Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2004, Síða 14
74 MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 2004
Fréttir 0V
Fannst eftir
fjöra daga
Lítill kínverskur 1
faxhundur úr Breiðholti
sem týndist í síðustu viku, fannst eftir fjóra
daga í Víðihvammi í Kópavogi. Hann hafði þá
verið á þvælingi á svipuðum slóðum í bænum
í fleiri daga. Eigendur hans höfðu haft fregnir
af honum við Hlíðarveginn en hann var
hræddur og þorði ekki til þeirra. Þau náðu
honum með því að króa
hann af, en þegar
hundurinn fann lyktina af eigendunum, kastaði hann
sér i fang þeirra og grét mikið og lengi. Hann var í furðu
góðu ástandi en svangur og hræddur að sögn þeirra.
Nú styttist óðum í hina sívinsælu jólagöngu deildar þýska
fjárhundsins, en gangan er fyrirhuguð fimmtudaginn 9.
desember. Að þessu sinni, eins og reyndar tvö undanfarin ár,
ætlum við að ganga um fjörðinn sem hýrastur er allra fjarða,
enda höfum við ávalit verið velkomin til Hafnarfjarðar. Við ætl-
um að hittast á planinu fyrir framan Hafnarfjarðarkirkju,
Strandbergi við Strandgötu, rétt fyrir klukkan átta og halda
síðan af stað i gönguna stundvíslega kl. 20.00. Hvetjum við
sem flesta til að koma og ganga með hundana sína í góðum félagsskap.
berglJot@dv.li
Bergljót Davíösdóttir
skrifar um dýrin
sín og annarra á
miðvikudögum í DV.
Þau láta vel hvor að öðrum og hundurinn þvær naggrísnum öllum hátt og lágt.
Naggrísinn og hundurinn
Mér finnst þeir skemmtilegri en nokkur köttur
og hefógurlega gaman afþeim.
Lítill Chihuahua
týndur
Tímon, lítill Chihuahua
hundur, hvarf af heimili sínu við
Hverfisgötuna í Hafharfirði á
sunnudagskvöldið og hefur ekki
fundist siðan. Eigandi hans, Ing-
unn Hallgrímsdóttir, hefur leitað
ásamt fleira fólki um allt en án
árangurs. Hún fékk til liðs við sig
sporhund sem fer alltaf sama
hringinn nærri heimili hennar
en Ingunn á eftir að kanna betur
í þeim húsum hvort fólk hefur
séð hann. Hún vonast þó til að ef
einhver hafi tekið hann inn til
sín og láti hana vita því hann er
ekki merktur. „Maður getur
aldrei vitað hvað hefur komiö
fyrir en ég vona að fólk láti sér
ekki detta í hug að stela svona
hundi," segir Ingunn. Þeir sem
einhverjar upplýsingar eru
beðnir um að hringja í Ingunni í
síma 6976912 eöa Ursúlu í síma
6615521. Tfmon er Ijós á lit,
grákremaður og afar fallegur.
„Hann dó fyrir skömmu naggrís-
inn okkar sem við áttum í ein sex eða
sjö ár og fengum í hans stað Stefaníu
sem er að aðlagast og venjast okkur
núna,“ segir Sverrir Már Sverrisson
sem er mikill naggrísaaðdáandi.
Sverrir Már segir þann gamla hafa
verið orðin ansi mannelskan og segir
hann hafi legið á maga sínum á
meðan hann strauk honum, auk þess
sem naggrísinn fagnaði
húsbóndanum eins og hundur þegar
hann kom heim á kvöldin.
„Þá vildi hann láta taka sig og
lyftist allur upp í búrinu," segir
Sverrir og tekur fram að ekkert sé
líkt með naggrísi og hamstri.
