Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2004, Síða 9
DV Fréttir
ÞRtÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2004 9
Kratar gefa
pening
Ungir jafnaðarmenn í
Hafnarfirði segja í yfirlýs-
ingu að þeir hafi ákveðið
að gefa Þjóð-
arhreyfing-
unni 10 þús-
und krónur til
þess að birta
auglýsingu í
The New York
Times gegn stríðinu í írak.
í yfirlýsingunni skora
Hafnfirðingarnir á aðrar
ungliða- og stjórnmála-
hreyfingar að gera slíkt hið
sama. Þeir segja stríðs-
hörmungarnar í írak og
drápin á börnum ekki með
vilja þjóðarinnar en á
ábyrgð ríkisstjórnar
íslands. Auglýsingin í New
York Times sé mikilvægt
andóf og Þjóðarhreyfing-
unni til sóma.
Karlmaður í Reykjanesbæ hefur verið kærður fyrir að misnota stjúpdóttur sína frá
því hún var átta ára. Hann segist hafa átt í „ástarsambandi“ við hana þegar hún
var 17 ára. Stúlkan segir stjúpföður sinn hafa neytt sig til að þekkjast áralangra
misnotkun af hans hendi.
Viöurkenndi kynmök við
stjúpdóttur ú segiiandi
Óboðinn
svaf í
stofunni
Snemma á sunnu-
dagsmorgun var tilkynnt
með stuttu miliibili um
innbrot í tvær kjallara-
íbúðir í miðborginni. í
báðum tilvikum voru
húsráðendur heima.
Þegar þeir gerðu vart við
sig lét innbrotsþjófurinn
sig hverfa. Hann náðist á
hlaupum eftir seinna
innbrotið. Þá urðu hús-
ráðendur í íbúð í Hlíða-
hverfi varir við ókunnug-
an mann sofandi inni í
stofu hjá sér þegar þeir
vöknuðu á sunnudags-
morgun. Maðurinn hafði
engar skemmdir unnið
en var vistaður í fanga-
geymslu sökum ölvunar-
ástands.
Stálu bíl og
óku á vegg
Aðfaranótt sunndags
var brotist inn í vélsmiðju í
Hafnarfirði og stolið þaðan
talsverðu af verkfærum.
Frá sama stað var einnig
stolið bifreið. Nokkru síðar
handtóku lögreglumenn í
Reykjavík nokkra aðila,
eftir að sömu bifreið hafði
verið ekið á vegg í Breið-
holti. í bifreiðinni fannst
einnig meint þýfi úr inn-
brotinu.
Kynferðisbrotamál gegn Guðjóni Ómari Haukssyni, umverfis-
og mengunarfulltrúa í Reykjanesbæ, verður tekið fyrir í Héraðs-
dómi Reykjaness í dag. Stjúpdóttir hans kærði hann til lögreglu
fyrir að misnota sig árum saman eða allt frá því hún var átta ára.
Lögreglan hefur lokið rannsókn á málinu og ríkissaksóknari
hefur sent það fyrir dóm. Honum var birt ákæra í gær.
Stúlkan, sem nú er 23 ára, kærði
misnotkunina í febrúar síðastliðnum
eftir að hafa átt fundi með fulltrúum
Stígamóta og verið hvött til þess af
sálfræðingi. I kæru hennar til lögregl-
unnar er því lýst að hún hafi verið
misnotuð að staðaldri um árabil og
með hrottafengnum hætti. Sam-
kvæmt heimildum DV tók stúlkan
upp á segulband samtal hennar við
stjúpföðurinn í febrúar þar sem hann
játar að hafa átt í kynferðislegu sam-
bandi við hana. Segulbandið lagði
hún fram til lögreglunnar, en þar
heyrist hann meðal annars biðja
hana fyrirgefhingar.
Stúpfaðirinn var 39 ára þegar
meint misnotkun hófst, um það leyti
sem hann tók upp sambúð við móð-
ur stúlkunnar. Guðjón Ómar, sem nú
er á sextugsaldri, hefúr þegar verið
yfirheyrður af lögreglu og þvertók þá
fyrir að hafa misnotað stjúpdóttur
sína en sagðist hafa átt í „ástarsam-
bandi" við hana þegar hún var 17 ára
og því yfir lögaldri.
Kveðst hafa megna óbeit á
þeim sem misnota börn
Upp úr sambandi móður
stúlkimnar og Guðjóns Ómars slitn-
aði í byrjun desember síðastliðins.
