Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1997, Blaðsíða 193
bólga en árið áður, en þá var hún 1,5%. Verðbólgumetið er
frá 1983, 70,8%.
Vísitala gengisskráningar var í árslok 116,31 stig (116.48
árið áður). Gengi krónunnar hafði þannig aðeins lækkað á
árinu. Meðalsölugengi bandaríkjadals í desember 1995 var
65,50 kr., en var 68,95 kr. í desember 1994. Meðalsölugengi
dalsins yfir árið var 64,87 (70,12).
Verðlag á nokkrum algengum vörutegundum og þjón-
ustu á höfuðborgarsvæðinu var sem hér segir í nóvember
1995 (innan sviga eru tölur frá nóv. 1994): Franskbrauð
sneitt, kg 275 kr. (241), súpukjötskíló 523 kr. (462), ýsuflök
512 kr. (525), nýmjólkurlítri í pakka 63 kr. (65), smjörkíló
333 kr. (343), eplakíló 168 kr. (123), kartöflukíló 43 kr. (46),
strásykurskíló 75 kr. (67), kaffikíló 721 kr. (631), Coca-Cola
í dós (33 cl) 63 kr. (60), brennivínsflaska 2.150 kr. (1.960),
bjórkippa 800 kr. (820), vindlingapakki 267 kr. (267),
herraskyrta 4,760 kr. (4.427), kvensokkabuxur 562 kr.
(567), benzínlítri (95 okt.) 70 kr. (68), mánaðargjald á dag-
heimili með fæði 14.000 kr. (14.000), afnotagjald Ríkisút-
varpsins á ári 24.000 kr. (24.000), bíómiði 550 kr. (500),
fullorðinsmiði á íslandsmótið í knattspyrnu 700 kr. (700),
síðdegisblað í lausasölu 150 kr. (140), sundmiði 110 kr.
(110), strætómiði 100 kr. (120).
VINNUMARKAÐUR
Atvinnuleysi á árinu taldist vera 4,9% af áætluðum mann-
afla (4,7% árið 1994). Þetta svarar til þess, að 6.539 manns
hafi verið á atvinnuleysisskrá að meðaltali allt árið (6.208
árið áður). Atvinnuleysið var þannig nokkru meira en árið
áður. Flestir voru atvinnulausir í janúar, 8.633 að meðaltali.
Af þeim voru 4.209 konur og 4.424 karlar.
I ársbyrjun voru allir kjarasamningar í landinu lausir.
Samningar gengu hægt, og 26. janúar fékk Dagsbrún heim-
ild til verkfallsboðunar. Síðar var samþykkt, að verkfall
skyldi hefjast 28. febrúar. Svo fór þó, að nýir kjarasamn-
ingar milli ASÍ og VSÍ voru undirritaðir aðfaranótt 21.
(191)