Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1998, Blaðsíða 161
A nnað
Arsþing Slysavarnafélagsins var haldið á Laugarvatni í
júní. Gunnar Tómasson var kosinn forseti félagsins.
STJÓRNMÁL
Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sat að
völdum allt árið. Flún var skipuð eftirtöldum ráðherrum:
Davíð Oddsson forsætisráðherra, Friðrik Sophusson fjár-
málaráðherra, Þorsteinn Pálsson dóms- og kirkjumálaráð-
herra og sjávarútvegsráðherra, Björn Bjarnason mennta-
málaráðherra og Halldór Blöndal samgönguráðherra frá
Sjálfstæðisflokknum, Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra, Finnur Ingólfsson viðskipta- og iðnaðarráðherra,
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra, Páll Pétursson félagsmálaráðherra og Guðmundur
Bjarnason landbúnaðar- og umhverfisráðherra frá Fram-
sóknarflokknum.
Samstarfið í ríkisstjórninni gekk vel og fylgi hennar var
mikið og traust allt árið, ef dæma má eftir skoðanakönnun-
um. I könnun um miðjan apríl hafði stjórnin fylgi 58,3%
þeirra, sem afstöðu tóku, en 41,7% voru á móti, í byrjun
október var fylgið 59,2% á móti 40,8%.
I skoðanakönnunum á árinu var fylgi flokkanna yfirleitt
á því róli, að Sjálfstæðisflokkur hafði um og yfir 40%,
Framsóknarflokkur rúmlega 20%, Alþýðubandalag rúm-
lega 15%, Alþýðuflokkur innan við 15%, Kvennalisti tæp
5% og Þjóövaki var nálega horfinn. Eftir sameiningu þing-
flokka Þjóðvaka og Alþýðuflokks um haustið var töluvert
talað um samruna vinstri flokkanna allra. Fékk sú umræða
byr undir báða vængi, eftir að birt var skoðanakönnun í
nóvember, þar sem í ljós kom, að sameinaður vinstri listi
fengi flest atkvæði flokka í landinu, 39,5%, Sjálfstæðis-
flokkur fengi 37,5% og Framsóknarflokkur 23,0%.
Alþingi
Alþingi, 120. löggjafarþingi, var frestað 5. júní. Hafði það
(159)