Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1997, Blaðsíða 196
isins, að hann legði fram sáttatillögu í deilunni, þar sem
reynt yrði að fara milliveg, sem báðir gætu sætt sig við.
Þetta var gert 26. marz, og var tillagan samþykkt af for-
ystumönnum kennara og fjármálaráðherra daginn eftir, en
kennsla hófst að nýju 30. marz. Laun kennara voru talin
mundu hækka um 14-20% á tveimur árum. Seinna sam-
þykktu 67% kennara í KÍ tillöguna og 75% kennara í HÍK.
Til þess að vinna upp kennslutap var gripið til ýmissa
ráða í skólum, m.a. að kenna á helgidögum. Haldið var
sögupróf í Menntaskólanum í Reykjavík á annan í páskum.
Flugfreyjur voru í þriggja daga verkfalli 28.-30. marz.
Um 20 yfirmenn Flugleiða, þ.á m. forstjórinn, gengu í störf
þeirra. Samið var í kjaradeilu þeirra 26. apríl. Sleipnir, fé-
lag langferðabflstjóra, var í verkfalli 22. maí til 1. júní.
Hinn 25. maí hófst sjómannaverkfall, þ.e. háseta á fiski-
skipum. Um 5.000 sjómenn lögðu niður vinnu. Ekki hafði
verið í gildi samningur milli sjómanna og útvegsmanna síð-
an í ársbyrjun 1993, því að kjaradeila á árinu 1994 hafði
verið leyst með bráðabirgðalögum. Deilan snerist um svo-
nefnt kvótabrask og hlut sjómanna úr afla, sem ekki fór á
fiskmarkaði. Hún stóð í tæpan mánuð, og m.a. var miðlun-
artillaga sáttasemjara felld. Úrslit í þeirri atkvæðagreiðslu
voru tilkynnt 12. júní og sögðu 1.296 sjómenn nei, 893 já.
Síðan var skyndilega samið 15. júní, og var meginatriði
samningsins það, að gera verður samkomulag fyrirfram
milli útgerðar og áhafnar um verð alls afla, sem seldur er
utan fiskmarkaða. Ef ekki næst samkomulag fer hver deila
til úrskurðarnefndar. - Farmenn fóru í verkfall 26. júní, og
stöðvuðust þá ferjusiglingar til Vestmannaeyja og Akra-
ness. Samið var 30. júní.
Kjaranefnd felldi úrskurð 8. september um laun æðstu
stjórnenda ríkisins, alþingismanna, ráðherra og forseta.
Voru laun þeirra hækkuð um 10-20%, auk þess sem alþing-
ismenn fengu 40.000 kr. fasta greiðslu á mánuði skattfrjálsa
vegna kostnaðar. Hinn 14. september voru haldnir mót-
mælafundir á Ingólfstorgi í Reykjavík og á Akureyri til
þess að mótmæla því, að alþingismenn og fleiri fengju
(194)