Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1997, Blaðsíða 113
september. Pau fóru m.a. til Vestmannaeyja. Opnuð var
sýningin Finnland á Evrópukorti í 500 ár.
I ræðu sinni við þingsetningu 2. október tilkynnti Vigdís
Finnbogadóttir, að hún gæfi ekki kost á sér til forsetafram-
boðs 1996. Þá þegar hófst umræða um væntanlega fram-
bjóðendur, og fólk var spurt um það í skoðanakönnunum.
I DV-könnun í október fékk séra Pálmi Matthíasson flestar
tilnefningar eða 21,6%, Guðrún Agnarsdóttir fékk 20,3%,
Davíð Oddsson 15,1%, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir 10,6%
og Steingrímur Hermannsson 9,9%.
heryarnir
Hinn 2. marz hætti 57. flugsveit bandaríska flughersins
störlum á Keflavíkurflugvelli, en hún hafði verið staðsett
þar síðan í nóvember 1954. í hennar stað kom 85. aðgerða-
sveitin. Flugsveitir með F15 orustuflugvélum skiptast á um
að vera á Keflavíkurflugvelli.
Æfingin Norður-Víkingur stóð frá 15. til 23. júlí. Ovenju-
margar herflugvélar, 30-50, tóku þátt í henni í þetta sinn.
Meðal þeirra voru B-52 sprengjuflugvélar, sem ekki hafa
áður sézt á íslandi. Voru flugvélarnar að æfingum á svæð-
inu frá Þverfelli á Hofsjökli í vestri og að Bárðarbungu á
Matnajökli í austri.
Umræða varð í júlí um það, hvort kjarnavopn hefðu ver-
ið á íslandi á árunum 1958-65, en upplýst var, að slík vopn
hefðu verið á Grænlandi á þessum tíma.
A ráðstefnu Samtaka um vestræna samvinnu 7. septem-
ber lagði Björn Bjarnason menntamálaráðherra til, að
stofnaðar yrðu varnarsveitir á íslandi. Hugmyndinni var
fálega tekið.
IÐNAÐUR
Hagur iðnaðar í landinu fór almennt batnandi á árinu.
Þetta kom bezt fram í því, að útflutningur iðnaðarvara óx
að verðmæti um 19%.
(111)