Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2004, Side 24
24 MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 2004
Menning DV
Molly Moon
stöðvar
heiminn
Eftir Georgia
Byng
Þýðing Jón
Karl Helgason
Bjartur
Verð: 2.680 kr.
Bókmenntir
Ofsykursætur
endirá
skemmtilegri
sögu
Molly Moon stöðvar heiminn er
sjálfstætt framhald bókarinnar
Molly Moon og dáleiðslubókin. Ég
hefekki lesið fyrri bókina en hafði
' gaman afþessari í meginatriðum.
MollyMoon er munaöarlaus
stelpa sem fannst I kassa utan af
Moon-sykurpúðum. Hún býrá
Hardwick-munaðarleysingjaheimil-
inu í Briersville I Bretlandi. Molly
hefur mikla dáleiðsluhæfileika sem
hafa fært henni peninga og betra
líf. Þegar Lucy Logan, góölegur
bókasafnsvörður, felur Molly erfitt
verkefni eru dáleiðsluhæfileikarnir
bráðnauðsynlegir. Molly á að rann-
saka moldrlkan hættulegan mann
sem kallast Primo Cell. Brátt er hún
á leið til Los Angeles ásamt flestum
*• afHardwick-munaðarleysingjahæl-
inu en þar lendir Molly bæði í mikl-
um erfiðleikum og spennandi og
skemmtilegum uppákomum ásamt
Rocky vini slnum og sjarmahundin-
um Petulu.
Þegar ég fékk Molly Moon I hend-
ur vakti kápan athygli mína en
hún er einstaklega flott og I góðu
samræmi við efni bókarinnar. Mér
fannst Molly Moon stöðvar heim-
inn skemmtileg bók og sagan byrj-
ar fljótt og vel. Það er reyndar trufl-
andi að kaflarnir eru stuttir en það
er llklega betra fyriryngri lesendur.
t. Megingalli bókarinnar er hins veg-
ar sá að hún veröur þegar Ifða tek-
ur á söguna svalltið langdregin og
endirinn er allt of sykursætur. Til
dæmis fær ein sögupersónanna
hlutverk I mynd með besta leik-
stjóranum og aðalstjörnunni I
Hollywood og þetta var besta
mynd þess leikstjóra! En engu að
síður hafði ég gaman afMolly
» Moon, sem ég héld að henti best
fyrir svona 8-12 ára krakka.
Nanna Elisa Jakobsdóttir 14 ára
iPIIHj
s filfif!
Yfirskriftin er söguþráður í leikriti
írsku skáldkonunnar Marinu Carr, en
í síðustu viku var þetta verk loksins
frumsýnt í London. Hér verður það á
fjölum Þjóðleikhússins í janúar. í við-
tölum við Lundúnapressuna í síð-
ustu viku var Marinu lýst sem elsku-
legri kónu, með sítt dökkt hár og
dökk augu, hún hafi yfir sér
madonnusvip, sem skýrist af því að
hún er með barn á bijósti og hikar
ekki við að gefa því meðan á viðtöl-
um stendur.
Marina Carr er þriggja barna
móðir og frægasta leikskáld íra um
þessar mundir. Hún segir að nýfædd
dóttir sín verða sitt síðasta barn. Hún
hefur ekkert unnið við skriftir síðan
dóttirin fæddist og að þessu sinni
angrar það leikskáldið ekki: „Manni
fallast hendur þegar nýtt barn kemur
í heiminn og í þetta sinn streittist ég
ekki á móti,“ segir hún.
Barnamorð Verkin hennar eru
ekki beinlínis bh'ð við börn og mæð-
ur. Eitt af hennar fyrstu verkum sótti
efni sitt í keltneskar sagnir og segir af
móður sem drepur börnin sín. í einu
þekktasta verki sínu, Portia Cough-
lan, segir af konu sem stútar flösku af
koníaki fyrir hádegi og dreymir
dagdrauma um að stúta börnunum
sínum og gengur á endanum í sjóinn.
Það þótti ekki beint við hæfi að
Mæðradeild Landspítala Dyflinnar
pantaði verkið til að minnast aldaraf-
mæhs deildarinnar. í Mýrarljósi eða
By the Bog of Cats, sem þýðir bók-
staflega Við Kattarmýri, sækir hún
minni í Medeu, grísku sögnina af
Jason og konu hans sem fórnaði frek-
ar börnum þeirra en að sjá á eftir
honum í annað hjónaband. Það
minnir okkur á, segir Carr, að sumt
fólk „drepur fýrir eitthvað og deyr
fyrir eitthvað".
