Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1997, Blaðsíða 157
SLYS OG SLYSAVARNIR
Á árinu létust 86 af slysförum á íslandi (44 árið áður).
Þetta er sjötta versta slysaár á síðustu 30 árum. Með eru
taldir fjórir íslendingar, sem létust erlendis, og tveir út-
lendir gestir, sem fórust hérlendis.
Drukknanir á árinu voru 11 (10), 28 fórust í umferðar-
slysum (18), 5 í flugslysum (4), en 42 í öðrum slysum (10). í
snjóflóðum fórust 36 á árinu og hafa aldrei í sögu þjóðar-
innar farizt svo margir af þeim völdum á einu ári, svo að
vitað sé. Enginn fórst með sokknu skipi á þessu ári. Októ-
bermánuður var versti slysamánuðurinn, en þá létust 29.
Slys á sjó
Hinn 23. febrúar sökk Pétur Jóhannsson SH 177, sex
tonna trilla, skammt frá Rifi. Skipverjar, sem voru tveir,
björguðust um borð í aðra trillu.
Reki RE 666 sökk 20 sjómílur vestur af Blakki 19. marz.
Skipverjarnir tveir komust á kjöl og var bjargað blautum
og köldum af Brimnesi frá Patreksfirði.
Hilmir BA 48, fjögurra tonna trefjaplastbátur, sökk um
15 mflur norðvestur af Blakksnesi 25. júlí. Einn maður var
um borð og bjargaðist eftir að hafa kafað eftir gúmmíbát.
Valborg BA 130 sökk 17 sjómflur vestur af Blakki 27. júlí.
Einn maður var um borð og lenti hann í sjónum, en tókst að
losa björgunarbát og bjargaðist um borð í Hafliða BA.
Sex tonna plastbátur, Ólöf Jónsdóttir, strandaði við
Hafnarnes vestan við Þorlákshöfn 31. ágúst. Einn maður
var um borð og komst hann í land, en þurfti að klifra upp
kletta til þess að leita aðstoðar.
Umferðarslys
Mæðgin fórust í bílslysi ofan við Hveradalabrekkuna 12.
marz. Bifreið þeirra lenti á öfugum vegarhelmingi í hálku
og dimmviðri.
Átján börn slösuðust lítillega, þegar rúta fór út af vegi í
Reyðarfirði 6. maí.
(155)