Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1998, Blaðsíða 165
Landsfundur Kvennalistans var haldinn í Viðey 2.-3.
nóvember undir yfirskriftinni: „Kvenfrelsi, frá orðum til at-
hafna“. Fundurinn var fámennur, og voru skoðanir skiptar
um framtíð listans.
A 24. flokksþingi Framsóknarflokksins, sem haldið var í
Reykjavík 22.- 24. nóvember, kom fram mikil ánægja með
stjórnarsamstarfið og forystu flokksins. Var hún öll endur-
kjörin. Hlaut Halldór Ásgrímsson formaður 98,0% at-
kvæða, Guðmundur Bjarnason varaformaður 87,5% og
Ingibjörg Pálmadóttir, ritari flokksins, 87,3%. Minnzt var
80 ára afmælis flokksins, sem var um þetta leyti.
Opinberar heimsóknir erlendra ráðherra
Sjávarútvegsráðherrar ríkja við Norður-Atlantshaf þing-
uðu í Reykjavík í lok maí. - Samgönguráðherra Namibíu,
Oskar Valentin Plichta, kom til íslands í júní í boði Hall-
dórs Blöndals. - Andris Skele, forsætisráðherra Lettlands,
kom til íslands í opinbera heimsókn í september. I sama
mánuði kom Göran Persson, forsætisráðherra Svía, í opin-
bera heimsókn.
Sveitarstjórnarmál
Hinn 11. maí fóru fram bæjarstjórnarkosningar í nýju
sveitarfélagi, sem nefnt var Isafjarðarbær eftir kosningu
milli 5 nafna. Úrslit urðu þau, að D-listi Sjálfstæðisflokks
fékk 923 atkvæði og 5 menn kjörna, F-listi óháðra, kvenna-
lista og Alþýðubandalags fékk 454 atkvæði og 2 menn
kjörna, E-listi, þ.e. Funklisti framhaldsskólanema, fékk 452
atkvæði og 2 menn kjörna, A-listi Alþýðuflokks fékk 335
atkvæði og 1 mann kjörinn og B-listi Framsóknarflokks 319
atkvæði og 1 mann. Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokkur
mynduðu meirihluta í ísafjarðarbæ.
Hinn 11. september lauk samstarfi Framsóknarflokks og
Alþýðubandalags í bæjarstjórn Borgarbyggðar. Deilt var
um fjármál og sparnað við rekstur leikskóla. Hinn 24. sept-
ember var tilkynnt, að Framsóknarflokkur og Sjálfstæðis-
flokkur hefðu myndað nýjan meirihluta.
(163)