Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1998, Blaðsíða 188
17. Ogurvík hf.
18. Jón Ásbjörnsson hf.
1.035,8
1.017,4
(1.009,1)
(1.263,8)
Vísitölur og verðlag
Vísitala neyzluverðs var hinn 1. nóvember á fyrra ári
174,3 stig og hækkaði í 178,6 stig fram til 1. nóvember árið
1996. Meðaltal vísitölunnar á árinu var 177,1 stig. - Verð-
bólgan á árinu varð um 2,0%, og er þá miðað við hækkun
á vísitölu neyzluverðs milli áranna 1995 og 1996. Mesta
mánaðarhækkun varð í maí og ágúst, 0.6%, en minnst varð
hækkunin (lækkun) í desember -0,4%. Petta er aðeins
meiri verðbólga en árið áður, en þá var hún 1,7%. Verð-
bólgumetið er frá 1983, 70,8%.
Vísitala gengisskráningar var í árslok 115.62 stig (116.31
árið áður). Gengi krónunnar hafði þannig aðeins lækkað á
árinu. Meðalsölugengi bandaríkjadals í desember 1996 var
67,21 kr., en var 65,50 kr. í desember 1995. Meðalsölugengi
dalsins yfir árið var 66,86 (64,87). Sterlingspund hækkaði
um 12,45% á árinu og dalurinn um 6,34%. Japanskt jen
lækkaði hins vegar um 8,07% og þýzkt mark um 7,04%.
Dönsk króna og franskur franki lækkuðu einnig í verði.
Verðlag á nokkrum algengum vörutegundum og þjón-
ustu á höfuðborgarsvæðinu var sem hér segir í nóvember
1996 (innan sviga eru tölur frá nóv. 1995): Franskbrauð
sneitt, kg 308 kr. (275), súpukjötskfló 502 kr. (523), ýsuflök
505 kr. (512), nýmjólkurlítri í pakka 60 kr. (63), smjörkíló
348 kr. (333), eplakíló 172 kr. (168), kartöflukfló 111 kr.
(43), strásykurskíló 96 kr. (75), kaffikíló 887 kr. (721),
Coca-Cola í dós (33 cl) 63 kr. (63), brennivínsflaska 2.240
kr. (2.150), bjórkippa 790 kr. (800), vindlingapakki 272 kr.
(267), herraskyrta 4.843 kr. (4.760), kvensokkabuxur 575
kr. (562), benzínlítri (95 okt.) 76 kr. (70), mánaðargjald á
dagheimili með fæði 18.750 kr. (14.400), afnotagjald sjón-
varps á ári 24.000 kr. (24.000), bíómiði 550 kr. (550), full-
orðinsmiði á íslandsmótið í knattspyrnu 700 kr. (700), síð-
degisblað í lausasölu 150 kr. (150), sundmiði 110 kr. (110),
strætómiði 120 kr. (120).
(186)