Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2004, Blaðsíða 29
DV Sjónvarp
MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 2004 29
Þolir ekki
gælunafnið
sitt
Madonnahefur
bannað eigln-
mannl sínum,
Ouy Ritchie
að kalla sig
breska gælu
nafninu sínu \
Madge.
Madonna
hafði aldrei
heyrt þetta viður-
nefni sitt fyrr en hún
flutti til Bretlands og varð ekki
ánægð þegar eiginmaðurinn tók upp
á þvi að kalla hana þessu nafni.
„Þetta er skelfilegt nafn og alveg
hræðilega Ijótt, “ segir poppgyðjan.
Madonna má ekki til þess hugsa að
fjölmiðlar eða aðdáendur hennar
kalli hana þessi nafni.„Er þetta eitt-
hvað Cockney orðarimu slangur-
yrðif" spyr Madonna afar óhress yfir
uppnefninu.
Langarað
ættleiða
barn
Cynthia Nixon, sem leik-
ur hina þóttafullu
Miröndu i Beðmálum i
borginni, ersögð vera
að skoða möguleik-
ana á þvi að ættleiða
barn með kærustunni
sinni, Christine Mar-
inoni. Þær vilja endi-
lega eignast barn
saman en fyrir á
Cynthia tvö börn með
fyrrum eiginmanni
sinum Danny Mozes.
Hollywood stóð á
öndinni þegar
Cynthia kom út úr
skápnum fyrirstuttu
og hóf samband við
konu. Cynthia er hins
vegar sögð kippa sér lítið
upp við lætin sem hún olli og
er hamingjusöm með nýju
kærustuna.
Biður
Beckham
afsðkunar
Jon Bon Jovi hefur formiega beðið
David og Victoríu Beckham afsökun-
ar á þvi að hafa skirt son sinn
Romeo. Bon Jovi og kona hans,
Dorothea, eignuðust sitt fjórða barn í
mars síðastliðnum. Þau féllu strax
fyrir nafninu Romeo og voru sam-
mála um að nafnið væri bæði faiiegt
og frumlegt.„Við völdum nafnið
Romeo í þeirri trú að það væri frum-
legt en síðar komumst við að því að
Beckham-hjónin höfðu skirt yngri
son sinn þessu nafi. Við biðjum þau
afsökunar á
þessu,"
segirJon
Bon
Jovi.
pápsdúkkun
og dónakallar
Hrollvekjuserían um drápsdúkk-
una Chucky var að deyja hægum
dauðdaga þegar Hong Kong-snill-
ingurinn Ronny Yu tók sig til og
gerði alveg þrælskemmtilega fram-
haldsmynd sem kallaðist Bride of
Chucky. Þar fór Jennifer Tilly með
hlutverk Tiffany, fyrrverandi kær-
ustu Chuckies, sem hann svo myrð-
ir og setur sál hennar í lfkama dúkku
svo hann hafi nú einhvem félags-
skap. Sú mynd endaði með því að
hjúin eignuðust h'tinn króga og fjail-
ar Seed of Chucky einmitt um hann,
hana eða það.
Barn Chucky og Tiffany er nú í
eigu iUkvittins búktalara sem mis-
notar það óhikað. Þegar það sér
svo foreldra sína í sjónvarpinu flýr
það til Los Angeles þar sem er ver-
ið að nota þá í kvikmynd. Barninu
tekst að vekja foreldrana aftur til
lífsins og verða það fagnaðarfund-
ir þegar þau komast að því að þau
eiga afkomanda. Vandinn er hins
vegar sá að það er ekki hægt að sjá
hvers kyns það er því það vantar
alveg kynfæri á það. Chucky vill
strák en Tiffany stelpu. Verður
það ekki til þess að leysa úr þeim
sálarflækjum sem Glen/Glenda,
eins og það verður skírt, hefur úr
að ráða. Chucky vill svo endilega
kenna stráksa til verka sem eðal-
morðingi en Tiffany vill verða gott
fordæmi fyrir barnið sitt og hætta
öllum drápum en það reynist
hægara sagt en gert.
Þessi stórfurðulega fjölskylda vill
svo losa sig við dúkkulíkamana og
ákveða að reyna að ná henni Jenni-
fer Tilly, sem er að leika í myndinni
um dúkkurnar, til þess að gefa þeim
líkama sinn með góðu eða illu.