Skáldkonubörn
í viðtali við Guardian í síðustu
viku varð henni tíðrætt um þá fórn
sem mæður færa vegna barneigna.
Henni er þá einkum hugsað til kven-
rithöfunda og bendir hún á mörg
dæmi þess að afkastamiklar konur í
þeirri stétt hafa kosið sér barnsleys-
ið: George Eliot, Bronté, Austen voru
barnlausar. Hún nefnir til ljóðskáld-
in Sylviu Plath og Ann Sexton sem
báðar áttu erfitt með að sætta sig við
móðurhlutverkið: „Sannleikurinn er
Halldóra Björnsdóttlr HesterSwane er
kona sem svlfst einskis.
sá að barnahópur er fyrirferðarmikill
og það er ári erfitt að gefa sér rými til
að skrifa á slíku heimili." Jakobína
Sigurðardóttir skrifaði á nóttunni.
Ófagurri mynd Carr hefur samt tekist
að setja mark sitt á írska leikritun á
fáum árum. Þar er hún reyndar í
fararbroddi í stórri sveit leikskálda
sem þvr miður hafa fá átt veg upp á
íslensk leiksvið, eins og margt er
skylt með kaþólskúm frændum okk-
ar suðurfrá. Leikrit Carr fjalla flest
um konur sem standa höllum fæti og
grípa sumar til örþrifaráða þegar
þær snúast til varnar fyrir sitt skadd-
aða sjálf. Áhugi hennar á brotnum
fjölskyldum sem brjóta í bága við
hefðbundnar hugmyndir íra hefur
margsinnis valdið heiftarlegum deil-
um á írlandi: On Raftery Hill var
frumsýnt í Dyflinni 2000 og segir frá
föður sem misnotar dætur sínar.
írska þjóðin var þá í sárum eftir af-
hjúpanir á kynferðislegri misnotkun
í stofnunum til verndar börnum.
Þegar sýningin var flutt til London
bentu gagnrýnednur á þann kulda
sem stafaði af nauðgun yngstu dótt-
urinnar á sviðinu og ekki síður að
Carr neitaði að dæma misindis-
manninn í verkinu.
Pólitískur rétttrúnaður
Carr segir siðvendni hættulega
listum: „Pólitískt kórréttar kenningar
eru að eyðileggja bókmenntir okkar.
Víst er staður fýrir þá sem vilja taka
stranga siðferðUega afstöðu, en hann
er ekki í garði listanna. Siðferðislögg-
an má ekki standa fyrir aftan þig þeg-
ar leikverk eru samin. Persónumar
verða að ráða ferð sinni. Leikverk eru
samin af ímyndunaraflinu, ekki af
skynsemi. Mýrarljós var frumsýnt á
Dyflinnarháú'ðinni 1998 og fékk mis-
jafnar viðtökur. Bandaríska leikkon-
an Holly Hunter lék aðalhlutverkið í
sviðsemingu vestur í San Jose í Kali-
forníu en verkið var þar frumsýnt 10.
september 2001 og öllum tíl furðu
gekk sýningin vel. Fjöruú'u þúsund
gestir komu á sýninguna. „Bölsýnt
verkfýrfr bölsýna tíma.“
Þekktu sjálfa þig - en ekki of
vel
Hester Swane er hættuleg kona en
vekur samúð áhorfenda. Carr dregur
ekki dul á að hún stendur með sinni
konu, þrátt fyrir Ulvirkin. Hester
hefur aldrei jafnað sig eftir móður-
missi, ekkert er jafn sárt dóttur og
það að móðirin yfirgefi hana. Leik-
skáldið írska Frank McGuinness seg-
fr: „Oft er harmleikurinn afleiðing
þess að fóUc þekkir ekki sjálft sig og
leiðist út í ógöngur. Marina Carr snýr
þessu við. Hennar persónur deyja
fyrir þá sök að þær þekkja sig svo vel.
Sannleikurinn drepur þær. Og þær
fljóta að feigðarósi með galopin
augu.“
Hlátur í gráti
LeUcverk Carr eru ekki eintóm sút
og sorg. Mýrarljós er frUlt af tryllings-
legum húmor. Carr vitnar í írska ljóð-
skáldið Pat Kavanagh sem sagði
harmleUcinn vanþroskaða kómedíu.
Sjálf segist hún ekki treysta sér úl að
skrifa gamanleiki, það er gleði og
skop í harminum sem vekur áhuga
hennar og hún ásakar gagnrýnendur
fyrir að sjá að aðeins dökku tiliðamar
á verkunum. Reyndar er sú hefð sterk
í írskri leikritun að velta sömu mynt-
inni fyrir áhorfendum og láta báðar
hliðar peingsins glampa, þá sorglegu
og hina björtu. Hjá bestu höfundum
íra hafa þau tvö öfl tekist á, stundum
skinið samtímis, og nægir að nefna
Sean O’Casey.
