Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2004, Page 9
DV Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 2004 9
Meiri líkurá
lífi á Mars
Vísindamenn telja sig
nú hafa fengið
sönnun fyrir því
sem þá hefur
lengi grunað, að
vatn hafi einu
sinni runnið á yf-
irborði reiki-
stjörnunnar Mars og mynd-
að þar ár, vöm og jafnvel
höf. Þetta er niðurstaða 11
greina sem birtast í nýjasta
hefti tímaritsins Science.
Þessi staðreynd eykur stór-
lega líkurnar á því að líf
hafi þrifist á Mars áður en
hitinn þar jókst og vatnið
gufaði upp. Sérfræðingar
viðurkenna hins vegar að
þeir hafi ekki hugmynd um
hvenær vatnið hvarf, hvort
það var fyrir milljónum ára
eða ef til vill aðeins nokkur
þúsund árum.
Fyrstu fylli-
bytturnar
voru kín-
verskar
Fyrsm fyllibytmr mann-
kynsins hafa hingað til
verið taldir hafa búið þar
sem nú heitir íran fyrir
7.400 árum. Þar hafa
fundist ílát með áfeng-
um drykkjum. Nýr forn-
leifauppgröftur í Kína
hefur hins vegar leitt í
ljós að í gröf sem tekin
var fyrir allt að 9.000
ámm vom lögð leirker
sem höfðu að geyma
áfengi bruggað úr hun-
angi, hrísgrjónum og
ávöxmm. Ljóst er að
hinn látni hefur verið
gefinn fyrir áfengið úr
því það var lagt í gröfina
með honum, til neyslu
hinum megin.
Mikil fjölgun í
Hveragerði
Ibúar í
blómabænum
Hveragerði em
nú í fyrsta sinn
komnir yfir tvö
þúsund manna
markið. Sam-
kvæmt nýjusm
tölum Hagstofu íslands
vom íbúar í bænum
samtals 2007 þann 1. des-
ember. Fjölgunin nemur 6
prósentum á einum ári, en
á sama tíma í fyrra voru
Hvergerðingar innan við
1900 talsins. í samræmi við
mikla uppbyggingu hafa nú
verið auglýstar lausar 69
lóðir fyrir raðhús, parhús
og einbýlishús í vesturhluta
bæjarins í nýju hverfi sem
þar er að rísa.
Stofna fjögur
fyrirtæki
Ker, eignarhaldsfélag
sem á Olíufélagið Esso, hef-
ur stofnað fjögur
fyrirtæki með út-
gerðarfyrirtækinu
Skinney Þinga-
nesi. Fyrirtækin
heita Melatangi
ehf, Klettavík ehf, Loðna
ehf og Klav ehf. Öll em þau
skráð á Suðurlandsbraut 18
þótt Skinney Þinganes sé á
Hö&i í Homafirði. Fram-
kvæmdastjóri Skinneyjar,
Aðalsteinn Ingólfsson er
stjórnarformaður allra fé-
laganna sem hafa öll sama
tilgang: útgerð, fiskvinnslu
og annan skyldan rekstur.
Gunnar Kvaran sellóleikari er vanur að koma fram á góðgerðartónleikum og ekki
síður skipuleggja þá fyrir samtökin Vini Indlands. Gunnar hefur fengið alla helstu
listamenn þjóðarinnar til að koma fram og hafa þeir aldrei tekið greiðslu fyrir.
Gunnar segir dæmi Kristjáns Jóhannssonar undantekninguna sem sanni regluna.
Teknr aldrei krónn íyrir
góðneröertónleika
Einn fremsti sellóleikari landsins, Gunnar Kvaran, tekur aldrei
krónu fyrir að koma fram á góðgerðartónleikum en það gerir
hann oft. Bæði leikur hann á shkum tónleikum og skipuleggur
þá. Hefur Gunnar oftsinnis fengið marga af fremstu listamönn-
um þjóðarinnar til áð koma fram á vegum samtakanna Vina Ind-
lands og í því sambandi hefur aldrei verið rætt um peninga. Ekki
einu sinni flutning á hljóðfærum.
Diddú og Bubbi og allir
„Mér finnst að umræðan um
tónleika Kristjáns Jóhannssonar
hafi verið á villigötum hvað þetta
varðar. An þess að vilja setjast í
dómarasæti sýnist mér sem dæmi
hans sé undantekningin sem sann-
ar regluna," segir Gunnar Kvaran,
sem kvæntur er Guðnýju Guð-
mundsdóttur, konsertmeistara Sin-
fóníuhljómsveitarinnar, þannig að
þau hjón vita hvernig landið liggur í
þessum efnum.
