Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1998, Blaðsíða 170
Veiðum í Smugunni lauk um 20. nóvember. Alls veiddust
um 22.000 tonn á um 70 skip. Afrakstur veiðanna var mun
lélegri en árið á undan.
Fiskiþing var haldið í Reykjavík í nóvember í 55. sinn.
Þar var m.a. rætt um frákast á fiskiskipum.
Islenzkum fiskiskipum fækkaði á árinu 1996 um 25 skip,
og er það sjötta árið í röð, sem fiskiskipum fækkar. Þil-
farsfiskiskip voru í árslok 800. Þau voru 130.944 brúttórúm-
lestir og meðalaldur þeirra var 19,3 ár. Opnir bátar, sem
lögðu upp afla á árinu, voru 1.044. - Hólmaborg frá Eski-
firði var lengd á árinu og ber nú um 2.500 tonn. Hún er
langburðarmesta loðnuskip flotans.
Fryst rækja er nú í þriðja sinn efst á blaði um útfluttar
sjávarafurðir. Mikil aukning varð á útflutningi loðnumjöls
og töluverð í blautverkuðum saltfiski. - Útflutningur
helztu sjávarafurða (meira en 1.000 milljónir) var sem hér
segir á árinu 1996 í milljónum króna (í svigum eru tölur frá
1995):
Fryst rækja 15.967,9 (15.400,4)
Blautverkaður saltfiskur 10.633,6 (9.286,8)
Fryst þorskflök 8.528,9 (9.656,5)
Loðnumjöl 8.034,4 (4.697,3)
Heilfrystur karfi 4.551,5 (4.118,4)
Heilfrystur flatfiskur 4.339,6 (4.638,9)
Fryst loðna, heil eða flökuð 4.326,7 (2.492,6)
Nýr, kældur eða ísvarinn heill fiskur 4.084,8 (4.513,1)
Saltfiskflök 3.337,6 (2.971,5)
Loðnulýsi 2.830,3 (1.648,9)
Ný, kæld eða ísvarin fiskflök 2.766,4 (2.309,5)
Fryst karfaflök 2.602,9 (2.609,2)
Fryst ýsuflök 2.224,3 (2.185,8)
Fryst flatfiskflök 2.191,3 (2.156,9)
Blokkfryst þorskflök 1.817,5 (2.172,0)
Fryst síld 1.259,7 (871,2)
Saltsíld 1.053,8 (777,6)
(168)