Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1998, Blaðsíða 122
féllu í 2. deild, en sameiginlegt lið UMSE og UFA og Hún-
vetningar komu upp í 1. deild. - Reykjavíkurmaraþon var
haldið 18. ágúst í blíðskaparveðri. Skráðir þátttakendur
voru um 2.700. Af þeim hlupu 129 manns Maraþonhlaupið
sjálft, og 207 hlupu hálfmaraþon. Hugh Jones frá Bretlandi
sigraði í karlaflokki annað árið í röð á tímanum 2:24,16 og
Angaharad Mair frá Bretlandi í kvennaflokki með 2:38,47,
sem er nýtt brautarmet. Kevin McClusky frá Bretlandi
sigraði í hálfmaraþoni í karlaflokki á tímanum 1:05,36 en
Martha Ernstsdóttir annað árið í röð í kvennaflokki,
1:11,40. fngólfur Geir Gissurarson náði beztum tíma Is-
lendinga í Maraþonhlaupi, 2:43,19.
Vala Flosadóttir setti Norðurlandamet í stangarstökki
kvenna innanhúss í Málmey í janúar. Hún stökk 3,82 m.
Hún bætti metið í 4,00 seinna í mánuðinum og enn í 4,11 á
sænska meistaramótinu í Borlange í febrúar. Hún varð síð-
an Evrópumeistari í stangarstökki innanhúss í Gautaborg í
marz og stökk 4,16 m. Jón Arnar Magnússon varð 3. í
sjöþraut á sama móti með 6.069 stig. Geirlaug B. Geir-
laugsdóttir setti íslandsmet í 60 m hlaupi, 7,54 sek. - Sunna
Gestsdóttir (HSK) setti íslandsmet í sexþraut kvenna á ís-
landsmóti innanhúss í fjölþrautum í febrúar. Hún hlaut
4.819 stig. - Guðrún Arnardóttir setti íslandsmet í 60 m
grindahlaupi innanhúss á móti í Bandaríkjunum í febrúar.
Hún hljóp á 8,31 sek. Gamla metið var 18 ára. Hún setti
met í 400 m grindahlaupi í Eugene í Oregon í maí, 54,93. -
Vala Flosadóttir setti íslandsmet í stangarstökki utanhúss á
móti í Bratislava í maí og stökk 4,06 m.
Glíma. Skjaldarglíma Ármanns var haldin í lok janúar.
Orri Björnsson (KR) sigraði. Hann sigraði einnig í bikar-
glímu íslands, sem var háð á Laugum í febrúar. - Sveita-
glíma íslands var á Laugarvatni í apríl. KR sigraði, en frá
1977 höfðu Þingeyingar sigrað. - Íslandsglíman var háð í
Reykjavík í apríl. Ingibergur J. Sigurðsson (Ármanni) sigr-
aði, hlaut Grettisbeltið og varð glímukóngur íslands. Þetta
var 90. Islandsglíman.
Golf. íslandsmótið var haldið í Vestmannaeyjum í lok
(120)
J