Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2004, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2004, Blaðsíða 25
DV Menning ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2004 25 Litla skrímslið vann Dimmalimm Idómnefnd vegna barnabókaverð- launanna Dimmalimm. sem veitteru árlega fyrir myndskreytingar íslenskra barna-og unglingabóka sátu Aöol- steinn Ingólfsson, listfræðingur, fyrir hónd Gerðubergs, Kalman le Sage de Fontenay, grafískur hönnuður, fyrir hönd Myndstefs og Þórdis Alda Sigurð- ardóttir, myndlistarmaður, fyrir hönd Pennans, sem er helsti styrktaraðili verðlaunanna. Sem fyrr var dómnefndin á höttum eftir myndskreytingum sem ykiu við ritaðan texta með hugmyndaríku upp- broti á formi og myndmáli, sem aftur yrði til þess að örva ímyndunarafl og þroska félagsvitund ungra lesenda. Að þessu sinni varð fyrir valinu bókin „Nei! sagði litla skrímslið“ með texta eftir Rakei Helmsdal og Kalle Guettler, en myndum eftirÁslaugu Jónsdóttur. Bókin uppfyllti flest þau sk.ilyrði sem hér eru tlunduð. Myndmál Áslaugar er bæði stórbrotið og fyndið og helst i hendur við brot bókarinnar, samspil mynda, texta og rýmis á siðum er óvænt og líflegt og síðast en ekki síst er boðskapurinn áríðandi en aldrei uppáþrengjandi. Um skreytingar Áslaugar sagði héri DV snemma á þessu hausti:,.Það er ekki siður ánægjulegt við útgáfu bók- arinnar að islenskur listamaður nái fátum á erlendum markaði með þátt- töku i samnorrænu verki og prenti sem kemur út á öllum Norðurlöndunum nú í haust. Allir aðstandendur geta verið ánægðirmeð vel unnin grip, prentun og band býður upp á stööuga höndl- un hjá þeim sem vilja halda bókum að börnum sínum." Dómnefndin vildi einnig nefna til nokkrarmjög ólikarinnbyrðis bækur, þar sem myndskreytingar eru lofsverð- ar: Grautardalls sögu með myndum Sigurborgar Stefánsdóttur með bland- aðri tækni, Litla bangsa llluga Jökuls- son með iitríkum tölvuteikningum Inga Jenssonar. Loks vildi nefndin geta lofsverðrar tilraunar bókaútgáfunnar Pjaxa, sem gefur út Ragga litla í jóla- sveinalandinu eftirHarald S. Magnús- son.þarsem börn sjáalfarið um myndskreytingarnar og ferst það prýðilega úr henai. Þetta er i þriðja sinn sem verðlaun- in eru veitt. Þau hafa áður faH- iðjskautHöllu Sólveigar Þor- geirsdóttur og 8ri- ans Pilkington. Ný heimildarmynd um baróninn á Hvítárvöllum var frumsýnd á sunnudaginn í Ríkissjónvarpinu. Á sunnudagskvöld frumsýndi Ríkisútvarpið - sjónvarp nýja heim- ildarmynd eftir Dúa Landmark sem framleidd var af fyrirtæki hans í samvinnu við Ríkisútvarpið með styrk frá Kvikmyndamiðstöð ís- lands. Baróninn á Hvítárvöllum hafði löngum heillað áhugamenn um ís- lenska sögu - til eru nokkrir heim- ildaþættir um hann og atvinnu- rekstur hans um aldarhvörf nítjándu aldarinnar. Tilraunir hans til rekst- urs stórbýhs á HvítárvöUum, gufu- báts sem flutti vörur frá Reykjavík upp í Borgarfjörð og fjósið við Bar- ónsstíg: aUar þessar stórhuga fram- kvæmdir hans höfðu lengi verið um- ræðuefni þegar Dúi fékk áhuga á sögunum og setti sig skömmu síðar í samband við Þórarinn Eldjárn sem frefur um árabil unnið að því að safiia saman gömlu og nýju efhi um þennan mann. Man ég rétt að upphaf þess að Þórarinn tók að sinna sögu þessa flökkufugls í Borgarflrðinum hafi verið áhugi Jakobs Magnússonar að gera um hann kvikmynd? Þátturinn á sunnudagskvöldið vakti reyndar fleiri spurningar en hann svaraði, enda virtist hann á köflum vera hvatning áhorfendum að komast í skáldsögu Þórarins um ævi braónsins og örlög sem er ný- komin út. Þórarinn tókst í þættinum á við sögumanninn Dúa og áttu báð- ir fullt í fangi með sitt: Dúi að segja sem mest og Þórarinn sem minnst, minnugur þess að bókin var enn í handriti. Því má spyrja hvort ekki hefði verið raunsærra að geyma þáttinn ffarn yflr útkomu skáldsög- unnar og taka þræði þaðan í samtöl- um, í stað eintala Þórarins. Verk Dúa bar öll merki okkar fá- tæku hefðar: myndasagan var byggð upp af kvikmyndabútum frá öðrum áratug aldarinnar sem komast næst tíma barónsins, ljósmyndum frá samtíma hans, málverkum af Reykja- vík þess ú'ma (eftir Jón Helgason biskup?), filmuðum pappírum og skjölum, auk ótal myndskeiða af Þór- arni á ýmsum tímum og loks leiknum atriðum þar sem Stefán Jónsson leik- ari var á göngutúr um Borgarfjörð- Dúi Landmark Svarthvítir kaflar vel unnir DV-mynd GVA inn. Svarthvít