Naggrísinn sé mun stærri og alls
ekki með neitt skott. „Mér finnst
þeir skemmtilegri en nokkur köttur
og hef ógurlega gaman af þeim. Sá
gamli svaf við hlið mér og í hvert
sinn sem ég vaknaði á næturna þá
vaknaði hann líka og vildi fá klapp
frá mér. Stundum tók ég hann upp í
og þá lá hann á maga mínum og
naut þess að láta strjúka sér. Það
kom fyrir að hann skreið undir
sængina og þótti gott að kúra þar í
hlýjunni. Þessi nýi sem við fengum
að honum látnum átti að vera
strákur líka og hét til að byrja með
Stefán. En það kom fljótlega í ljós
að það vantaði á hann punginn.
Það leyndi sér því ekki að um Stef-
aníu en ekki Stefán var að ræða,"
segir Sverrir, en hann og kona hans,
Sigríður Benediktsdóttir, eiga
einnig hund af Terrier tegund sem
lætur sér mjög annt um naggrísinn.
„Hún tók á móti honum og byrjaði
að sleikja hann allan og þvo. Stef-
anía lét sér það vel líka," segir hann.
Sverrir segir að Stefama sé geymd
í búri þar sem hún unir sér vel. Hún
fær grænmeti, ávexti og korn að
borða og gerir þarfir sínar í eitt hom-
ið á búrinu. „Stefama er dálítið stygg
enn þá en er öll að koma til. Hún á
líklega eftir að kynnast okkur betur
en þetta kemur allt með tímanum,"
segir Sverrir er en þau hjón em mikl-
ir dýravinir og njóta þess að hafa
bæði naggrísinn og hundinn á
heimilinu.
Sverrir Már með naggrfsinn og Silki
Terrier. Naggrísirm vill koma upp i á næturn-
ja og fær stundum að kúra hjá Sverri. Þá skrið-
lurhann undirsæng i hlýjuna.
Lögreglan í Reykjavík gefur út nýjar
reglur vegna afskipta af dýrum.
Dýrin verða ætíð
bókuð hjá lögregiu
Lögregan í Reykjavlk hefur tekið
saman nýjar reglur vegna afskipta af
dýmm en eins og þeir sem tapa dýr-
um sínum vita hefur verið allur gang-
ur á hvemig tekið hefur verið á mál-
um. Það hefur einkum helgast af
hveijir hafa þar komið að og mati
manna hverju sinni.
í þesum nýju reglum er tekið skýrt
fram að eftirlitsmenn í viðkomandi
umdæmi skulu taka við dýmnum og
þeim haldið á kostnað viðkomandi
sveitarfélaga. Ef dýrsins er ekki vitjað
innan einnar viku, verður það selt
fyrir áföllnum kostnaði, ráðstafað til
nýs ábyrgs eiganda eða aflífað.
í reglunum er ennfremur tekið
fram að ætíð skuli tilkynnt til héraðs-
dýralæknis eða UST ef gmnur leiki á
að dýr sæti illri meðferð. Ef gmnur
leikur á að um alvarlegri brot sé að
ræða er lögreglu heimilt að brjótast
fyrirvaralaust inn og taka dýr úr
vörslu eiganda. Þá er lögreglu heimilt
að fara inn í útihús eða heimili án
dómsúrskurðar ef brýn hætta er á
ferðum eða ef talið er að bið eftir úr-
skurði valdi dýrunum heilsutjóni.
Reglurnar tóku gildi þann 1. desem-
ber sl.
í reglunum er ákvæði um að ef
lögregla kemur að lemstmðu eða
dauðu dýri skal því komið til dýra-
læknis svo fljótt sem auðið er en aflíf-
að ef ætla má að það sé svo illa slasað
að því verði ekki bjargað. Það skal
bókað og héraðsdýrlækni tilkynnt
um málið. Á þessu hefur verið mikill
misbrestur og ber að fagna því að
reglur em skýrar um hvað beri að
gera. Samkvæmt þessu á ekki lengur
að fara á milli mála ef ekið er kött eða
hund. Það skal bókað hjá lögreglu ef
hún kemur að því, jafnvel þótt dýrið
sé ekki lengur á lífi.
IIIF7ÖLSKYLPU-OC
HUSPÝRACARÐURINN
Opið alla daga frá kl. 10-17