„Ég hef haldið sex góðgerðartón-
leika í nafni samtakanna Vina Ind-
lands og fengið til mín listamenn á
borð við Diddú, Bubba, KK, Garðar
Cortes, Óperukórinn, Gunnar Eyj-
ólfsson, Arnar Jónsson, Tríó Reykja-
víkur og svo mætti lengi telja. Allt
hefur þetta fólk komið ff am án end-
urgjalds og aldrei hvarflað að nein-
um að fara fram á slfkt. Þó má til
sanns vegar færa að ef listamenn
eru sóttir út fyrir landsteinana er
kannski eðlilegt að ferðakostnaður
sé greiddur en ekki meira. Kristján
lóhannsson og aðrir sem fram
koma á góðgerðartónleikum og
þiggja fyrir það fé verða að eiga það
við eigin samvisku."
Alltaf ókeypis
Samtökin Vinir Indlands hafa
lengi verið Gunnari Kvaran kær og
hélt hann síðast góðgerðartónleika
fyrir hálfum mánuði í Salnum í
Kópavogi. Þar þurfti hann ekki að
greiða einum einasta listamanni
krónu: „En ég greiddi fyrir salinn
enda vart annað hægt því ella
fengju menn þar ekki frið," segir
Gunnar Kvaran, sem er vanur að
koma fram á góðgerðartónleikum
bæði hjá Caritas, hjálparsamtökum
kaþólsku kirkjunnar, og Amnesty
International svo fátt eitt sé nefnt:
„Aldrei hef ég tekið krónu og ekki
neinn sem þar hefur komið fram,"
segir hann.
„Aðrirsem fram koma
... og þiggja fyrirþað
fé verða að eiga það
við eigin samvisku."
Kristján Jóhannsson Undantekningin sem
sannar regiuna þegar kemur að góðgerðar-
málum.
Ólafur Bergmann Sigurðsson fluttur á geðdeild
Iðnaðarmenn söfnuðu 30 þúsund
krónum fyrir dúkkukall
„Strákarnir lásu fréttina og vildu
gera eitthvað til að hjálpa karlinum,"
segir Hermann Ragnarsson, sem
rekur fyrirtækið Flotmúr. Starfs-
mennirnir söfnuðu saman 15 þús-
und krónum í hádegismatnum í gær
til að styðja Ólaf Bergmann Sigurðs-
son dúkkukall á Sauðárkróki, og fyr-
irtækið lagði annað eins á móti.
„Okkur finnst bara að hann eigi skil-
inn stuðning," segir Hermann og
segir hugmyndina vera að aðrir sýni
mönnum eins og Ólafi stuðning og
sýni jólaandann í verki.
Hermann fór að geðdeild Land-
spítalans þar sem hann ætlaði að af-
henda Ólafi glaðninginn en fékk
ekki að hitta hann. Starfsfólk lofaði
að koma gjöfinni til skila.
„Þetta eru frábærir strákar sem
ég elska alla mína ævi eftir þetta,"
segir Ólafur. „Ég er innilega þakklát-
ur. Þetta er eina jólagjöfin sem ég
fæ,“ segir hann.
„Hafið ekki áhyggjur af mér,"
segir Ólafur. „Mér líður vel líkam-
lega en skuldirnar eru rosalegar."
Ólafur er ekki sáttur við að ákveðið
hafi verið að vista hann á geðdeild í
að minnsta kosti þrjá daga. Hann
var sóttur á heimili sitt í fyrrakvöld
og lögreglan keyrði hann suður til
Reykjavíkur þar sem hann verður
undir eftirliti geðlækna á Landspít-
alanum. Ólafur lítur ekki þannig á
að hann sé að fá aðstoð en áttar sig á
að hann þurfi hjálp. Þegar hann er
spurður hver geti hjálpað honum,
segir hann: „Ég sjálfur. Guð hjálpar
þeim sem hjálpa sér sjálfir og Guði
er ekkert ómögulegt. Guð ræður og
vegir hans eru órannsakanlegir."
Dúkkan hans, Pamela varð eftir á
Sauðárkróki en Ólafur segir að hann
sé búinn að fá sér nýja dúkku. „Það
er ekki sexdúkka heldur er hún
úr postulíni," segir hann.
„Hún heitir Didda og er
með mjög fallegt hár og
hún bíður eftir mér í
Kaupfélaginu fyrir
norðan."
Ólafur Bergmann
Sigurðsson.fg er
innilega þakklátur.
Þetta er eina jóla-
gjöfin sem ég fæ."