Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1997, Blaðsíða 197
miklu meiri kauphækkanir en þeir, sem sömdu 21. febrúar.
Þóttust leiðtogar verkalýðsins illa sviknir og vildu fá þessar
launahækkanir dregnar til baka, en fengu engu áorkað.
Launanefnd ASÍ og VSÍ komst að þeirri niðurstöðu í
lok nóvember, að ekki væri tilefni til þess að fella úr gildi
febrúarsamningana vegna launahækkana í þjóðfélaginu
umfram þá, enda ætti ekki að taka tillit til launahækkana
annarra, heldur verðlagsbreytinga. Þær hefðu hins vegar
ekki orðið. Einn launanefndarmanna, Björn Grétar Sveins-
son, formaður Verkamannasambandsins, var á móti þessari
niðurstöðu og nokkur félög innan Verkamannasambands-
ins, svo sem Dagsbrún, Eining o.fl., sögðu upp samningun-
um frá því í febrúar. Þær uppsagnir voru dæmdar ólögmæt-
ar í Félagsdómi og koðnaði málið því niður.
Launanefndin ákvað hins vegar að hækka jólauppbót
launþega vegna betri viðskiptakjara þjóðarinnar. Skyldi
uppbótin hækka úr 13.000 kr. í 20.000 kr. í desember 1995
og úr 15.000 kr. í 24.000 kr. í desember 1996.
Flugumferðarstjórar áttu síðasta orðið í kjaradeilum árs-
ins, en þeir sögðu flestir upp frá og með áramótum. Þeir
töldu sig vinna allt of mikla yfirvinnu og vildu fá hærra fast
kaup. Fjármálaráðuneytið benti á, að heildarlaun þeirra
væru með þeim hæstu hjá starfsmönnum ríkisins. Sam-
gönguráðuneytið sagði að þeir mættu fjúka og hugðist ráða
nýja. Flugumferðarstjórarnir studdu mál sitt með „Opnu
bréfi til íslenzku þjóðarinnar" í heilsíðuauglýsingu í Morg-
unblaðinu 24. desember. Samið var í deilunni 29. desember
og fengu flugumferðarstjórarnir 10,3% hækkun á föst laun
sín, sem voru á bilinu 107.000 til 232.000 kr. á mánuði.
A þingi Vinnuveitendasambands íslands í maí var Ol-
afur B. Ólafsson, framkvæmdastjóri Miðness í Sandgerði,
kosinn formaður sambandsins í stað Magnúsar Gunnars-
sonar, sem ekki gaf lengur kost á sér. í desember lýsti
Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar, því
yfir, að hann yrði ekki í framboði við næsta stjórnarkjör.
(195)