Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2004, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2004
Fréttir DV
Elskuðust
við pylsuvagn
Snemma á laugardags-
morgun barst lögreglunni í
Reykjavík tilkynning um
par í ástaratlotum í bifreið
sem lagt var við pylsuvagn í
miðbænum. Lögreglan fór
á staðinn og hafði tal af
elskendunum. Reyndist
þetta vilji beggja og var því
ekkert frekar aðhafst í mál-
inu en parinu bent á að
halda leiknum áfram utan
almannafæris.
Ábyrgðar-
lausir
foreldrar
Lögreglan á Selfossi
telur rétt að brýna fyrir
foreldrum að börn
þeirra noti endurskins-
merki en það hefur vak-
ið athygli lögreglu-
manna að notkun þeirra
er lítil. Þá sést af og til til
endurskinsmerkjalausra
barna á ljóslausum hjól-
um án hjálma í myrkr-
inu. Verður að telja að
foreldrar séu ekki að
axla ábyrgð í foreldra-
hlutverkinu þegar svona
gerist.
Tilnefningar til
bókmennta-
verðlauna
Eirfkur Guðmundsson,
bókmenntafræöingur á Rás 1.
„Nei, ég er ekki sáttur. Það
vantaði á þennan lista þá
Braga Ólafsson, Steinar Braga
og Guðberg Bergsson. Val
nefndarinnar að þessu sinni
kom méralveg f opna skjöldu
en eigi að síöur virðist tiigang-
urinn vera sá að gera alla
sátta. Þarna er barnabókin,
giæþasagan og Ijóðið en ekki
endilega bestu bækurnar í ár.“
Hann segir / Hún segir
„Þetta eru fremurléleg skáld-
sagnajól og ég hefekki mikla
skoöun á tilnefningum þetta
árið. En minn listi hefði orðið
öðruvísi. Þaö er margt skrýtiö I
bókmenntaheiminum. Einar
Már fékk ekki tilnefningu á
sinum tíma fyrirEngla
alheimsins en er nú tilnefndur
fyrir eina slökustu skáldsögu
sína. Af tilnefndum bókum eru
það bækur Arnaldar og
Halldórs Guðmundssonar sem
standa upp úr. Ég vona aö þeir
vinni.
Kolbrún Bergþórsdóttir
bókmenntagagnrýnandi.
Kokkurinn á Litla-Hrauni, sem varö fyrir aðkasti eftir aö gleraugu fundust í blað-
laukssúpu, biðst afsökunar á að fingur af hanska hafi lent í londonlambi. Kokkur-
inn, Páll Björgvin Ingimarsson, segir mannleg mistök hafa orðið en yfirleitt gangi
samstarfið við fangana vel.
Hanski í sunnudapssteikinni
hiá föngunum á Litla-Hrauni
Fangi fann fingur af hanska í londonlambi á sunnudagskvöld.
Kokkurinn segir þetta mannleg mistök sem hann hafi beðist af-
sökunar á, en þetta er sami kokkur og missti gleraugu í blað-
laukssúpu fanganna um daginn.
Fangi á Litla-Hrauni varð orðiaus
þegar hann fann pjötlu af hanska í
londonlambi sem borið var fram
sem sunnudagssteik fyrir fanga í
fyrrakvöld.
„Það var gúmmípjatla í lamba-
kjötinu og ég skildi ekkert í því
hvernig hún hafði komist þangað.
Svo sáum við að þetta var framan af
hanska og getur ekki komið annars
staðar en úr eldhúsinu," segir fang-
inn sem býr á fyrirmyndargangi en
vill ekki koma fram undir nafni.
Hann situr inni fyrir að hafa orðið
manni að bana.
Baðst afsökunar
Páll Björgvin Ingimarsson kokkur
segist hafa beðist afsökunar. „Ég er
búinn að útskýra þetta fyrir fangan-
um og biðjast afsökunar," segir
hann. „Það hefur skorist af enda á
hanska sem ég var að vinna með.
Þetta var venjulegur gúmmfhanski
sem við notum til að passa upp á
hreinlætið. Þetta var nýr hanski en
það getur hafa gerst að þetta hafi
farið af þegar ég var að skera netið
utan af london-
lambinu.