Líkt og myndin á undan er grínið
í fyrirrúmi og hryllingurinn settur í
aftursætið. Samt er þó lífgað upp á
þetta með subbulegum atriðum og
smá nekt hér og þar.
Handritshöfundinum, leikstjór-
anum og föður seríunnar, Don
Mancini, tekst vel að ger'a subbulega
grínmynd sem ætti að geta skemmt
flestum. Jennifer Tilly gerir óspart
grín að sér og kvikmyndabransan-
um. Dónakallinn John Waters er frá-
bær sem sorpblaðamaður sem mæt-
ir örlögum sínum á ansi hressilegan
hátt.
Brad Douriff talar aftur fyrir
Chucky og Lord of the Rings-félagi
hans Billy Boyd fer með hlutverk af-
kvæmisins og fer það vel úr hendi.
Mér finnst skrítið að framleið-
endurnir skulu ekki vera byrjaðir að
nota tölvutæknina til þess að gefa
Chucky líf en ég verð að viðurkenna
að mér fannst dúkkurnar frekar stíf-
ar og líflausar stundum.
En það sakaði svosem ekki mikið
því að myndin er stórskemmtileg og
hin hressasta og er skemmtilegt að
hún skyldi koma út á sama tíma og
Birgitta kemur með sína dúkku. Efríi
í framhald kannski?
Ómar öm Hauksson
Seed ofChucky
Leikstjóri: Don Mancini
Aðalhlutverk: Jennifer '
Tilly, Brad Douriff, Red- ,
man, Billy Boyd, John
Waters Sýnd i Smárabíó
og Regnboganum
★ ★★
Ómar fór í bíó
1
Nú þegar Dido er oröin ein ríkasta kona Bretlands ætlar
hún að láta drauminn rætast og feröast.
Ætlar í bakpokaferðalag
Dido Langar
að fara tilAsíu,
Ástrallu og
Suður-Ameriku
Sönkonan hógværa Dido ætlar
að söðla um á nýju ári og fara í bak-
pokaferðalag um heiminn. Dido,
sem hefur selt plötur sínar í miljón-
um eintaka, ætíar að taka heilt ár í
að ferðast um og langar sérstaklega
til að fara til Asíu, Suður-Ameríku
og Ástralíu. „Mig langar að ferðast
um og skrifa. Ég ætía að leyfa hug-
anum að reika og fá hugmyndir
fyrir næstu plötu mína. Það er ynd-
islegt að geta átt möguleika og efni
til að sjá heiminn. Mig langar að sjá
eins mikið og ég get.“ Dido, sem er
32 ára, vonast til þess að á ferðalag-
inu geti hún fallið í fjöldann og veki
ekki athygli. „Ég veit að stundum
þekkir fólk andlitið mitt og finnur
hjá sér þörf til að tala við mig. Mér
finnst það ágætt en myndi þó
gjarnan langa til að geta farið leiðar
minnar án þess að þekkjast. Ann-
ars hef ég ekki þurft að þola mikla
áreitni. Ég virðist ekki líta út eins og
stjarna því miðað við kollega mína
er ég látin mikið í friði."
Dido er að öllum líkindum ein
ríkasta kona Bretíands. Hún segist
þó ekki vera mikil efhishyggju-
manneskja. „Ég er enginn bjáni
þegar viðkemur peningamálum.
Ég á hús og bíl og er hamingjusöm,
ég finn ekki hjá mér þörf til eyða of
miklu. Það hræðir mig ekki að vera
rík. Ég þekki hvernig það var að
vera fátæk, einu sinni lifði ég á
bullandi yfirdrætti."
Brynja Gunnarsdóttir hjá Eddu er 39 ára
í dag. „Hér helgar hún sig kærleika og
með aukinni sjálfsvitund gerir hún sér
Ijóst að ást og náin kynni
þarfnast meira sjálfs-
trausts af hennar
hálfu. Hún er minnt
á að eyða aldrei orku
sinni í að óska að
hún sé annars staðar
að gera eitthvað ann-
að," segir í stjörnu-
spánni hennar.
