Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1998, Blaðsíða 111
ert B. Schram 7,5%, Guðrún Pétursdóttir 6,6% og Stein-
grímur Hermannsson 6,1%.
Hinn 3. febrúar tilkynnti Guðrún Pétursdóttir háskóla-
kennari framboð sitt. Hún var langefst í skoðanakönnun
DV í marz með 35,8% fylgi, séra Pálmi Matthíasson var nú
í 2. sæti með 18,8%, en Ólafur Ragnar Grímsson var kom-
inn í 3. sæti með 14,3%.
í marz ákvað dómsmálaráðuneytið kjördag fyrir forseta-
kosningarnar og skyldi hann verða 29. júní, en framboðs-
frestur rann út 24. maí. Meðmælendur skyldu vera minnst
1-141 og mest 2.282 í Sunnlendingafjórðungi, minnst 88 og
nrest 176 í Vestfirðingafjórðungi, minnst 194 og mest 387 í
Norðlendingafjórðungi og minnst 77 og mest 155 í Aust-
firðingafjórðungi. Fyrst til þess að tilkynna framboð sitt,
eftir að kjördagur hafði verið ákveðinn, var Guðrún Agn-
arsdóttir læknir, hinn 23. marz, en næst kom Ólafur Ragn-
ar Grímsson alþingismaður, 28. marz. Hann lagði frá byrj-
un áherzlu á, að framboðið væri hans og konu hans, Guð-
rúnar Katrínar Þorbergsdóttur. Hinn 9. apríl sá Davíð
Oddsson ástæðu til þess að lýsa yfir því, að hann væri ekki
í framboði. Viku seinna, 16. apríl, tilkynnti Pétur Kr. Haf-
stein hæstaréttardómari, að hann yrði í kjöri til forseta.
Litlu seinna birti DV skoðanakönnun, þar sem í ljós kom,
að Ólafur Ragnar Grímsson hafði langmest fylgi frambjóð-
enda eða 61.0%, Guðrún Pétursdóttir 14,0%, Pétur Kr.
Hafstein 11,5% og Guðrún Agnarsdóttir 6,1%.
Skömmu áður en framboðsfrestur rann út, tilkynntu þeir
Jón Baldvin Hannibalsson alþingismaður og séra Pálmi
Matthíasson, að þeir yrðu ekki í kjöri. Hins vegar kom
fram fimmti frambjóðandinn 24. maí, og var það Astþór
Magnússon. í skoðanakönnun í lok maí var Ólafur Ragnar
með helmingi meira fylgi en sá sem næstur kom, en það
var Pétur Kr. Hafstein. Hinn 19. júní dró Guðrún Péturs-
dóttir sig í hlé frá forsetaframboði. Hún sagðist ekki vilja
leggja í meiri kostnað en orðið væri og ekki setja meiri
vinnu á stuðningsmenn sína.
Svo sem allar skoðanakannanir höfðu bent til sigraði Ól-
(109)