Svona
//
Svona getur komið
fyrír, þetta voru
mannleg mistök."
getur komið fyrir, þetta voru mann-
leg mistök."
Páll segir af og frá að hann hafi
skaðast þegar hcmskinn fór í sundur.
„Ég er heill á höndunum."
Hrekkur?
Páll sá líka um matinn þegar
fangar á öðrum gangi fundu gler-
augu í blaðlaukssúpunni fyrir
tæpum mánuði. Þá sagði PáÚ
öruggt að það væru ekki
hans gleraugu. „Maður
hrekkur náttúrulega við
þegar svona gerist,
sagði Páll þá.
„Ég hef fært
sannanir fyrir því
að þetta eru ekki
mín gleraugu. Það
getur að sjálfsögðu
Sunnudagssteik
Gúmmihanski í
mathjáfanga.
gerst að gleraugun renni úr brjóst-
vasanum hjá manni þegar verið er
að hella súpunni í dalfana. Ég kann-
aði þetta mál þegar það kom upp og
gleraugun mín voru hérna inni í
hillu,“ sagði Páll. Hann segir að
gleraugun sem fundust hafi
verið ódýr gleraugu, líklega
keypt á bensínstöð.
Páll vill ekki rifja gler-
augnamálið upp núna og
segir ýmislegt ganga á á
vinnustað eins og Litla-
áP** ’
Hrauni. „Fangarnir á þeim gangi
hafa ekki verið með neina stæla síð-
an þá,“ segir hann og bætir við að
hann telji samstarfið við fangana
yfirleitt ganga mjög vel.
Kristján Stefánsson, fangelsis-
stjóri á Litla-Hrauni, rannsakaði
gleraugnasúpumálið en fann ekki
eiganda gleraugnanna. Kristján
grunaði einna helst að um hrekk
hefði verið að ræða.
kgb@dv.is
Framkvæmdastjóri Adams og Evu
Líkamsárásir um helgina
Klámdúkkur ekki
lífsförunautar
„Þessar dúkkur eiga ekki að
leka,“ segir Þorvaldur Stefánsson,
framkvæmdastjóri Adams og Evu.
DV fjallaði í gær um áhyggjur Sauð-
krækinga af Ólafi Bergmann Sig-
urðssyni, manni sem býr í bænum
og er ástfanginn af klámdúkkunni
Pamelu.
Ólafur sagðist fara með Pamelu í
göngutúra, kaupa á hana föt og sitja
með henni á barnum. Þá gaf Ólafur
lítið fyrir áhyggjur bæjarbúa af
þessari hegðun; sagði sitt helsta
áhyggjuefni það að Pamela læki
lofti svo hann þyrfti trúlega að fá
sér nýja.
Þovaldur segir að Ólafi sé frjálst
að hafa samband við búðina og fá
sér aðra dúkku. „En ég vil samt taka
Ólafur Bergmann og Pamela Nýdúkka
bíöur Ólafs I höfuðborginni.
það fram að svona dúkkur eru leik-
föng en ekki lífsförunautar," segir
hann.
Stúlka lét tvo þrekna
menn berja dyravörð
Slagsmál Alls voru til-
kynntar sjö líkamsárásir
til lögreglunnar í
Reykjavik um helgina.
Ráðist var á dyravörð á skemmti-
stað í miðborginni aðfaranótt
sunnudagsins.
Stúlka hafði komið að staðnum
og reynt að komast inn á fölsuðum
skilríkjum. Var lagt hald á skilríkin
og hélt þá stúlkan á brott en kom
stuttu seinna með tvo þrekna menn
með sér sem lömdu dyravörðinn og
náði hún skilríkjunum af honum í
kjölfarið. Dyravörðurinn var með
sprungna vör eftir átökin.
Þá gekk maður berserks-
gang á skemmtistað í mið-
borginni og þurfti þrjá dyra-
verði til að halda honum.
Hafði hann meðal annars slegið til
gesta á staðnum. Um svipað leyti var
tilkynnt um slasaðan mann á öðrum
skemmtistað í nágrenninu. Sá hafði
___ fengið glas í andlitið og
hlotið skurð á vinstra eyra. Hann fór
sjálfur á slysadeild. Alls var tilkynnt
um sjö líkamsárásir til lögreglunnar
i Reykjavík um helgina/