkja- menn og Breta og aðild fslands að Atíantshafsbandalaginu. Valgerður bendir einnig á að ísland hafi ekki haldið úti herliði í írak heldur hafi íslensk stjórnvöld eingöngu staðið með bandamönn- um sínum í stríðinu. Það sé allt ann- ar hlutur. „Ég er að afgreiða vel gert jólahlaðborð okkar á fullu og það gengur bara vonum framar. Svo erég að undirbúa nýtt„Food and Fun"-matarævintýri sem skellur á í febrúar næst- “ segir Sigurður Hall, matreiðslumaður á Hótel Óðinsvéum. Hvað liggur á?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.