endurvinnsla á þeim og skyjamyndum, streymandi vatni var raunar vel heppnuð. Hér var litlu tíl að tjalda og svið- setning, sjálfstæði frá gögnum í texta Baróninn Heimildarmynd eftir Dúa Landmark Landmark Kvikmyndagerð 2004 ★ ★ Kvikmyndir myndar og tals ekki nægilegt til að okkur væri færð heim sagan um að- alsmann, listamann úr brotínni fjöl- skyldu sem vildi fóta sig í fram- leiðslugreinum í norðrinu frekar en suðrinu þar sem margir jafnaldrar hans frá Evrópu leituðu hófanna um framtíð og auðsæld. Ekki var heldur spurningum svarað, hvorki af Þór- arni né Dúa: var baróninn samkyn- hneigður? Var það hlutí af hörmuleg- um dauðdaga hans á þriðja í jólum í lest inn í London? Víst er saga barónsins heillandi - af því við vitum svo fátt - en var nokk- uð efni til staðar sem réttlætti kvik- myndaþátt um hann? Hefði útvarps- þáttur ekki betur dregið þau gögn saman? En eintakið af sögunni hans Þór- arins er á borðinu mínu og ég bíð spenntur að lesa það og fá fróðleiks- þorsta um útlending, hámenntaðan og fágaðan, sem lét sig dreyma um að setjast hér að um aldamótin 1900 og gjörði tfl þess djarfa tilraun. Það er spennandi saga. Páll Baldvin Baldvmsson Flökkufugl í fjosi Af ferðum Einars Kárasonar Það erskrök i fréttatilkynningu sem fylgir ferðaþáttum Einars Kárasonar frá Máli og menningu. Einar Kárason sýnir ekki á sér nýja hlið í þessari bók. Hann er einfaldlega eins og hann hef- ur alltafverið: sögumaður afGuðs náð. Víst greina ferðasögurnar fjórar sem bókin er sett saman úr frá talsvert persónulegri þáttum í lífi skáldsins, þáttum sem hann hefurekki freistast til að skella beint afskepnunni inn á skáldsögur sínar til þessa, þó bæði í fyrstu skáldsögu hans og sögunum sem seinna urðu að Killiansfólkinu megi greina parta afllfi hans sem kunnugir voru þeim sem þekktu til Ein- ars og fólksins hans. Hér eru minnin úrsögunum skýrar orö- uð, ekki færö í tilbúið söguform heldur eru þau einungis réttar og sléttar frá- sagnir aflífshlaupi manns á miöjum aldri: fallega falin minning um föður hans sem á alvarlegustu augnablikum frásögunnar verður að heldur knappri og hraðri yfírferð um grimm örlög föð- urfólks Einars. Þar verður stórkarlalegur stíllinn skyndilega þéttur og tekur á sig blæ sem hefuraðeins sést í skrifum skálds- ins á mjög einangruðum stööum: Ein- ar vill einatt hjúpa stórdrama í skrifum slnum, minningin um Kára föður hans erlaus við tilfinningasemi, nema í klif- Einar Kárason Stórkarla- legur stillinn verdur skyndilega þéttur. unum sem veröa sorgarstef sem er endurtekið nokkrum sinnum og fær alltafmeiri og meiri þyngd. Hér er sem sagt vanur sögumaöur á ferðinni. Stíll Einars veldur því að mað- urferalltafað heyra röddina tala, fínn- ur fyrir hljóðdvölum og persónulegri hrynjandi hans sjálfs, söguandinn er svo skemmtilega skroppinn beint úr munninum á blaðið. Jafnvel Iþeim köflum þar sem sögumaður verður að fornum sið að rekja sagnfræðilega eða staðfræðilega þætti sem eru sögunni á endanum nauðsynlegir, má heyra fyrir þessari sterku rödd, þessum persónu- lega blæ. Þetta er ekki löng bók eða mikil að vöxtum. Þættirnir hefðu jafnvel mátt liggja lengur I sögusjóönum og fá samferðasögur síðar meir. Þeir eru aft- ur bráðskemmtilegir þegar best lætur og bregða vissulega skýru Ijósi á ferða- ár ungra manna um eyjar og lönd fyrir 1980 þegar þeir skáldbræður og nafn- ar lögöust I þrældóm I Færeyjum og sóuðu slðan hýrunni á ferða lagi um England og Frans. Ramminn um minningu um föður hans er kostuleg ferð í tóbaksleit aust- ur fyrir fjall og loks er komin skýring á seinum skilum á þýöingu á Hryllings- búðinni. Lýsing á sendinefndarför til Jemen sýnir hvernig höfundurinn er Hvar fróm- ur flækist 1 1INAK KAKASON 1 eftir Einar Kárason. Mál og menn- ing. Verð 4.290 kr. m 1 •Íg&Jk 1 Bókmenntir naskur á smáatriði í frásögn þegar hann kemstí söguefni. Annað eríndi á vegum rithöfundasamtaka skilar hon- um tilAuswitz undirgráum himni. Ekki erstaðurinn kræsilegri I sól og breyskjuhita. Aföllu þessu verður manninum saga. Bygging þáttanna rís frá hinu grodd- aralega og gamansama til æ meiri al- vöru og enda I hátindi. Safniö er þannig hugsað sem heild. Safnið verður seint talið meöal veiga- mestu verkum Einars en hann dregur hér fleiri strá I vefinn sem skáldskapar- llfhans er þegar oröiö. Páll Baldvin Baldvinsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.