Brynja Gunnarsdóttir
VV Vatnsberinn ('/o.yan.-is./eérj
w ----------------------------------
Mundu að hin volduga eik vex
upp af litlu akarni, kæri vatnsberi. Þú sérð
jafnvel ekki mikinn árangurafverkum
þínum þessa dagana en það lagast þegar
iíða tekur að áramótum. Ekki örvænta eru
einkunnarorð til fólks fætt undir stjörnu
vatnsberans dagana framundan.
Fiskarnir (i9.febr.-20.mars)
H
Vitsmunalegt stolt þitt á það til
að flækjast fyrir þér, kæri fiskur, en hér er
þörf á andlegu jafnvægi. Þú ert fær um
að fylgjast með dásemdinni birtast í lífi
þínu ef og þegar þú kýst að líta betur í
kringum þig.
Hrúturinn (21.mars-l9.aprH)
T
Yfirvegun einkennir þig ef
marka má stjörnu hrútsins um þessar
mundir en þegar líða tekur að helgi finn-
ur þú eflaust til einlægrar ánægju þegar
þú gefur af þér og gerir það sem þarf til
að gleðja fólkið sem þú elskar.
ö
NaUtíð (20. aprll-20. mai)
n
Ef þú ert fædd/ur undir stjörnu
nautsins er þér ráðlagt að hætta að vera
óvirk/ur. Hugaðu vel að því hvernig þú
notar dýrmætan tíma þinn og hvernig þú
beitir orku þinni. Gleymdu ekki náungan-
um og mundu að því meira sem þú gefur,
þeim mun meira pláss er til að taka við.
Tvíburarnir/?;. mal-21.júnl)
Hér birtist tvíburinn ábyrgðarfull-
ur mjög sem er mikill kostur. Hann er ör-
uggur I framkomu og býr yfir réttu viðhorfi
til lífsins. Hann er sterk manneskja þegar
kemur að andlegum styrk en er oft á tfðum
með hugann við annað en starfið.
Kíðbbm(22.júnl-22.júlD___________
Afl heildarinnar sprettur ekki af
því að eltast við (myndanir annarra held-
ur kemur það aðeins af djúpum skilningi
manns á eigin sálu og hæfileikum, af ein-
lægri virðingu fýrir jörðinni sem við lifum
á og erum sprottin úr og hér er fólk fætt
undir stjörnu krabbans minnt á þá stað-
reynd sérstaklega.
LjÓflÍð (23.0-22. ágúst)
Þótt þú kjósir það að þóknast f
félaga þínum ert þú jafnframt árásar-
gjörn/gjarn í eðli þínu þegar tilfinningar
þínar eru skoðaðar.
Meyjan (22. úgúst-22. sept.)
Kærleikur og skilningur er
ávallt hjálp til að auðvelda þér leiðina
fram á við. Það eru engar takmarkanir og
þú veist það svo sannarlega en gleymir
oft á tíðum að gera allt sem þú tekur þér
fyrir hendur af kærleika. Þú hefur eflaust
nú þegar sent frá þér langanir þínar og
innstu drauma sem er gott.
o VogÍn (23.sept.-23.okt.)
Efþúerborin/níheiminnund- "*
ir stjörnu vogar er þér ráðlagt að beina
viðkvæmni þinni I sem ánægjulegastar
og árangursríkastar brautir.
ITL
Sporðdrekinn (24.okt.-21.n0y.)
Sporðdrekinn er eflaust við-
kvæmur þessa dagana. Ef honum finnst
hann vera fastur í sama farinu ætti hann
að skoða sjálfan sig og kanna djúpt innra
með sér. Ef hann leitar inn á við sér hann
hvað það er sem heldur aftur af honum.
Bogmaðurinn
Hér birtist myndræn líking þeg-
ar stjarna bogmanns er tekin fyrir. Hér
birtist nefnilega hátt fjall sem þú ert um
það bil að klífa. Þú ættir að kanna útbún-
aðinn sem þú notar aðeins betur áður en
þú leggur (hann því allt þarf að vera
traust áður en þú leggur af stað.
/
z
Steingeitin (22.des.-19.janj
Lifðu ekki innan takmarkana
þinna kæra steingeit og alls ekki vera
hrædd við að setja markið hátt. Einnig
ættir þú að tileinka þér að opna hjarta
þitt og tjá tilfinningar þínar.
SPÁMAÐUR.IS *