Hann segir að allar ásakanir gegn sér
séu úr lausu lofti gripnar.
„Ég held að þetta sé einhver skiln-
aðarvitleysa," segir hann og kveðst
hafa megna óbeit á þeim sem mis-
nota böm.
Guðjón Ómar segist hafa svarað
spurningum lögreglunnar skilmerki-
lega þegar hann var kallaður fyrir
vegna málsins. Hann sagðist hafa
vonað að málið yrði fellt niður. „Ég er
eyðilagður yfir þessu og vonast til að
það fáist botn í þetta sem allra fyrst,"
segir hann.
Hann baðst undan því að tjá sig
um hvað hann meinti með því að
hann hefði átt í ástarsambandi við
fósturdótturina. „Ekkert annað en
bara að þetta var samband okkar. Og
við slitum þessu 2001,“ segir hann.
Vinkonur þekktu málið
Vinkonur stúlkunnar hafa verið
kallaðar til yfirheyrslu vegna málsins,
til að fá úr því skorið hvort þær vissu
af misnotkuninni. Ein vinkonan stað-
festir í samtali við DV að stúlkan hafi
greint henni firá misnotkun stjúpföð-
urins þegar hún var 16 ára og að þá
hafi hún sagt misnotkunina hafa
staðið yfir um árabil.
Aðspurð hvort um ástarsamband
hafi verið að ræða segir stúlkan sem
kærði: „Nei, guð minn góður! Hann
segir að eftir 17 ára aldur hafi ég sam-
þykkt. En hann neyddi mig til að
segja já og sleppti mér ekki fýrr. Hann
Guðjón Ómar Hauksson Stúlka íKeflavík hefur kært stjúpföður sinn, Guðjón Ómar Hauks-
son, fyrir að hafa misnotað hana frá átta ára aldri. Hann viðurkennir að hafa átt I ástarsam-
bandi við stúlkuna þegarhún var 17 ára.
var stundum í hálftíma eða klukku-
tíma segjandi: gerðu það, gerðu það.
Hann hætti ekki fyrr en hann fékk
eitthvað eða ég hljóp út. Þá var hann
búinn að vera að þessu frá því ég var
átta ára.“
Móðirin vissi ekkert
Stúlkan kveðst hafa flúið að heim-
an þegar hún var 14 ára. Bjó hún þá
hjá kærasta sínum til að forðast
stjúpföður sinn. „Þá var ég farin að
búa með strák til að forðast hann.
Svo hætti ég með stráknum og flutti
heim, því ég hafði í engin önnur hús
að venda."
Hún sagði móður sinni frá málinu
um það leyti sem hún kærði til lög-
reglunnar. Móðirin segist ekki hafa
vitað af því sem gerðist, en meint
brot munu hafa átt sér stað eftir að
hún fór til vinnu að morgni, sem og í
löngum jeppaferðum stjúpföðurins
og dótturinnar. Hjónin hafa undan-
farið staðið í skilnaðarmáli.
Guðjóni Ómari er lýst sem dag-
farsprúðum manni og hvers manns
hugljúfa. jontrausti@dv.is
Engin skilyrði um önnur bankaviðskipti
Lánin eru verðtryggð og bera fasta 4,15% vexti sem eru endurskoðaðir
á fimm ára fresti. Hægt er að greiða upp án uppgreiðslugjalds þegar vextir
koma til endurskoðunar. Engin hámarksupphæð og er lánstími allt að 40 árum
Krafa er gerð um fyrsta veðrétt íbúðarinnar. Lánshlutfall er allt að 80%
við endurfjármögnun fasteigna (engin hámarksupphæð) og 100% viö kaup
fasteignar (hámarksupphæð 25 milljónir króna).
Hægt er að nota lánin til íbúðarkaupa, til að stokka upp fjármálin
eða í eitthvað alit annað.
Dæmi um mánaðarlega greiðslubyrði af 1.000.000 kr.
Lánstími
4,15% vextir
Lán meö jafngreiösluaðferd án veröbóta
Ragnheiður Þenglls^óttir
viðskiptafjtæóingui er 1.1 n<if 11IItrni á viöskiptasvíði
Ráðgjafar okkm veita allar náriari upplysingar. Þú getur litið inn i Armúla 13a,
hríngi i síma 540 5000 eöa sent tölvupóst á frjalslÖfrjalsi.is