Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1997, Blaðsíða 105
20. júnf. Hinn 12. júlí var sláttur almennt byrjaður á Suður-
landi og í Borgarfirði, en á Vestfjörðum, Norðurlandi og
Austfjörðum var ekkert byrjað að slá.
Talið er, að heyfengur af þurrheyi hafi numið 1.288.940 rúm-
metrum (1.676.369 árið áður), en af votheyi 1.214.624 rúmmetr-
um (1.384.686). Af því voru 1.109.429 (1.261.273) rúmmetrar í
votheysrúllum, sem pakkaðar voru í plast. - Framleiðsla á gras-
kögglum nam 3.000 lestum (2.800 árið áður). Heykögglafram-
leiðsla var einnig nokkur eða 243 lestir (375). Frærækt nam um
38 lestum (36 árið áður). - Komrækt festir sig enn í sessi, og
var nú sáð í um það bil 600 hektara (500 árið áður). Heildar-
uppskera af komi var um 1.000 lestir (794 árið áður).
Kartöfluuppskera var minni en árið áður, einkum norð-
anlands, og er talið, að 73.240 tunnur af kartöflum hafi
komið úr jörðu á árinu hjá þeim, sem hafa kartöflur til sölu
(111.450 árið áður).
Gulrófnauppskera var 328 lestir (1.010 árið áður), tóm-
atauppskera 640 lestir (800 árið áður), gúrkuuppskera 588
lestir (520), hvítkálsuppskera 482 lestir (340), blómkáls-
uppskera 104 lestir (90), gulrótauppskera 224 lestir (193),
paprikuuppskera 185 lestir (205), kínakál 290 lestir (300)
og sveppir 223 (220) lestir. í tölum um grænmeti er átt við
það magn, sem fór til sölu.
Berjaspretta var talin almennt frekar lítil á landinu en þó
misjöfn. Á Ströndum fundust engin ber, en allgóð spretta
var talin í Reykhólasveit.
Slátrað var 566.307 kindum í sláturhúsum (543.929 árið
áður). Af því voru 521.234 dilkar (511.799) og 42.409 full-
orðið fé (32.130). Meðalfallþungi dilka var 14,76 kg, sem er
0,85 kg minni fallþungi en árið áður. Kindakjötsframleiðsl-
an var 8.690 lestir, sem er 107 lestum minna en árið áður. -
Slátrað var 22.387 nautgripum (25.948). Nautgripakjöt var
3.061 lest (3.544). Slátrað var 8.739 hrossum (7.147), og
hrossakjöt var 988 lestir (808). Slátrað var 53.478 svínum
(52.682), og var svínakjötsframleiðslan 3.330 lestir (3.212).
Alifuglakjötsframleiðsla var 1.952 lestir (1.359) og eggja-
framleiðsla 2.209 lestir (2.234).
(103)