Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1997, Blaðsíða 123
Reykjavíkurmaraþon var haldið 20. ágúst í rigningu og
suðaustanstrekkingi. Skráðir þátttakendur voru rúmlega
3.000. Af þeim hlupu um 130 manns Maraþonhlaupið sjálft,
og um 360 hlupu hálfmaraþon. Hugh Jones frá Bretlandi
sigraði í karlaflokki á tímanum 2:29,26 og Caroline Hunter
Rowe frá Bretlandi í kvennaflokki með 2:56,40. Jackton
Odhiambo frá Kenía sigraði í hálfmaraþoni í karlaflokki á
tímanum 1:08,10 en Martha Ernstsdóttir í kvennaflokki,
1:17,19. Ingólfur Geir Gissurarson náði beztum tíma Islend-
inga í Maraþonhlaupi, 2:53,59. - Gamlárshlaup IR var
haldið í 20. sinn. Sigmar Gunnarsson (UMSB) sigraði í
karlaflokki og Martha Ernstsdóttir í kvennaflokki. Veður
var mjög gott.
Geirlaug B. Geirlaugsdóttir setti met í 60 m hlaupi inn-
anhúss i Ósló í febrúar, 7,63 sek. - Pétur Guðmundsson og
Jón Arnar Magnússon tóku þátt í heimsmeistaramóti inn-
anhúss í Barcelona í marz. Pétur varpaði kúlunni 19,67 m
og varð 6., en Jón Arnar stökk 7,34 í langstökki og komst
ekki í úrslit. - Jón Arnar Magnússon setti í maí íslandsmet
í tugþraut á móti í Götzis í Austurríki. Þetta er annað árið í
röð, sem hann setur met á þessu móti tugþrautarmanna.
Hann fékk nú 8.237 stig, en gamla met hans sjálfs var 7.896
stig. í þessari keppni setti Jón Arnar einnig met í 110 m
grindahlaupi, 14,32 sek. - Á móti í Talence í Frakklandi í
september bætti Jón Arnar metið í 8.248 stig. Hann varð 5.
á mótinu.
Islendingar kepptu í 2. deild Evrópubikarkeppni í Tall-
inn í Eistlandi í júní. íslenzka kvennaliðið varð í 2. sæti, en
karlaliðið í 5. sæti. Jón Arnar Magnússon sló met sitt í 110
m grindahlaupi og hljóp á 14,19 sek. J>á setti íslenzka
kvennasveitin met í 4x400 m boðhlaupi, 3:40,59. - Vala
Flosadóttir setti Norðurlandamet í stangarstökki kvenna í
ágúst. Hún stökk 3,81 m.
Á heimsmeistaramótinu í Gautaborg í júlí gekk Islend-
ingum ekki vel. Jón Arnar hætti, eftir að hafa meiðzt í
stangarstökki, en hafði auk þess verið dæmdur úr leik í 400
m hlaupi. Guðrún Arnardóttir stóð sig bezt og komst í
(121)