Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1998, Blaðsíða 127
valsdeildarinnar 4:2. - í kvennaflokki sigraði ÍBK KR 3:1 í
úrslitakeppni. Petta var sjöundi sigur ÍBK í kvennaflokki. -
Haukar urðu bikarmeistarar í karlaflokki. Þeir unnu Akur-
nesinga í úrslitaleik 85-58. í kvennaflokki unnu Keflvíking-
ar Njarðvík 69-40.
Ólympíuleikarnir. Keppendur íslands á Ólympíuleikun-
Urn í Atlanta voru 13. Einar Vilhjálmsson, Guðrún Arnar-
dóttir, Jón Arnar Magnússon, Martha Ernstsdóttir, Pétur
Guðmundsson, Sigurður Einarsson og Vésteinn Hafsteins-
son í frjálsum íþróttum, Elín Sigurðardóttir, Eydís Kon-
ráðsdóttir og Logi Jes Kristjánsson í sundi, Elsa Nielsen í
badminton, Rúnar Alexandersson í fimleikum og Vern-
harð Þorleifsson í júdó. Beztum árangri náðu þau Guðrún
Arnardóttir og Jón Arnar Magnússon. Guðrún varð í 10.
sæti í 400 m grindahlaupi 54,88. Hún vann sinn riðil og setti
Islandsmet í undanúrslitum 54,81. Jón Arnar varð 12. í tug-
þraut með 8.274 stig.
Vésteinn Hafsteinsson kastaði 56,30 m í kringlukasti og
varð 32. af 39, Elín Sigurðardóttir synti 50 m skriðsund á
26,90 og varð 37. af 55, Eydís Konráðsdóttir synti 100 m
flugsund á 1:03,41 og varð 29. af 44.
Rall. Jón Ragnarsson og Rúnar Jónsson urðu Islands-
meistarar í sjöunda sinn.
Siglingar. Islandsmót kjölbáta var haldið fyrir utan Hafn-
arfjörð í lok ágúst. Áhöfnin á Skeglu var með flest stig, en
eftir að kærur höfðu verið úrskurðaðar, kom í ljós, að
Gígja úr Kópavogi hafði sigrað. Skipstjóri var Baldvin
Björgvinsson.
Skák. Skákþing íslands í landsliðsflokki fór fram í
Garðabæ í maí og byrjun júní. Islandsmeistari varð Helgi
Ólafsson með 8,5 vinninga af 11. Jóhann Hjartarson og
Margeir Pétursson urðu í 2.-3. sæti með 8 vinninga. Anna
Björg Þorgrímsdóttir sigraði í kvennaflokki og hlaut 5
vinninga af 6.
Ólympíuskákmótið var haldið í Jerevan í Armeníu 16.
september til 2. október. Keppendur íslands voru Margeir
Pétursson, Jóhann Hjartarson, Hannes Hlífar Stefánsson,
(125)