Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1998, Blaðsíða 117
íbúar íslands
1. desember 1996 var íbúatala íslands 269.727 (1. des.
1995 267.806). Af þeim voru karlmenn 135.176 (134.222) og
konur 134.551 (133.584). Fjölgun fslendinga á árinu var
0,72% (0,38% árið áður) eða 1.921 maður (1.023).
Á árinu fæddust 4.329 lifandi börn (4.280). Af þeim voru
sveinbörn 2.221 (2.232) og 2.108 meybörn (2.048). Skilgetin
börn voru 1.703 (1.673) en óskilgetin 2.626 (2.607). Af
þeim, sem talin eru óskilgetin, var 2.181 barn fólks í sam-
búð, en 445 án sambúðar. Dánir á árinu voru rúmlega
1.800.
Hinn 1. desember voru sveitarfélög í landinu 165 og
hafði fækkað um fimm á árinu. Hrepparnir voru 134, kaup-
staðir og bæir 31.
Þingeyrarhreppur, Mýrahreppur, Mosvallahreppur, Flat-
cyrarhrcppur, Suðureyrarhreppur og ísafjarðarkaupstaður
voru sameinaðir 1. júní 1996.
Af íbúum landsins voru 244.060 í Þjóðkirkjunni
(245.049), í Fríkirkjunni í Reykjavík 4.890 (4.884), í Frí-
kirkjunni í Hafnarfirði 2.954 (2.718), í Óháða söfnuðinum í
Reykjavík 1.502 (1.183). - Önnur trúfélög: Rómversk-kaþ-
ólskir 2.725 (2.553), Hvítasunnumenn 1.215 (1.148), Að-
ventistar 748 (761), Vottar Jehóva 599 (583), í Baháísamfé-
Hgi 407 (402), Krossinn 424 (380), Kirkja Jesú Krists
h.s.d.h. 169 (164), Ásatrúar 263 (190), Vegurinn 721 (701), í
Sjónarhæðarsöfnuði 47 (51), Orð lífsins 84 (64), önnur trú-
félög og ótilgreint 3.280 (2.753), utan trúfélaga 5.257
(3.923).
Ibúatala íslenzkra kaupstaða og bæja var 1. desember
1996 sem hér segir (í svigum eru tölur frá 1. desember
1995):
Reykjavík
híosfellsbær
Akranes
Borgarbyggð
105.487 (104.258)
4.976 (4.917)
5.074 (5.068)
2.097 (2.124)
(115)