Flutt í sveit
Carr fekk sín fýrstu tækifæri hjá
Abbey-leikhúsinu, þjóðleikhúsi íra í
Dyflinni. Þar tók hún sín fyrstu skref,
eins og Behan, Murphy, McGuinness
og fleiri. Nú þegar verk hennar eru að
sækja á í evrópskum leikhúsum er
hún að flytja sig frá Dyflinni til Kerry
þar sem hún hefur eignast heimili í
sveit. Hún segir það kosúnn við
skriftirnar hvað það sé verklegt fag:
„Maður skrifar bara frá einum
punkti til annars. Það kemur síðan í
ljós hvað það merkir. Meðan á því
stendur hlýðir maður eðlisávísun
sinni, þannig verða bestu verkin til.
Það finnst mér svo frábært. Svo fær
maður borgað fýrir það. Ég er svo
sammála Samuel Johnson sem sagði
að það væru bara flón sem skrifuðu
ekki fyrir peninga."
Edda Heiðrún leikstýrir
Sviðsetning Eddu Heiðrúnar
Backman á Mýrarljósi verður frum-
sýnd í janúar. Það erÁrni Ibsen sem
þýðir Carr. Edda hefur kallað AÚa
Heimi Sveinsson til að semja tónlist
við verkið. Þá eru nýkomnir til
landsins þeir Thanos Vovolis sem
gerir búninga og grímur fyrir sýn-
inguna og Giorgios Zamboulakis
sem annast dans- og sviðshreyfmg-
ar. Stór hópur leikara kemur fram í
sýningunni: Halldóra Björnsdóttir
mun leika Hester, Baldur Trausti
Hreinsson eiginmann hennar. Aðr-
ir leikarar verða Edda Arnljótsdótt-
ir, Guðrún S. Gísladóttir, ívar Örn
Sverrisson, Kristbjörg Kjeld, Krist-
ján Franklín Magnús, Lilja Guðrún
Þorvaldsdóttir, Ragnheiður Stein-
dórsdóttir, Sigurður Sigurjónsson,
Sigurður Skúlason, Vigdís Hrefna
Pálsdóttir og fleiri. Þeir sem hafa
áhuga á að sjá Holly Hunter í svið-
setningunni í London er bent á að
hún er flutt í Wyndhams-leikhús-
inu við Charing Cross Rd.
Stórsveitin íjólabúningi
Stórsveit Reykjavíkur heldur sina
árlegu jólatónleika í Ráðhúsi Reykja-
víkurí kvöld miðvikudaginn 8. des-
ember og hefjast þeir kl. 20. Flutt
verður fjölbreytt efnisskrá innlendr-
ar og erlendrar jólatónlistar í stór-
sveitarbúningi. Einsöngvari á tón-
leikunum verður hinn ástsæli raulari
og sjarmör Bogomil Font, en stjórn-
andi verður SamúelJ. Samúelsson,
nýkjörinn kynþokkafyllsti poppari
landsins.
Frumfluttar verða nokkrar jólaút-
setningar eftir Samúel og nýr ís-
lenskur texti Sigtryggs Baldurssonar
é i"
tlZÍSJ
Stórsveit Reykjavfkur Vorkvöld
í Reykjavíkmeð Ragga Bjarna.
DV-mynd Hari I
við gamla Louis Armstrong
jólasmellinn„Zat you Santa Claus?"
verður sunginn i fyrsta sinn opinber-
lega.Einnig verða að vanda fluttir
nokkrir þættir úr Hnotubrjótnum eft-
ir Tsjaikovskí í útsetningu Duke Ell-
ington.
Það er þvi mikill blástur fram und-
an i kvöld og hefur andafélagið á
Tjörninni lofað að hafa hljótt um sig
meðan á konsertinum stendur. Að-
gangur er ókeypis og öllum heimill á
meðan húsrúm leyfir. Missið ekki af
óvenjulegum og skemmtilegum
jólatónleikum - án endurgjalds!
Hester Swane er alin upp við Kattamýri og er tengd þeim stað órjúfanlegum bönd-
um. En nú vilja allir koma henni burt. Hún virðist vera dæmd til þess að vera yfir-
gefin; móðir hennar fór þegar hún var sjö ára og nú ætlar barnsfaðir hennar að taka
frá henni dóttur þeirra og kvænast ungri dóttur stórbóndans við mýrina.
Barnamoröinginn
Marina Carr