Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1998, Blaðsíða 198
lenzkum skáldsögum seldist mest af bók Vigdísar Gríms-
dóttur Z Ástarsaga.
Minjar og Saga Velunnarar Þjóðminjasafnsins keyptu á
uppboði í Danmörku íslenzkt drykkjarhorn fyrir 275.000
krónur. Það er frá 16. öld.
Mjólk í nýjum umbúðum. I október voru teknar í notk-
un um allt land nýjar umbúðir um mjólk
Norðurlandaráð. Þing ráðsins, hið 48. í röðinni, var hald-
ið í Kaupmannahöfn 11.-13. nóvember. Nú var í fyrsta sinn
túlkað af og á íslenzku. Mikið var rætt um samskipti Norð-
urlanda og Eystrasaltslanda. Tímaritið Nordisk kontakt var
lagt niður, en í þess stað var byrjað að gefa út blað í öðru
formi, Politik i Norden, og kom fyrsta tölublað þess út í
nóvember.
Nunnur til íslands. Á gamlársdag komu fjórar nunnur úr
reglu móður Theresu til Islands. Þær ætla að vinna að trú-
boði.
„Óskar nafnleyndar“ hverfur. I janúar var auglýst, að
ekki væri lengur unnt að óska nafnleyndar við umsóknir
um stöður hjá hinu opinbera.
Penninn eflist. I apríl var tilkynnt, að Penninn hf. hefði
keypt verzlanirnar Eymundsson í Austurstræti, Kringlunni
og Borgarkringlunni. Áður hafði Penninn eignazt Bóka-
búð Olivers Steins í Hafnarfirði.
Queen Elizabeth II í Reykjavík. Eitt víðfrægasta skip
heims, Queen Elizabeth II frá Cunardfélaginu, kom til
Reykjavíkur 8. júlí. Farþegar voru 1.545 og í áhöfn voru um
1.000 manns.
Samræmd próf. Þetta árið var meðaleinkunn hæst í
ensku, 7,0, í dönsku 6,3, íslenzku 5,8 og lægst í stærðfræði
5,5. Stúlkur voru hærri en piltar, og meðaleinkunn var hæst
í Reykjavík en lægst á Vestfjörðum.
Símaskráin aftur í einu bindi. Símaskráin 1996 kom út í
maí í 190.000 eintökum. Hún er í einu bindi og 1.100 blað-
síður.
Sophia Hansen. Dætur Sophiu, Dagbjört og Rúna, komu
fyrir rétt í Tyrklandi 12. júní, og sögðust þær ekki vilja vera
(196)