Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2004, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2004, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 2004 Fréttir DV Dollarinn í 61 krónu Gengi krónunnar hélt áfram að styrkjast í gær. Gengisvísitalan hefur lækk- að nær linnulaust frá því að Seðlabankinn tilkynnti um stýrivaxtahækkun síðasta flmmtudag. Geng- isvísitala krónunn- arstóð í 117,5 stig- um við opnun markaða á föstu- daginn. Frá þeim tíma hefur gengi krónunnar styrkst um 4,7% og stendur gengisvísitalan nú í 112,2 stigum. Gengis- vísitala krónunnar hefur ekki verið sterkari síðan í júlí 2000. Því má einnig bæta við að staða krónunn- ar gagnvart dollar hefur ekki verið sterkari síðan í nóvember 1992. Greining KB banka segir frá. Skólaeldhús eru vond Athugasemdir voru gerðar við 23 eldhús af 34 í grunnskólum Reykjavíkur samkvæmt úttekt sem unnin var fyrir Fræðslumiðstöð Reykjavíkur. f engu eldhúsanna var hægt að rekja uppruna matvara með skrá- setningu í tölvu eða á pappír, einungis eftir minni starfsmanna. I skýrslunni kemur fram að nauðsynlegt sé að gera bætur á þessu sem fyrst til að tryggja megi öryggi þeirra sex þúsund og flmm hundruð nemenda og starfsmanna sem borði hádegismat í grunnskólum Reykjavíkurborgar. Kögun kaupir í Lettlandi Kögun hf. og dótturfélag þess, Landsteinar Strengur hf., hafa eignast allt hlutafé í letmeska fyrirtækinu Aston Baltic SIA í Riga í Lettlandi. Aston Baltic sér- hæfir sig í sölu og innleið- ingu á Axapta-hug- búnaði frá Microsoft auk endursölu á ýmsum viðskipta- lausnum á sviði verslunar-, vöru- húsa- og vörustjórn- unar. Kögun hyggst nýta fótfestu Aston Baltics á lettneska markaðinum til aukinna umsvifa í Eystrasaltslönd- unum og markaðssetja hugbúnað frá dótturfélög- um Kögunar. „Þaö skiptir máli að fjár- málasukkið í kringum Linu.net og tengd fyrirtæki ’a? ■míiumn hjúp- ^ að," segir Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaðurog borgarfulltrúi.„Upphaflega átti að setja 200 milljónir I þetta og selja í árslok 1999. Nú er búið að setja 5 millj- arða inn og tapið afUnu.neti er einn milljarður. Reykvík- ingar eru enn að borga fyrir þetta fyrirtæki og það liggur fyrir að það er ekki búið að loka reikningnum." Tryggingastofnun sendi einstæðri móður í Keflavik 600 þúsund króna reikning vegna þess að hún hafði fengið 600 þúsund af lífeyrissparnaði sínum í fyrra. Stofn- unin hefur sent 11 þúsund ellilífeyrisþegum og öryrkjum rukkun, þar á meðal sjö- tugri konu sem legið hefur í dái á dánarbeðinu síðustu mánuði. •nelOur ‘ tetur á [ Grein DV Greint var frá þvf í DV á mánudag að Tryggingastofnun rukkar nú konu, sem liggur á dánarbeðinu, um 54 þús- „Hvað er verið að gera?“ sagði Kristrún Magnúsdóttir í Keflavík, þegar hún las 600 þúsund krdna innheimtubréf frá Trygginga- stoftiun ríkisins á föstudag. Kristrún á að borga 48 þúsund krón- ur í byrjun janúar og sér fram á erfíð jól. Næstu jól verða verri, því í des- ember á næsta ári borgar hún stofnuninni 66 þúsund krónur. Kristrún er einstæð móðir með 75% örorku og fær í heild 120 þús- und á mánuði í tekjur, þar á með- al barnabætur fyrir barn sem hún hefur á Kristrún Magnúsdóttir Égféii saman þegar ég sá reikninginn. framfæri. Tryggingastofnun hefur sent tæplega 11 þúsund öryrkjum og ellilífeyrisþegum rukkun upp á samtals milljarð. Ástæða þess að Kristrún á að borga 600 þúsund krónur er að hún hafði tekið út milljón krónur af lífeyrissparnaði sfnum í fyrra. Áf því greiddi hún tæpar 400 þúsund krónur í skatt og fékk því 600 þús- und í hendurn- ar. Af þessum sökum fellur milljón króna lff- eyris- sparnað- ur henn- ar í raun dauður niður. Starfaði á spítala „Ég vann á hj úkrunarheim- ili og tók ýmsa auka- vinnu. Ég var alltaf voða dugleg kona. Ég vann alltaf mikið og svo fékk ég gigt og andleg heilsa hrundi. Fyrir fimm árum fór ég á endurhæfingarlífeyri til bráða- birgða. Ég ætlaði aldrei að fara á örorku, en svo gat ég þetta ekki,“ segir Kristín, sem var metin 75% öryrki. Hún borgaði 780 þúsund í skatt fyrir seinasta ár, vegna ör- orkugreiðslna og lífeyrisins sem hún tók út. Fyrsta skiptið Að sögn Kristínar spurðist hún fyrir um hvort hún fengi bak- reikninga ef hún tæki út hluta lífeyris- und krónur. SSSSSSsSSsSSa J.............