Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2004, Page 21

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2004, Page 21
DV Sport ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2004 21 rr Notre Dame, háskólaliðið sem Guðrún Sóley Gunnarsdóttir úr KR leikur með í Bandaríkjunum, vann meistaratitilinn um helgina og kom í hlut Guðrúnar sem fyrirliða liðsins að taka við bikarnum. Hápunktur knattspyrnuferils Guðrúnar Gunnarsdöttir, varnar- manns hjá KR, kom á sunnudaginn var þegar háskólalið það er hún leikur með í Bandaríkjunum, Notre Dame, vann meistara- titilinn í spennandi leik gegn Háskólanum í Los Angeles. Var Guðrún fyrirliði liðsins en honum var sjónvarpað um gervallt landið. Leikurinn endaði 4-3 fyrir Notre Dame eftir vítaspymukeppni eftir að staðan var jöfn 1-1 eftir venjulegan leiktíma og framlengingu. Þrátt fyrir afbragsleik gerði Guðrún sjálfsmark í leiknum en það dugði andstæðing- unum ekki heldur náðu leikmenn Notre Dame að jafna fimmtán mín- útum síðar og þvinga fram fram- lengingu. Markalaust var eftir hana og var gripið til vítaspyrnukeppni þar sem Notre Dame-stúlkurnar héldu ró sinni og unnu 4-3. Mega þær þó þakka markverði sínum en hún gerði sér líúð fyrir og varði vítaspyrnu andartökum fyrir lok leiksins. Var hún valin varnar- maður mótsins fyrir vikið eftir að leiknum lauk auk þess sem Katie Þorláksson, sem skoraði jöfnunarmark Notre Dame, þótti besti sóknarmaður mótsins. Báðir foreldrarnir á staðnum Báðir foreldrar Guðrúnar eru stödd úti í Indiana og fylgdust með leiknum í sjónvarpi en hann var sýndur um gervallt landið. Faðir hennar, Gunnar Guðmundsson, segir það vissulega hafa verið upplifun að vera á staðnum. „Þetta er stór stund fyrir hana enda er hún fyrirliði liðsins og tók við bikarnum. Það leit þó ekki sérstak- lega vel út eftir að hún skoraði sjálfsmarkið en þetta hafðist og við erum mjög stolt af henni. Annars finnst mér skrýtið að Bandaríkja- menn sktúi kalla þetta sjálfsmark þar sem hún gerði ekkert annað en senda boltann til baka og að mínu viú voru þetta meira mistök mark- varðar en Guðrúnar." Gunnar segir afrekið enn merki- legra fynr þær sakir að fjöldi há- skólaliða í kvennaboltanum ytra skipú hundruðum. „Það sýnir kannski best áhug- ann að leiknum var sjónvarpað um land allt en það gerist eingöngu þegar um stórviðburði er að ræða og þetta flokkaðist greinilega undir það. Flestir há- skólar í landinu eru með kvennalið og það er svo sann- arlega ekki auðvelt að fara alla leið eins og Notre Dame gerði. Þetta er stór stund og stærsta stund Guðrúnar í fót- boltaheiminum." Mikil gleði í skólanum Leikurinn fór fram í Norður-Karólínu fylki og kM komu stúlkurnar heim aftur til Indiana seinni- partinn í gær þar sem al- menningur og skólafélagar tóku þátt í gleðinni. Er þetta aðeins í annað sinn sem sami skóli sigrar oft- ar en einu sinni í kvennadeild há- skólaboltans en Notre Dame sigraði þetta mót einnig árið 1995. Stærsta stundin hja Guðrúnu Grimm Guðrun Sóley Gunnarsdóttir er einn allra besti varnarmaður Islenskrar kvennaknattspyrnu en hér sést hún í leik með KR gegn IBVI sumar. DV-mynd Valli Þrjú berjast um tvö sæti Mikil spenna er enn í DHL deild Norður í karlahandboltan- um en þar eru þrjú lið að beijast um 2 sæti. Haukar og KA eru ör- ugg áfram, bæði méð 15 stig en Haukar eiga leik inni. Það er líka orðið ljóst að -A lið FH og Aftur- íjj eldingar sitja /// r< eftirþannigað \ .. baráttan stend- újfcs. ur nú á milli HK, Fram og Þórs um að ^ komast inn í úrvals - defidina. HK stendur |\ best að vígi, er með 13 'X, stig og á 2 leiki eftir, við ý Fram og Þór. Fram er ^ | með 10 stig en á eftir w/r~ að leika 3 leiki, við * tt, Hauka, HK og FH. Þór ^ er einnig með 10 stig og á eftir 2 leiki, við Hauka og HK. Ljóst er að mikil spenna verður allt til loka og gaman verður að fylgjast með lokaleikjunum. Allt er klárt Það er öllu minni spenna í hinum riðlinum f karlahandbolt- anum enda er orðið ljóst hvaða Qögur lið fara áffam úr DHL deild suður en það eru ÍR, Valur, ÍBV og Víkingur. Það þýðir að Grótta KR, Selfoss og Stjaman sitja eftir. Ef við skoðum aðeins stöðu inn- byrðisviðureigna þessara liða kemur það í ljós að Valur og ÍR eiga bæði möguleika á að hefja úrvalsdeildina með 10 stig. Vflc- ingur fer með 4 stig með sér og ÍBV 2-4 en það fer eftir leik þeirra við Val. Ljóst er að þessar viður- eignir skipta mjög miklu máli því í úrvalsdeildinni spila liðin að - eins við liðin úr Norður-riðli heima og að heiman og taka þessar viðureignir með sér. Bjarni Hólm tilÍBV Bjarni Hólm knattspymu. Þetta er fyrsti nýi leikmaður liðsins fyrir næsta tímabil en Eyjamenn hafa þurft að horfa á eftir sterkum leikmönnum að undanfömu. Bjami kemur frá Seyðisfirði en lék 30 leiki með Fram í deild og bikar sumrin 2002 og 2003 en í fyrra var hann leigður á heimaslóðir þar sem hann átti mikinn þátt í því að Huginn vann sig upp í 2. deild. NMU í sundi: Vel fagnað íslensku krakkarnir sem tóku þátt í Norðurlandamóti unglinga í sundi í Danmörku um helgina komu heim í gær og fengu góðar viðtökur í Leifsstöð. Krakkarnir stóðu sig frábærlega á mótinu, flest þeirra bættu sig mikið og alls vann íslenska sveitin til sjö verðlauna og hafnaði í fjórða sæti í stigakeppn- inni. Það fór lflca mjög gott orð af framkomu íslensku krakkanna sem héldu uppi stemningu á pöllunum og sýndu mikinn liðsanda allan tímann. Fiottir fulltrúar Hérsést íslenski hópurinn samankominn í gær. Mynd: Víkurfréttir. *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.