Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2004, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2004, Blaðsíða 25
DV Menning MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 2004 25 Þrjár skáldkonur eiga nýjar ljóðabækur í flóðinu: tvær ungar og ein sem er síung i fögnuði sínum yfir lífinu þó aldurinn færist yfir hana, missir og söknuður sæki hana heim. Þær yngri pæla líka í því hvernig er að missa ástina og elskuna sína. Utum glugga á efstu hæð í blokk springa kristall- ar. Letrið á himninum er falið skýjum. Stúlka í lótusstellingu og fellur hár yfir andlitið. Bókar- heitið skorið ágengu letri í geðveikislegum Ut- brigðum og umhverfis fíngert punktað mynstur. Ljóðakver Kristínar Eiríksdóttur (1981) stendur út í byrjendaverkum vertíðarinnar. Hún myndlýsir kverið sjálf: hvassir hnífar skera perlufesti og perlurnar dreifast um gólfið og unga stúlkan horfir á: höfuðið utan myndrammans. Textar Kristínar eru ljóðrænar stemmningar, það er ofsagt að kalla þá prósaljóð, passar heldur ekki að segja þá örsögur, enn síður smásögu. Þeir standa sér á parti - ég vil kalla þá ljóð frekar en allt annað. Þeir eru aUir af Ijóðheimi, vitundin er lýrisk, Kjötbærinn eftir Kristinu Eiriksdóttur Bjartur Verð 1.880 kr. Bækur sækir myndmál í ofskynjaða og ýkta veröld sjálfskenndar sem snýst um innUokuð rými, hversdaglega veru og ástríka upplifun af elskhuganum sem er Ula þrifinn og ofbeldisftUlur verkari og heitir nafni hreintrúarmannsins. Þetta er ljóðaveröld með þungarokki, ljóðsáUn sefur trufluð- um svefni af skuggaveröld veggjanna sláeyttum þungarokks- plaggötum. Hana dreymir flug um himinhvolfin, það sækja að henni árar: ljóðmál hennar er sótt f blóðvegi, kjöttætlur, rifna vöðva, sindur í taugaendum. Vatnið skært þurrt hreyfist hratt yfir flötinn endalausa án þess að skUja eftir sig ummerki. SjóndeUdarhringurinn byrjar að bólgna. Veggirnir hleypast upp í munstrum svo mörgum og Utimir óteljandi. Ég æU stærðar demanti sem smýgur om' gólfið. Viðfangsefni hennar mótast þó af karlmennskunni sem hún býr við. Hún yrkir sig úr skugganum og stefnir á frjálst svif án hans. Varla tílvUjun. Þetta er nýstárlegt og frumlegt verk, sýnir bráðþroska tUfinn- ingu fyrir ljóðmáli sem er í senn persónulegt og nútímalegt og færir manni vissu fyrir endurnýjun ljóðmálsins. Kjörin lesning fyrir aUa sem vUja elta tíðaranda. Ástog appelsínur eftir Þórdis Björnsdóttur Eigin útgáfa Bækur Þórdís Björnsdóttir (1978) er líka að senda frá sér sitt iyrsta ljóðakver, sam- hangandi bálk í átta hlutum um ástina. Ljóð- vera hennar er ástfang- in, bundin ástmanni sfn- um föstum böndum sem hún vUl sundra á endan- um. LjóðstUl hennar er opinn á hversdagslegu máli, líkingamálið bundið við samlíkingar, orðfærið einfalt enda viðfangsefni líkamlegar og andlegar samvistir karls og konu, tak maka og ástmögurs á kvenlíkama og sál sem á endan- um gefst upp á samverunni og slítur henni. Það er hæg þróun og stígandi í bálknum frá upphafi tU enda- loka. Sú ríka samsömun sem fyUb fyrstu kvæðin víkur fyrir ert- andi vUja eða ósk tíl sundrunar, skemmda sem hafa kynferðislegan blæ og lýkur á tortímingu og langþráðum dauða elskhugans. Ljóðin eru fuU af lík- amlegri snertingu og áköfum atlotum, vökva og flæði. Það eru í kennd- um ljóðanna sólir og skær birta, sæla sem snýst í hroU. ... ég fann hvernig safinn lak mUli brjóstanna meðan nærbuxurnar blotnuðu og borðdúkurinn lit- aðist af rauðu Það er eins með verk Þórdísar og Kristínar að heimurinn markast af veru karlmannsins, sam- lífi, valdboði og sumpart undbgefni, eftirgjöf og fórn, sem er á mörkum ofbeldis og nautnar varla filvUjun. Margt er hefð- bundið og kunnuglegt í bálki Þórdísar. Kostir hans eru hversu sam- kvæm hún er sjálfri sér í beitingu máls, hversu stílU hennar er heUdstæð- ur gegnum aUa kafla verksins og hvað hún ræður vel við þá stíg- andi sem einkennir verkið. Því er landnám hennar í ljóðheim- um athyglisvert og árangur góður. H 1 JLb Fiskar hafa engarödd eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur JPV útgáfa Verð 3.480 kr. «i í \< \ : 1 . Bækur ’vað er langt síðan ljóst var að hún VU- borg Dagbjarts- dóttb sæti á endanum hæst í skáldkvenna röð? Um síðb yrði henni skip- aður sá sess sem hún á skilinn af sfnum kvenlegu ljóðum? Ekki á heiðurs- launum, ekki fékk hún for- setaskjaUð eða einhverja orðunefnuna sem Fjölu- götuskrifstofan skammtar sínum mönnum? Fiskar hafa enga rödd er sjötta ljóðabók VUborgar. Hér ágerist hlutur þeirra kvæða sem sækja minni í bernsku VUborgar fyrir aust- an. Minningar hennar frá Seyðisfjaiðarárunmn verða æ áleitnari í skáldskap hennar og minnin verða tærari, ljóðm einfaldari, oft eins og stök mynd. Yrkisefnin færast inn í borgina í tveimur ljóðum um stöðu kvenna: Te og brauð og Morgunsöng. VUborg hefur svo lengi sem ég man ort um stöðu kvenna. Hún dregur fram skarpar og ljósar mynd- b í slíkum kvæðum, gjama fundvís á sjónarhom á eldri yrkisefrú sem hún miðlar lesenda í nyjum orðum í skýrri mynd. Hér em svo áhrifarík smáljóð um böm: Sonur flugfreyj- unnar ogÁ leið í Hagaborg á haust- morgni. Þá em ótalin fjórtán ljóð sem eru dreifðari að efni: sum stakar nátt- úrumyndb, fáein ljóð um missi og söknuð. Hér er pantað ljóð við högg- mynd Sigurjóns Ólafssonar sem lýsb á skemmtUegan hátt furðu list- sköpunar og loks áframhald þess ljóðabáUcs sem kominn er frá Passíusálmi höfuöskáldum okkar. 51: mergjuð viðbót tekin upp eftír Markús- arguðspjaUi: Ég er ljóskan úr 51. Passíusálmi. Þessi með sægrænu augun. Vilborg Dagbjarts- dóttir Hún ereittaf Ljóðahluta ’VUborgar í bókinni lýkur svo með ljóðinu Þrír englar - hugleiðmg um dauðans vísa tíma - efni í sálm. Englamfr þrír: sá sem vitjar þín í bemsku, sá sem vemdar þig löngum og loks sá sem sem fylgfr okkur yfir. Bókinni slúttar VUborg með þremur þýðingum á kvæðum Sylvíu Plath sem kveUcja með lesanda ósk að hún hefði oftar mátt leggja sig eftb þýðingum annarra skálda. Þessi nýja ljóðabók Vilborgar staðfestb enn hvílíkir yfirburðir hennar em orðnir í ljóðUstínni: hun yrkb jafnan í einföldu máli, dregur upp skýrar og einfaldar myndir, vekur lesanda tílfinningu sem er óráðin en heit. Löngu er kominn tími tíl að ráðist verði í útgáfu heUdarsafns hennar, nún er eitt af höfuðskáldum okkar og við eigum skUið að eiga ljóðasafn hennar á einni bók. Páll Baldvin Baldvinsson Jólaperlur í Borgarleikhúsinu Á litla sviðinu í Borgarleikhúsinu birtust jólasveinarnir Ijóslifandi á sunnudaginn var. Leikhópurinn Perlan undir stjórn Sigríðar Eyþórsdóttur var þar á ferð- inni með sina jóladagskrá. Fyrst var leikgert Jólasveinakvæði Jóhannesar úr Kötlum þar sem hver og einn úr hópnum kom fram í liki eins jóla- sveins. Næsta atriði varsvo hin sorg- lega Krummasaga þar sem Ásdís Gisladóttir var svo falleg og yndisleg mamma að margir fóru næstum því að gráta þegar maðurinn hennar dó. Allir leikendur þekkja svo vel sög- una og vita hvað hún ersorgleg að þeir léku eins og þetta væri þeirra eigið líf. Dagskráin varbrotin upp með vióluleik tveggja stúlkna og svo tóku þau Kristinn Guðmundsson og Harpa Arnardóttir að sér að kynna og spjalla svolítið milli atriða. Dagskránni lauk svo með því að jólaguðspjallið birtist okkur alveg Ijóslifandi og einstakir englar sveim- uðu um sviðið, allt I einu tókst einn þeirra næstum því á loft. Sigrún og hinir englarnir voru alveg raunverulegir I stemmningunni. Leikarar Perluleikhópsins eru: Birgitta Harðardóttir, Ásdís Gísladótt- ir, Eva Donaldsdóttir, GeröurJóns- dóttir, Guðrún Ósk Ingvarsdóttir, Hild- ur Davíðsdóttir og Hreinn Hafliðason, Ingibjörg Árnadóttir, Lilja Valgerður Jónsdóttir, Ragnar Ragnarsson (betur þekktursem Midas konungur) Sigrún Árnadóttir, Sigfús Svanbergsson og Garðar Hreinsson. Allir þessir leikarar eru góðir leikarar. Þeireru alltafbestir þegar þeir fá sem mest að gera. Sig- rlður Eyþórsdóttir stjórnar leikhúsinu og hefur gert nú 122 ár. Hvenær kemst hún á heiðurslaunin? Elisabet Brekkan

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.