— f«21 þúiund i zr‘apó',kl,v'“- ssSISv-. SStesgj** n.stS'Æí-í “I l*Uu UrvTiunnau*™ »ð dryi. UI***'Mð "“nn llún rt QTéfiQ /hj Trvaainnn fyru Mu, *** J teSSri fesSSSSil Victorfa vildi sama »6 drottningarmóOir nugferö og matarveisia meö poflpstia, spam- aðar síns frá því hún var vinnufær. „Þetta er í fyrsta skiptið sem þeir em að gera svona. Ég veit úm marga sem hafa fengið úr lffeyris- sjóði en þeir fengu enga bakreikn- inga. Ég spurði fulltrúa Trygginga- stofnunar hvort ég fengi einhverja bakreikninga en svarið var nei.“ Framtíðin er ótti Kristín segist ekki vilja leita til annarra, þótt hún sé einstæð móðir með örorku. „Ég hringdi í pabba minn j 'ft&ttlUWKcv, rifirniiflOVM x*! ftZ Ég þori ekki að hugsa fram í tímann" á föstudagskvöldið og sagði: Veistu það, ég get ekki lifað. Ég féll saman þegar ég sá reikninginn. Það verður að vekja athygli á þessu. Það hljóta einhver lög að ná utap um þetta. Ég ætla að hafa samband við formann öryrkja- bandalagsins út af þessu,“ segir hún. „Ég reyni samt að setja húmor- inn upp. Ég þori ekki að hugsa fram í tímann. Ég er að fara að ferma á næsta ári, ég veit ekki hvernig ég á að gera það. Helvítis ríkisstjórnin. Ég held að hún sé að reyna að drepa alla. Nema þá sem eiga mest og allt of mikið." Ekki náðist í Garðar Sverrisson, formann Öryrkjabandalagsins, í gær. jontrausti@dv.is Kristján Jóhannsson farinn af landi brott Kurteis og prúður á Saga Class Kristján Jóhannsson stórtenór fór af landi brott eftir viðburðaríka aðventuheimsókn til heimalands- ins. í síðustu viku lýsti hann því yfir að vart gætí hann beðið eftir að komast aftur út; væri búinn að fá nóg af dvölinni og vildi ekki ergja landa sína meira. „Hann var mjög kurteis og prúður hér í Saga Lounge," segir Sigurveig Sigurðardóttir, starfsmaður í Saga Class deild Icelandair. „Hann beið hér eftir að komast um borð og var hreint yndislegur," segir hún. Kristján ferðast á Saga Class en ferðakostnaður hans var tekinn af ágóða af tónleikum þar sem hann söng til styrktar krabbameinssjúk- um börnum. Hnífstungumaður í 15 mánaða fangelsi Stunginn í síðuna og fékk áfallahjálp Tvítugur piltur, Kolbeinn Andri Ólafsson, var í gær dæmdur í 15 mánaða fangelsi fyrir að stinga nema í Menntaskólanum við Sund með svissneskum vasahnífi. Þótti árásin sérlega hættuleg. Neminn hlaut fjögur stungusár, 2 til 8 sentímetra djúp, og hefur þurft að leita sér sálfræðihjálpar eftir árás- ina. Að kvöldi 26. september í fyrra kom Kolbeinn keyrandi ásamt tveimur kunningjum sínum að Broadway þar sem busaballi Menntaskólans við Sund var nýlok- ið. Ölvaður nemi lamdi í bíl Kol- beins, sem þaut út. Upphófust stympingar sem leiddu til þess að félagi Kolbeins var sleginn í rot. í kjölfarið dró Kolbeinn upp svissneskan vasahníf og stakk piltinn fjórum sinnum í síðuna. Kolbeinn losaði sig við svissneska hmfinn í Kópavogshöfn. Hnífurinn er enn ófundinn. Félagi Kolbeins sem lamdi fórn- arlambið hnefahöggi var einnig ákærðm en málið á hendur látið niðm falla. í dómnum kemur fram að tilviljun réði því að ekki fór verr. 12 mánuðir af fangelsisdómi Kol- beins eru skilorðsbundnir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.