Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1997, Blaðsíða 68
Janúar
Bjartasta reikistjarnan, Venus, er morgunstjarna, en nærri sól og lágt
á lofti. í byrjun mánaðar er hún 4° yfir sjónbaug á suðurhimni við sól-
arupprás í Reykjavík, en í mánaðarlok rís hún með sól. Satúrnus er
kvöldstjarna, allhátt á suðurhimni við myrkur og sest fyrir miðnætti.
Hann er í fiskamerki. Mars kemur upp fyrir miðnætti og sést best síðari
hluta nætur. Hann er í meyjarmerki og einkennist af rauða litnum.
Febrúar
Mars kemur upp í austri þegar líða tekur á kvöld og er áberandi á
himni til morguns. Hann er í meyjarmerki og ber rauðleitan blæ. Sat-
úrnus er á suðvesturhimni þegar dimma tekur og sest að áliðnu kvöldi.
Hann er að nálgast sól og lækkar því á lofti. Hann er í fiskamerki í byrj-
un mánaðar, en reikar til austurs og er kominn í hvalsmerki í mánaðar-
lok.
Mars
Mars verður gegnt sólu og næst jörðu í mánuðinum og því áberandi
á næturhimninum, bjartari en allar aðrar stjörnur ef frá er talin Síríus.
Mars reikar til vesturs úr meyjarmerki yfir í ljónsmerki. Þegar vika er
liðin af marsmánuði verður hann á lofti allar myrkurstundir sólar-
hringsins. Satúrnus er kvöldstjarna í byrjun mánaðar, lágt í vest-suð-
vestri við myrkur í Reykjavík. Hann er að nálgast sól og hverfur brátt í
sólarbirtuna. Síðustu daga mánaðarins gæti hugsast að Merkúríus sæist
sem kvöldstjarna nærri sól. I mánaðarlok verður hann í 8° hæð yfir
sjónbaug í vest-norðvestri við myrkur í Reykjavík.
Apríl
Mars er fyrir ofan sjónbaug allar stundir þegar dimmt er í Reykjavík.
Hann er í suðri fyrir miðnætti, hátt á lofti og bjartur. Mars er í ljóns-
merki. Merkúríus er kvöldstjarna framan af mánuðinum, skammt aust-
an við sól. Bjartastur er hann í byrjun mánaðarins. Fram til 10. apríl
verður hann 9-10° yfir sjónbaug í vest-norðvestri við myrkur í Reykja-
vík.
Maí
Mars er á suðvesturhimni þegar dimmir í Reykjavík og er bjartasta
stjarnan á himninum þær fáu stundir sem dimmt er. Síðla mánaðar fer
Venus að sjást sem kvöldstjarna lágt á himni í sólarátt eftir sólsetur.
Júní-júlí
Þótt erfitt sé að sjá reikistjörnur frá íslandi um hásumarið, er það
ekki útilokað, sérstaklega ef sjónauki er notaður. Bjartasta reiki-
stjarnan, Venus, er kvöldstjama, lágt á norðvesturhimni við sólarlag í
Reykjavík. Eftir sólstöður verður Júpíter lágt á lofti á suðausturhimni
um lágnættið.
(66)